Ursula Elfriede Óskarsdóttir (1922-2008) Útibleiksstöðum

Original Stafræn eining not accessible

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Ursula Elfriede Óskarsdóttir (1922-2008) Útibleiksstöðum

Hliðstæð nafnaform

  • Ursula Elfriede Häfner (1922-2008) Útibleiksstöðum
  • Ursula Häfner (1922-2008) Útibleiksstöðum

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

30.4.1922 - 21.10.2008

Saga

Úrsúla Elfriede Óskarsdóttir, fædd Häfner fæddist í Eisenach í Thüringen-héraði í Þýskalandi 30. apríl 1922. Árið 1950 réð Úrsúla sig til starfa á Íslandi, sem barnfóstra á Blönduósi. Hún var húsmóðir á Útibleiksstöðum í Miðfirði áður en hjónin fluttust til Hveragerðis árið 1955. Úrsúla stofnaði tvisvar einkarekið dagheimili í Hveragerði og rak þau um nokkurra ára skeið. Lengst af, eða á annan áratug, starfaði Úrsúla á Heilsuhælinu NLFÍ í Hveragerði. Árið 2001 fluttu þau hjónin á dvalar- og hjúkrunarheimilið Ás í Hveragerði, en síðasta árið dvaldi Úrsúla á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Úrsúla verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13.
Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 21. október 2008.

Staðir

Eisenach í Thüringen-héraði í Þýskalandi: Blönduós: Útibleiksstaðir: Hveragerði:

Réttindi

Úrsúla stundaði hefðbundið tónlistar- og myndlistarnám frá unga aldri og lék á ýmis hljóðfæri, m.a. á píanó, gítar og harmóniku. Hún var lærð fóstra og starfaði við það í Þýskalandi en hóf auk þess nám í gullsmíði.

Starfssvið

Úrsúla stofnaði tvisvar einkarekið dagheimili í Hveragerði og rak þau um nokkurra ára skeið. Lengst af, eða á annan áratug, starfaði Úrsúla á Heilsuhælinu NLFÍ í Hveragerði.

Lagaheimild

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar hennar voru Emma Margarete Ella Häfner húsmóðir, fædd Messerschmidt, f. 1894, d. 1993 og Karl Julius Oscar Häfner útibússtjóri Deutsche Reichsbank í Eisenach, f. 1890, d. 1981.
Auk Úrsúlu áttu þau dótturina
1) Ingeborg, f. 1927, gift Günter Schaus og eru synir þeirra Ekkehart og Detlev.

Hinn 5. ágúst 1953 giftist Úrsúla Gunnlaugi Björnssyni, bóndasyni frá Litla-Ósi í Miðfirði, f. 18.5. 1922-5.10.2009. Starfaði á Heilsuhælinu í Hveragerði. Var á Litla-Ósi, Kirkjuhvammssókn, V-Hún. 1930. Foreldrar hans voru Björn Jónsson, bóndi og söðlasmiður á Litla- Ósi (1887-1966) og kona hans Jóhanna Gunnlaugsdóttir, húsfreyja (1887-1982).

Systkini hans eru:
1) Hildur Björnsdóttir Kærnested f. 27. nóvember 1916 - 31. janúar 2005 Verslunarmaður og síðar starfsmaður Útvegsbanka Íslands, siðast bús. í Reykjavík. Var í Ánanaustum c, Reykjavík 1930.
2) Jón Hörður Björnsson f. 11. nóvember 1917 - 27. febrúar 1990 Síðast bús. í Reykjavík. 3) Þorvaldur Björnsson . 24. september 1919 - 19. mars 2013 Bóndi á Litla-Ósi í Kirkjuhvammshreppi.
4) Ingibjörg Sesselja Björnsdóttir f. 11. janúar 1933

Börn þeirra eru:
1) Kolbrún Emma fóstra, f. 25.8. 1954, maki Sverrir Andrésson, stýrimaður, f. 1955, börn þeirra: a) Gunnlaugur Reynir f. 1979, börn hans Emilía Björk f. 2004 og Benedikt Einar, f. 2007, b) Sigrún, f. 1981, sonur hennar Ívar Atli, f. 2008, og c) Elfar Smári, f. 1988.
2) Ingibjörg Jóhanna framkvæmdastjóri, f. 11.5. 1956, maki Brynjólfur Jónsson skógfræðingur, f. 1957, börn þeirra eru Birkir Þór, f. 1989, Birta Rós, f. 1992, Úlfar Freyr, f. 1982, sonur Ingibjargar, og Eiríkur, f. 1983, sonur Brynjólfs.
3) Karl Óskar bifvélavirkjameistari, f. 12.9. 1960. Dætur hans og Lilju Guðnadóttur, f. 1952, eru Sandra, f. 1989 og Karen Sif, f. 1992.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Tengd eining

Hildur Björnsdóttir Kærnested (1916-2005) (27.11.1916 - 21.1.2005)

Identifier of related entity

HAH01435

Flokkur tengsla

fjölskylda

Dagsetning tengsla

1953 - ?

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Björn Jónsson (1887-1966) Ánastöðum á Vatnsnesi (15.11.1887 - 20.7.1966)

Identifier of related entity

HAH02849

Flokkur tengsla

fjölskylda

Dagsetning tengsla

1953 - ?

Lýsing á tengslum

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH02203

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ 26.7.2017

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Heimildir

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir