Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Benedikt Frímannsson (1853-1917)
Parallel form(s) of name
- Benedikt Frímannsson
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
9.6.1853 - 1.11.1917
History
Benedikt Frímannsson 9. júní 1853 - 1. nóvember 1917 Formaður í Höfðakaupstað. Fór til Vesturheims 1888, óvíst hvaðan.
Benedikt Frímannsson dó að heimili sínu á Gimli fyrsta nóvember 1917. Sjúkdóm þann, sem leiddi hann til bana, varð hann fyrst var við fyrir tveimur og hálfu ári síðan, en gegndi þó hinum vanalegu störfum sínum þar til í apríl síðastliðnum, þó oft með veikum mætti. Eftir það fóru kraftar hans óðum þverrandi og var honum sjálfum Ijóst að það var aðeins stundar bið þar til hann hlyti að hníga fyrir aðkomu dauðans. En hann bar sinn sjúkdómskross með karlmensku og frábærlega mikilli hugprýði. Enda var hann vel staddur í sínu dauða stríði með guð sér við hægri hönd, en sína ágætu konu og einkadóttur yið hina vinstri. Hvarf hann þannig úr örmum ástvinanna í faðm frelsar síns og drottins. Jarðarförin fór fram, laugardaginn 10. þ. m. og var mjög fjölmenn. Húskveðju flutti séra Rúnólfur Marteinsson, en í kirkjunni töluðu þeir séra Carl J. Olson og séra Hjörtur J. Leo. Var svo líkið flutt til síns hinsta hvílurúms í grafreit Gimli bæjar.
Places
Skeggjastaðir á Skagaströnd: Winnipeg Kanada: Bjó í Hallson ND 1888-1889, Winnipeg 1889-1898 og Gimli til æviloka.
Legal status
Functions, occupations and activities
Var í vöruflutningum milli Gimli og Selkirk og síðar stundaði hann kjötverslun. (Svipir og sagnir bls 129). í Skf. æviskrám V bls 70 er hann sagður sonur Guðrúnar fyrri konu Frímanns. Jafnframt er það staðfest í Lögbergi.
Mandates/sources of authority
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2191505
Kvæði flutt við jarðarför Benidikts Frímannssonar
Í dag er, vinur, hljótt í húsi þínu,
en hugir tala þeim mun skýrra mál;
hvert auga skrifar einni þagnarlínu
þau orð, sem glöggast lýsa heilli sál.
Þú finnur ekki' i hinstu hvílu þinni
þótt hrynji tár á þína köldu mund.
Vér heilsum þér — og kveðjum síðsta sinni,
þvi samferðinni lokið er—um stund.
Í dag er, vinur. hljótt í húsi þínu,
en hugur vor er eins og skrifuð bók,
þar verk þín lifa' í sannleiksgildi sínu
og sagan þín, sem enginn dauði tók.
Þú dvaldir hér sem frónskur ferðamaður,
en fékkst að "heiman" dýpstan andardrátt;
frá vinum þínum getur horfið glaður
og guði þínum mætt á sama hátt.
Þín lund var stöðug, eins og frónsku fjöllin,
þitt fölskvaleysi eins og dalsins blær;
þinn starfaþungi eins og fossaföllin,
þín félagstrygð sem djúpur reginsær.
Í öllu kom það fram i förum þínum
að fjallkonan þín einkamóðir var.
og engin kona fann hjá syni sínum
að svipur hennar væri trúrri' cn þar.
Og hún, sem með þér hló og grét
í hverri gleði' og sorg
og aldrei hug né hjarta lét
þótt hryndi vona borg.
Og hún, sem ykkur enn þá nær
hvort öðru færði best.
og lýsti eins og lífssól skær
er ljóssins þurfti mest.
Þær biðja guð, sem gætir þín
að gefa styrk og þrótt,
og hneigja þöglar höfuð sín
og hvísla : "Góða nótt!"
Sig. Júl. Jóhannesson.
„Einhver tryggasti vinur vinum,
í verki sýndi trygð og dáð‘,
hreinn og einlægur öllum hinum,
aldrei gaf neinum loka ráð ;
sálar sterkasti, hjarta hreinn,
hrœddist drottinn, en mann ei neinn".
Bjarni Thorarensen
Internal structures/genealogy
Foreldrar hans; Jóhannes Frímann Runólfsson 27. mars 1823 - 23. mars 1917 Bóndi á Skeggjastöðum á Skagaströnd, A-Hún. Bóndi á Mosfelli í Gönguskörðum, Skag. Bóndi víðar í Skagafirði og Húnaþingi. „Frímann var talinn allvel að sér og greindarmaður“ segir í Skagf.1850-1890 V, og fyrri kona hans; Guðrún Benjamínsdóttir 20. nóvember 1814 - 23. júlí 1878 Húsfreyja á Skeggjastöðum á Skagaströnd, A-Hún. Fyrri kona Frímanns Runólfssonar. „Guðrún var greindarkona og vel að sér“ segir í Skagf.1850-1890 V.;
Kona hans í Winnipeg 2.5.1895: Ingibjörg Björnsdóttir 26. júní 1861 - 11. júní 1945 Var í Finnstungu, Blöndudalshólasókn, Hún. 1870. Dóttir hennar í Eyvindarstaðagerði, Blöndudalshólasókn, Hún. 1880. Fór til Vesturheims 1893 frá Finnstungu, Bólstaðarhlíðarhreppi, Hún. ágiskun að hún hafi verið kona Benedikts
Dóttir þeirra var;
1) Ósk Lovísa bankastarfsmaður í Winnipeg
Hálf systkini Benedikts móðir þeirra barnsmóðir Frímanns: Sigríður Þorsteinsdóttir 4. júlí 1827 Var á Hæli, Þingeyrarklausturssókn, Hún. 1835. Ógift heimasæta á Hæli á Ásum, A-Hún. 1853. Var þar 1860. Húskona í Kúskerpi, Höskuldsstaðarsókn, Hún. 1870. Vinnuhjú á Miðhúsum í Þingeyrasókn 1873. Vinnukona á Sveinsstöðum, Þingeyrasókn, Hún. 1880.
1) Jóhannes Frímannsson 1847 - 1880. Var á Hæl, Þingeyrarsókn, Hún. 1860. Vinnumaður á Sveinsstöðum, Þingeyrasókn, Hún. 1870. Var vinnumaður á Sveinsstöðum í Þingi frá 1870 til æviloka. Ókvæntur.
2) Frímann Jóhannes Frímannsson 28. júní 1863 Vinnumaður og húsmaður í Mýrarhúsum á Vatnsleysuströnd. Fluttist til Vesturheims. Kona hans Júlíana Guðmundsdóttir
Alsystkini Benedikts, samfeðra, móðir þeirra fyrri kona 1850; Guðrún Benjamínsdóttir 20. nóvember 1814 - 23. júlí 1878 Húsfreyja á Skeggjastöðum á Skagaströnd, A-Hún. Fyrri kona Frímanns Runólfssonar. „Guðrún var greindarkona og vel að sér“ segir í Skagf.1850-1890 V.;
1) Ingibjörg Oddný Frímannsdóttir Skardal f; 1850 - 1924 Húsfreyja á Illugastöðum í Laxárdal og síðar Breiðstöðum í Gönguskörðum, Skag. Fyrri maður hennar 18.5.1875; Sigurður Ólafsson 1838 - 8. nóvember 1879. Var í Hafragili á Laxárdal ytri, Skag. 1845. Bóndi á Illugastöðum í sömu sveit. Fórst með bátnum Hafrenningi norður og fram af Hvalneshöfða við Skaga.Seinni maður; Jón Jónsson f. 1860 - 1950. Bóndi á Breiðstöðum í Gönguskörðum, Skag. Var á Breiðstöðum 1860. Fór þaðan til Vesturheims 1887. Selkirk Manitoba.
2) Benjamín Frímannsson 16. ágúst 1851 Bóndi á Breiðavaði í Langadal, A-Hún. 1880. Var á Tindum í Svínadal 1881. Fór til Vesturheims 1887 frá Tindum, Svínavatnshr., A-Hún. Kona hans 11.12.1878; Ingiríður Jónasdóttir 14. desember 1846 - 3. júlí 1882. Vinnukona í Tindum, Svínavatnssókn, Hún. 1870. Húsfreyja á Breiðavaði í Langadal, A-Hún. Var á Breiðavaði, Holtastaðasókn, Hún. 1880.
3) Sigurbjörg Frímannsdóttir 14. október 1854 - 25. júní 1932 Tökustúlka á Auðunnarstaðarkoti, Víðidalstungusókn, Hún. 1860. Húsfreyja á Höllustöðum í Blöndudal og á Brún í Svartárdal, A-Hún. Fluttist til Vesturheims 1900. Maður hennar 30.10.1890; Jón Hannesson 2. febrúar 1864 - 7. janúar 1896. Bóndi á Höllustöðum í Blöndudal og Brún í Svartárdal, A-Hún.
Maki2; Sigríður Þórdís Jóhannesdóttir f. 31. október 1858 - 17. desember 1896 Vinnukona á Sauðárkróki 1890. Var á Brún og á Eiríksstöðum í Svartárdal, A-Hún.
Barn þeirra:
1) Helga Frímannsdóttir 14. desember 1896 - 29. júlí 1955. Húsfreyja í Hólmavík 1930. Húsfreyja á Hólmavík, Strand. Maður hennar Hjalti Einarsson 28. nóvember 1889 - 28. september 1952. Smiður í Hólmavík 1930. Trésmiður á Hólmavík og í Reykjavík.
Hálfsystkini Benedikts, sammæðra; faðir; Jón Jónsson 1795 - 7. ágúst 1868. Líklegast sá sem var fósturbarn í Brautartungu, Lundarsókn, Borg. 1801. Húsbóndi á Heggsstöðum, Kolbeinsstaðasókn, Hnapp. 1835. Lærður trésmiður.
1) Valgerður Jónsdóttir Nordal 29. júní 1841 - 19. júlí 1927 Húsfreyja á Gauksstöðum á Skaga, Skag. Fór til Vesturheims 1874 frá Vatnahverfi, Engihlíðarhreppi, Hún. Húsfreyja í Norðtunga, Geysir, Manitoba, Kanada. Maður hennar; Sigurður Guðmundsson Nordal 1844 - 5. apríl 1920. Bóndi á Gauksstöðum á Skaga, Skag. Fór til Vesturheims 1874 frá Vatnahverfi, Engihlíðarhr., Hún. Bóndi í Norðtunga, Geysir, Manitoba, Kanada.
2) Pétur Frans Sigurðsson 1844 - 1845. Var í fóstri á Kistu í Vesturhópi. Faðir hans; Sigurður Guðmundsson 1815 - 12. maí 1896. Var í Þórukoti, Víðidalstungusókn, Hún. 1816. Vinnumaður í Auðunnarstaðakoti, Víðidalstungusókn, Hún. 1835. Vinnuhjú á Þingeyrum, Þingeyrasókn, Hún. 1845. Bóndi á Geirastöðum, Þingeyrarsókn, Hún. 1860.
3) Þorgrímur Jónatansson 8. nóvember 1847 - 10. nóvember 1920. Bóndi á Neðra-Vatnshorni, Ytri-Kárastöðum, Kirkjuhvammssókn, Hún. og víðar. Var á Ytri Kárastöðum 1901. Faðir hans; Jónatan Davíðsson 1824 - 17. mars 1873. Vinnumaður á Hjallalandi, Undirfellssókn, Hún. 1845. Ókvæntur bóndasonur í hvarfi í Víðidal 1847. Bóndi í Marðarnúpi, Grímstungusókn, Hún. 1870. Hreppstjóri.
Kona Þorgríms var; Ásdís Guðmundsdóttir 1846 - 1882 Var í Gesthúsi, Reykjavík, Gull. 1870. Kona hans á Neðra-Vatnshorni, Víðidalstungusókn, Hún. 1880. Lést af barnsförum.
Sambýliskona Þorgríms; Guðrún Guðmundsdóttir 28. nóvember 1849 - 23. júlí 1931 Var í Nýjabæjarhjáleigu á Seltjarnarnesi, Gull. 1850. Var í Gesthúsum, Reykjavíkursókn, Gull. 1860. Vinnukona í Bygggarði, Reykjavík, Gull. 1870. Húsfreyja á Ytri-Kárastöðum, Kirkjuhvammssókn, Hún. 1901. Ekkja á Ásvallagötu 28, Reykjavík 1930.
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the spouse of
Benedikt Frímannsson (1853-1917)
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 14.11.2017
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði
Lögberg 22.11.1917.
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2191505