Auðkenni
Tegund einingar
Fyrirtæki/stofnun
Leyfileg nafnaform
Bláland Vindhælishreppi
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
(1900)
Saga
Eyðijörð frá 1933. Eigandi 1975; Elínborg Margrét Kristmundsdóttir 10. okt. 1909 - 15. jan. 1996. Starfsmaður hjá Pósi og síma. Síðast bús. í Vindhælishreppi. Ógift.
Staðir
Vindhælishreppur; Hallárdalur; Höskuldsstaðasókn; Hólastóll; Sæunnarstaðir; Blálandsteigur; Nóngil; Borðhólafjall; Álfasteinar; Engjadalur; Þverá í Hallárdal; Kjalarland; Hafursstaðir; Kjalarlandsdokkir;
Réttindi
Starfssvið
Lagaheimild
Í örnefnaskrá segir: „Nóngil er á merkjum að austan. Þar er nón frá Sæunnarstöðum.“
Árni sá sem nú lifir á Ásbúðum á Skaga, yfir áttrætt, bjóáður fyrri á Blálandi í Hallárdal og fór þaðan einu sinnifram í sveit og hafði tvo til reiðar.
En er hann kemur að Blöndu á Hrafnseyri var orðiðhálfrökkvað. Hann ríður út í ána, en er hann kemur í hanamiðja stingur hann fótum fyrir, frýsar og vill ekki lengrafara. Og er Árni kemur honum ekki úr sporum veit hann aðhesturinn muni sjá eitthvað það er hann ekki sá sjálfur, ogtekur hann klútinn af hálsinum á sér og bindur fyrir auguhestinum og hélt hann þá áfram, en hinn hesturinn kippti þáaf honum taumum og snéri við til sama lands.
Heldur nú Árni áfram þangað til hann er að kalla kominn yfirum. Þá sér hann átján manns á bakkanum og heyrir að einnsegir: "Hafið þið hljótt, hann Árni frændi minn á Blálandikemur."
Árni heldur upp á bakkann og veik sér að þeim er hann heyrðikalla sig frænda sinn, heilsar honum og spyr hvernig áfrændsemi þeirra standi. Hann kvaðst hafa heitið ÞorvarðurHallsteinsson og rakti saman ættir þeirra.
Árni biður hann þá að sækja yfir um fyrir sig hestinn því sérhefði ekki tekist að koma honum yfir um ána. Draugurinngjörði það, en á meðan dreifðust hinir svo þeir hvurfu allir.
Árni spurði þá hinn er yfir um kom hverjir þessir hefðuverið.
Hinn kvað: "Það erum við sem drukknað höfum í Blöndu."
Síðan hélt Árni leiðar sinnar fram undir Sauðanes; þar var þákonan, Sigríður, nýdáin.
Þegar hann sá til bæjarins sýndist honum hann allur í loga,en þó hélt hann heim, og er hann kom á hlaðið hvarf loginn.En er hann ætlaði að bæjardyrum stóð þar kvenmaður fyrir ogbandar honum frá. Hann spyr hver hún sé. Hún kveðst verahúsfreyjan hérna.
Árni gengur hratt að og segir: "Lofaðu mér að, ég ætla aðberja," og þá hvarf hún.
Innri uppbygging/ættfræði
Ábúendur;
1910> Jakob Guðmundsson 21. ágúst 1865 - 18. júní 1932 Var í Tjörn, Hofssókn, Hún. 1870. Sagður Jónsson í manntalinu 1870. Jakob var skrifaður Guðmundsson við fermingu og ætíð eftir það. Bóndi á Ytra-Hóli og Blálandi í Hallárdal, Vindælishr., A-Hún, síðar verkamaður á Skagaströnd. Kona hans; Þórdís Alexandra Jósefsdóttir Stiesen 9. nóvember 1876 - 6. júlí 1948 Húsfreyja í Skagastrandarkaupstað 1930. Húsfreyja á Blálandi í Hallárdal og síðar í Drangey
1920> Björn Þorleifsson 10. janúar 1898 - 26. maí 1956 Daglaunamaður í Skagastrandarkaupstað 1930. Bóndi á Blálandi á Skagaströnd 1920. Verslunarmaður í Ásgarði í Höfðahr., A-Hún. Kona hans; Vilhelmína Andrésdóttir 10. mars 1894 - 24. ágúst 1977 Húsfreyja í Ásgarði, Höfðahr., A-Hún. 1957.
1933 -Guðmundur Júlíusson 19. júní 1885 - 1. jan. 1961. Verkamaður á Skagaströnd. Var hjá föðurforeldrum í Kambakoti, Höskuldsstaðasókn, Hún. 1890. Var í Sjávarborg, Höfðahr., A-Hún. 1957.
Almennt samhengi
Bláland kemur fyrst fyrir á lista yfir jarðir Hólastóls sem seldar höfðu verið í tíð Jóns Arasonar biskups frá 1552 þar sögð 11,5 hundruð.
Árið 1703 eru fjórir skráðir til heimilis að Blálandi en 1708 var hún í eyði skv. jarðabók. Að jafnaði eru um 5-9 í heimili en þrír þegar fæst er árið 1870. Síðasti ábúandinn á Blálandi Guðmundur Júlíusson fór þaðan árið 1933.
Engjatak átti jörðin í Sæunnarstaðalandi sem nefndist Blálandsteigur. Í sóknalýsingu Höskuldsstaðasóknar frá 18, segir að Bláland eigi engjatak neðst við Nóngil gegn beit í Borðhólafjalli.
Í örnefnaskrá segir: „Nóngil er á merkjum að austan. Þar er nón frá Sæunnarstöðum.“
Bæjartóftin er nokkurn veginn fyrir miðju gamla túninu og stendur hún að líkindum á eldri minjum. Í jarðamati segir: „Bæjarhús og geymsluhús byggð úr torfi og timbri, ekki gömul og vel stæðileg.“ (Fasteignamat 1916-1918. Bláland nr. 265. Jarðavefur Þjóðskjalasafns Íslands. http://jardavefur.skjalasafn.is/
Yfir bæjarlæknum um 5m vestan við bæjarhólinn er tóft, líklega mylla eða brunnhús.
Á grónum mel sunnan eða suðaustan túns, rúmlega 100m suðaustur af bæjarhólnum eru tveir fremur stórir steinar. Lýsing Nyrðri steinninn er um 60sm hár og um 1,5x0,75sm að grunnmáli. Aðrar upplýsingar Í örnefnaskrá segir: „Austan túns eru tveir steinar allstórir, sem heita Álfasteinar. Heitið sýnir eðli þeirra.“ (Ö-Bláland-1, 1).
Gata liggur úr Engjadal út Hallárdal að sunnanverðu og liggur ofan við Bláland og beygir þar til suðurs. Gatan er vel greinileg á köflum og var hún að hluta skráð á vettvangi en að hluta af loftmynd þar sem hún sést víðast hvar greinilega. Gatan er greinileg í landi Þverár, Sæunnarstaða, Blálands og Kjalarlands.
Í landamerkjaskrá Hafursstaða segir: „[...] þaðan eru merkin milli Blálands og Kjalarlands beint ofan fjallið, ofan í kringlóttan vörðumel, fyrir austan Kjalarlandsdokkir; [...]“ (Landamerkjaskrá Austur-Húnavatnssýslu (1889), nr. 94).
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH-Bæ
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 13.3.2019
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
Guðmundur Paul http://jardavefur.skjalasafn.is/
file:///C:/Users/Notandi/AppData/Local/Microsoft/Windows/INetCache/IE/0IQHZUQN/bsk-2013-143.pdf
Húnaþing II