Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Björn Daníelsson (1920-1974) skólastjóri Sauðárkróki
Parallel form(s) of name
- Björn Daníelsson
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
16.2.1920 - 22.6.1974
History
Björn Daníelsson 16. febrúar 1920 - 22. júní 1974 Var á Valdarási, Víðidalstungusókn, V-Hún. 1930. Skólastjóri á Sauðárkróki.
Places
Valdarás í Víðidal; Laxárdalur Þing: Akureyri; Dalvík; Sauðárkrókur:
Legal status
Björn lauk kennaraprófi vorið 1940:
Functions, occupations and activities
Hann hóf þegar kennslu eftir nám, fyrst í Laxárdal í S.-Þing. þar næst I Þorkelshólsskólahverfi í V-Hún. þá á Akureyri og síðan á Dalvlk frá 1943, þar til 1952, er hann tók við skólastjórn barnaskólans á Sauðárkróki. Því starfi hélt hann til dauðadags eða i 22 ár.
Bæjarfulltrúi fyrír Sjálfstæðísflokkinn var Björn um nokkurra ára skeið og átti þá sæti I bæjarráði og ýmsum nefndum bæjarins. Einnig tók hann þátt i störfum ýmissa félaga. Má m.a. nefnda kennarasamtökin i umdæminu og Samband norðlenzkra kennara meðan það starfaði. Hann var ungmennafélagi og form. Ungmennasamb. Eyjafjarðar um tveggja ára skeið á þeim tima er hann kenndi á Dalvlk. Í stjórn Sögufélags Skagfirðinga og i sóknarnefnd Sauðárkróks var Björn í áraraðir auk margra annarra starfa að félagsmálum, sem hér verða ekki upptalin. Aðaláhugamál Björns utan skólastarfs voru tengd bókmenntum og skáldskap. Af þeim ástæðum beindust störf hans fljótlega inn á þær brautir eftir að hann kom til Sauðárkróks. Hann var öðrum þræði listamaður með viðkvæma strengi til listagyðjunnar og átti með henni samleið í sínum ljóðum og óbundnu máli. Þegar Umf. Tindastóll hóf að gefa út samnefnt timarit 1960 gerðist hann ritstjóri þess og var það i þau fimm ár, sem ritið kom út. Ég tel útgáfu þessa rits merkilega tilraun til að auðga menningarlif í héraðinu. Auk blaðagreina, útvarpsefnis og ljóðabókar þeirrar, er um er getið i upphafi þessarar greinar, samdi Björn og sendi frá sér ýmis konar efni i bundnu og óbundnu máli, þar með lesefni til notkunar i skólum og þá einkum ætlað yngri nemendum. Mestan tima utan skóla mun Björn þó hafa helgað þvi hugðarefni sinu að vinna að viðgangi Héraðsbókasafns Skagfirðinga og Héraðsskjalasafninu og byggingu safnahússins undir Nöfunum. Mér er ekki grunlaust um að hugur hans hafi oft leitað þangað i augnablikshléum frá kennslustörfum, enda blasti þessi bygging við úr gangglugga þeim i skólanum, sem kennslu stofa hans lá að. Safnahúsið er nú komið upp, stór bygging og vegleg og að mestu fullgerð. Björn átti drýgstan þáttinn i þeirri
Mandates/sources of authority
Það vorar i hug og hjarta
og hrjóstrin skipta um lit.
Úr sólarátt heyrum við söngva o
g siglaðan vængjaþyt.
Störfin yngja vorn anda
og efla vor sóknarspor.
Það er létt yfir lífi og vonum
ljómandi sólskin — og vor.
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3573216
Internal structures/genealogy
Foreldrar hans; Þórdís Pétursdóttir 20. nóvember 1887 - 30. október 1945. Húsfreyja á Valdarási, Víðidalstungusókn, V-Hún. 1930. Húsfreyja í Valdarási í Víðidal og maður hennar Daníel Daníelsson 8. janúar 1879 - 25. ágúst 1950 Bóndi á Valdarási, Víðidalstungusókn, V-Hún. 1930. Bóndi í Valdarási og Þórukoti í Víðdal, V-Hún. Bróðir Björns Danírelssonar í Kolugili.
Systkini Björns;
1) Pétur Daníelsson 19. nóvember 1917 - 20. september 1986 Var á Valdarási, Víðidalstungusókn, V-Hún. 1930. Var í Þórukoti, Þorkelshólshr., V-Hún. 1957. Síðast bús. í Mosfellsbæ.
Kona Björns var; Jóhanna Margrét Ólafsdóttir 30. júlí 1916 - 12. ágúst 2015. Var á Stóru-Ásgeirsá, Víðidalstungusókn, V-Hún. 1930. Húsfreyja á Dalvík, húsfreyja og bókavörður á Sauðárkróki og síðar bókavörður í Reykjavík. Gegndi ýmsum félagsstörfum.
Þau eignuðust þrjá syni,
1) Þórir Dan Björnsson 13. desember 1944 læknir.
2) Ólafur Víðir Björnsson 9. október 1946 norrænufræðingur.
3) Pétur Örn Björnsson 10. apríl 1955
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the sibling of
Björn Daníelsson (1920-1974) skólastjóri Sauðárkróki
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the cousin of
Björn Daníelsson (1920-1974) skólastjóri Sauðárkróki
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 21.12.2017
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði