Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Lúðvík Blöndal Jónsson (1894-1943) skósmiður Blíðheimum Blönduósi
Parallel form(s) of name
- Björn Lúðvík Blöndal Jónsson (1894-1943) skósmiður Blíðheimum Blönduósi
- Lúðvík Blöndal (1894-1943) skósmiður Blíðheimum Blönduósi
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
9.11.1894 - 29.11.1943
History
Places
Mjóidalur á Laxárdal fremri 1901; Mosfell Blönduósi 1920; Blíðheimar Blönduósi 1924-1936; Reykjavík:
Legal status
Functions, occupations and activities
Skósmiður;
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
Foreldrar hans; Ingibjörg Jóhannsdóttir 22. september 1861 - 18. ágúst 1907 ógift vinnukona í Mjóadal 1901, seinna húsfreyja í Selhólum í Gönguskörðum og barnsfaðir hennar; Jón Lúðvíksson Blöndal 15. júní 1849 - 31. október 1900. Vinnumaður á Staðarfelli, Staðarfellssókn, Dal. 1870. Trésmiður í Selhólum í Gönguskörðum, Skag. ógiftur snikkari Stóru-Giljá 1890.
Kona Lúðvíks; Ingibjörg Jakobsdóttir f. 21.1.1898, d. 21.2.1975, frá Vesturhópshólum, Seinni maður Ingibjargar var; Jónas Jónasson 7. ágúst 1905 - 20. nóvember 1979 Daglaunamaður á Blönduósi 1930. Verkamaður í Tilraun á Blönduósi. Síðast bús. í Reykjavík. Bróðir Sigurjóns (1907-1969) á Stóru-Giljá. Þau barnlaus.
Börn þeirra sjá Blíðheima;
1) Þórhallur Sigurbjörn Lúðvíksson Blöndal 10. júní 1923 - 19. september 2008 Var á Blönduósi 1930. Var í Bræðraborg, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Kona hans 1.12.1971; Guðfinna Pálsdóttir 21. september 1930 - 27. apríl 2015 Var í Breiðabliki, Höfðahr., A-Hún. 1957. Hjúkrunarfræðingur á Blönduósi. Veðramóti 1971. Dótti Páls Jónssonar Skólastjóra
2) Þorbjörn Blöndal Lúðvíksson 15. júlí 1924 - 1. september 1926
3) Þorbjörg Ásdís Blöndal Lúðvíksdóttir 23. desember 1927 - 5.8.2021. Bús. í Bandaríkjunum. M: Earl Warren Himes, bifreiðastjóri f. 2.12.1920. Börn þeirra f. og bús. í Bandaríkjunum.
General context
Kaupdeilunni á Blönduósi lauk á föstudaginn, eins og getið var í síðasta blaði. Samkvæmt samningunum hækkar dagvinna við skip úr kr. 0,95 í kr. 1,15 í dagvinnu, og úr kr. 1,20 í kr. 1,65 í eftir-, nætur- og helgidagavinnu. Einnig skyldar afgreiðslan á Blönduósi sig til að hafa uppskipunarbátana og önnur uppskipunaráhöld í betra standi en verið hefir, og verkamenn fái skýli við höfnina til að matast og hafast við í þegar unnið er. Almennt kaup verður eins og um semst með Alþýðusambandinu og ríkisstjórninni í opinberri vinnu í sýslunni. Á Laugardaginn gaf >Verklýðsblaðið< út fregnmiða í Reykjavík, þar sem álygum og svívirðingum var ausið yfir verkamennina á Blönduósi og stjórn Alþýðusambandsins. Svaraði stjórn Verkamannafélagsins þessu samdægurs með eftirfarandi skeyti til Alþýðublaðsins: Alþýðusambandið hefir frá byrjun deilunnar aðstoðað verklýðsfélagið öfluglega á allan hátt. Algert afgreiðslubann var á Blönduósi, og sömuleiðis var afgreiðslubann á Blönduóssvörum, sem reyna átti að koma í land á öðrum höfnum. Síðast var stöðvuð afgreiðsla timburskipsins Dagný, deilan hefir unnist, og sigurinn er einungis að þakka Alþýðusambandinu- 25% kauphækkun hefir fengist, algerð forganga verklýðsfélaga til vinnu hefir verið viðurkend, og fl. hagsmunabætur og öryggisráðstafanir fyrir verkamenn hafa náðst. Að fylstu kröfur um almenna kauphækkun hafa ekki náðst, er eingöngu að kenna Verklýðsfélagi Austur-Húnvetninga, ef um nokkra sök er að ræða. Við mótmælum ósannindum kommúnista um endalok deilunnar og um samningana, og við mótmælum því sem staðlausum þvættingi, að Alþýðusambandið hafi staðið á bak við þá lúalegu, pólitísku herferð sýslunefndar, að fá verklýðsfélaga til að vinna og fara úr félaginu, og hótunum hennar um að gera að öðrum kosti ráðstafanir til að verkamenn fái ekki neina vinnu í framtíðinni hér í sýslu. Að nafninu til er V. A. H. í Verklýðssambandi Norðurlands. Eini kommúnistinn í stjórn félagsins hefir staðið í sambandi við VSN meðan deilan hefir staðið, án afskifta stjórnar eða félagsins, enda hefir VSN ekkert aðstoðað í deilunni. Erindreki VSN sat fund verklýðsfélagsins fyrir fáum dögum og reyndi að koma óhug og vantrausti inn hjá félagsmönnum um sigur í deilunni vegna þess að Alþýðusambandið hefði forustuna á hendi. Þessi ábyrgðarlausa staðhæfing, meðan á deilunni stóð, var stórhættuleg, þótt þetta hefði hinsvegar engin veruleg áhrif á félagsmenn, en mikil hætta getur stafað aí slíkri bardagaaðferð.
Í stjórn Verklýðsfélags Austur-Húnv.: Halldór Albertsson Lúðvík Blöndal, Guðmundur Agnarsson, Árni Sigurðsson, Þorvaldur Þórarinsson.
Eins og sést á skeyti þessu, sem Alþýðum. hefir verið beðinn að birta orðrétt, var sagt í fregnmiða »Verklýðsblaðsins<. Að Alþýðusambandið hefði staðið á bak við sýslunefndina, er hún reyndi að sundra verklýðsfélaginu og eyðileggja deiluna. Verður þess líklega ekki Iengi að bíða að verklýðsfélagið á Blönduósi segi sig úr VSN enda getur það ekki samrýmst að eitt og sama félag sé i Alþýðusambandinu og VSN, þar sem hið síðartalda gerir alt sem í þess valdi stendur til að eyðileggja verklýðsfélögin og alt uppbyggingar- og samtakastarf Alþýðusambandsins á Norðurlandi.
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=4942231
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is controlled by
Lúðvík Blöndal Jónsson (1894-1943) skósmiður Blíðheimum Blönduósi
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 10.1.2018
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði