Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Tómas Guðmundsson (1886-1948) Hnjúkum
Hliðstæð nafnaform
- Tómas Guðmundsson Hnjúkum
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
8.2.1886 - 23.2.1948
Saga
Tómas Guðmundsson 8. feb. 1886 - 23. feb. 1948. Verkamaður á Laugavegi 72, Reykjavík 1930. Bóndi Hnjúkum 1920. Verkamaður á Kristjánshúsi [Sólheimar] Blönduósi 1910, síðar verkamaður í Reykjavík.
Staðir
Reykjavík; Hnjúkar; Kristjánshús [Sólheimar];
Réttindi
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hans; Vilhelmína Sigurðardóttir f. 22. júlí 1866 Bursthúsum Miðnesi, d. 8. nóv. 1949, barnlaus. Grænumýri 1933 og 1940 og barnsfaðir hennar; Guðmundur Vigfússon
- des. 1853 - 7. apríl 1927. Var í Hólmahjáleigu, Krosssókn, Rang. 1855. Bóndi á Nýlendu 1894 og bóndi í Gíslakoti, Austur-Eyjafjallahr., Rang. 1910.
Bf Vilhelmínu 22.8.1887; Jón Jóhannesson 7. júlí 1857 - 31. okt. 1939. Fósturbarn í Búfóti, Þingeyrarsókn, Hún. 1860. Vinnumaður í Kotvogi í Höfnum. Sjómaður í Suður-Gjáhúsum í Grindavík 1910 og í Hraungerði í Grindavík 1920.
Maður Vilhelmínu 19.6.1893; Jón Þorvaldsson f. 23. mars 1852 Spákonufellssókn, d. 3. ágúst 1914. Húsmaður á Litlu-Giljá. Bjó á Geirastöðum í Þingi.
Bróðir Tómasar sammæðra;
1) Jón Jónsson 22. ágúst 1887 - 1. jan. 1974. Útvegsbóndi í Junkaragerði, Miðneshr., Gull. 1920. Kona hans; Sigurlaug Guðmundsdóttir 2. nóv. 1898 - 23. júlí 1992. Var á Ragnheiðarstöðum, Hafnarhr. 1910 og 1930.og 1920, síðast bús. í Keflavík.
M1 5.6.1910; Jakobína Ingibjörg Jónsdóttir 13. jan. 1887 - 17. mars 1915. Kristjánshúsi Blönduósi 1910.
M2; Ósk Bjarnadóttir f. 28. maí 1883 Miðfirði, d. 10. jan 1938. Var á Vigdísarstöðum, Melstaðarsókn, Hún. 1890. Húsfreyja í Reykjavík 1930.
Börn hans;
Með fyrri konu;
1) Unnur Tómasdóttir Jensen 4. nóv. 1910 Kristjánshúsi Blönduósi - 29. júlí 1993. Þjónustustúlka á Laugavegi 72, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Sólheimum Blönduósi 1910. Maður hennar; Florent Engemauel Jensen 22. okt. 1909 - 7. sept. 1953. Bílstjóri í Reykjavík, var þar 1910, verkamaður þar 1945. Er nefndur Flórentíus Ingerman Jensen skv. Nt. Línu Dalrósar og Vík. og Almanaki.
Með seinni konu:
2) Jónína Ingibjörg Tómasdóttir Wilmot 23. apríl 1918 - 31. mars 1992. Var í Reykjavík 1930. Síðast bús. í Bretlandi.
3) Laufey Oktavía Tómasdóttir 16. okt. 1920 - 28. des. 2000. Var á Laugavegi 72, Reykjavík 1930. Maður hennar; Björgvin Halldórsson 19. apríl 1920 - 15. apríl 2010. Var á Geirmundarstöðum, Staðarsókn, Strand. 1930. Vegagerðarmaður og sjálfstæður atvinnurekandi í Reykjavík.
Almennt samhengi
Unnur Tómasdóttir Jensen Minning Fædd 4. nóvember 1910 Dáin 29. júlí 1993. Það datt mér ekki í hug þegar ég kvaddi vinkonu mína Unni 1. júlí á stéttinni heima í Litlu-Sandvík eftir níu daga dvöl hjá mér að við værum að kveðjast í síðasta sinn. Hún virtist svo heilbrigð og sæl á meðan heimsókn hennar stóð. En viku eftir heimkomu hennar veiktist hún og var flutt sárþjáð á spítala og átti þaðan ekki afturkvæmt.
Unnur Tómasdóttir Jensen var fædd 4. nóvember 1910 á Blönduósi. Foreldrar hennar voru Tómas Guðmundsson af sunnlenskum ættum og Ingibjörg Jónsdóttir Árnasonar í Múla í Línakradal. Móðir Tómasar Guðmundssonar var Vilhelmína Sigurðardóttir Ólafssonar þjóðhagasmiðs, bónda og sýslunefndarmanns í Merkinesi í Höfnum. Sigurður í Merkinesi og Ólafur Ólafsson bæjarfulltrúi og dannebrogsmaður í Reykjavík voru bræður af Víkingslækjarætt. Unnur missti kornung móður sína, en eignaðist skömmu síðar góða stjúpmóður og þrjár hálfsystur.
Fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur þegar Unnur var um fermingaraldur. Hún var því ein af dætrum Reykjavíkur sem gengu um Austurstræti snemma á öldinni, áður en bílar geystust um götur borgarinnar. Ung fór Unnur í vist að Rauðará til Sigrúnar og Þorláks. Síðar gegndi hún ýmsum þjónustustörfum á Hótel Borg. Þar vann þá Flórentínus Jensen sem þjónn. Þau giftust þegar Unnur var tvítug að aldri. Tvö börn eignuðust þau; Ingiberg Viggó og Mörtu, þau hafa gifst og eiga fjölskyldur. Mann sinn missti Unnur þegar börn hennar voru ung.
Þá fór hún að vinna úti - áður heimavinnandi húsmóðir. Meðal starfa utan heimilis var aðstoð við gestamóttöku á heimilum.
Í mars 1941 kom Unnur hingað ásamt eiginmanni sínum og ungum syni. Fengu þau leigð tvö lítil herbergi fram að slætti. Flórentínus átti vörubíl og hafði þá vinnu hjá hernum í Kaldaðarnesi. Síðar hefur kunningsskapur og vinátta okkar Unnar haldist. Á síðari árum kom hún árlega til mín í vikudvöl, mikill aufúsugestur. Unnur bjó yfir mikilli skaphöfn, gerði kröfur til sín og annarra, var trygglynd og hafði blíða og aðlaðandi framkomu. Hún var mjög hreinleg og myndarleg húsmóðir á öllum sviðum. Fallegt var heimili hennar í Hraunbænum sem ógleymanlegt var þeim sem þar litu inn. Ég átti vináttu hennar í hálfa öld og einnig fjölskylda mín. Ég votta samúð mína börnum hennar og fjölskyldum þeirra.
Aldís Pálsdóttir, Litlu-Sandvík.
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 24.6.2019
Tungumál
- íslenska