Þorbjörg Halldórsdóttir (1885-1970) Réttarholti

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Þorbjörg Halldórsdóttir (1885-1970) Réttarholti

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        7. maí 1885 - 30. júní 1970

        History

        Var á Finnstöðum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Var í Réttarholti, Höfðahr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Höfðahreppi.

        Places

        Legal status

        Functions, occupations and activities

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        Þorbjörg Halldórsdóttir frá Réttarholti í Höfðahreppi andaðist 30. júní á H.A.H. — Hún var fædd 7. maí 1885 á Bergsstöðum í Svartárdal. Foreldrar: Halldór Tryggvi Halldórsson og kona hans, Ingibjörg Bjarnadóttir, er voru í húsmennsku hjá sr. Stefáni M. Jónssyni á Bergsstöðum og síðan hjá honum á Auðkúlu. Ólst Þorbjörg Halldórsdóttir upp með foreldrum sínum, en frá 10 ára aldri var hún á Syðri-Ey hjá Birni Árnasyni og konu hans, Þóreyju Jónsdóttur, og fór síðan á Kvennaskólann á Blönduósi. Enda bar Þorbjörg Halldórsdóttir ávallt með sér gott uppeldi og mikla reglusemi í húshaldi öllu. Þótt eigi væru háreistir salir í hennar ranni, kom það eigi að sök, því að sá glæsibragur er snyrtimennska gaf og hagsýni innanbæjar, er kom fólki í gott skap, ásamt hlýju og hógværu viðmóti, fylgdi henni. Þorbjörg giftist 15. júlí 1916 Jóni Sölvasyni, er andaðist 17. Ágúst 1969. Þau hjón bjuggu lengst af í Réttarholti, er hefur verið nyrzta býlið undir Spákonufellshöfða. Er þar oft harðviðrasamt og snjóþungt. En þó var iðjagrænt tún þar og blómagarður fallegur við bæinn. Þau hjón voru dugandi fólk og hagsýn og hlutirnir fóru eigi í súginn hjá þeim. Þorbjörg var söngelsk og bókhneigð og unni kveðskap. Hún mátti oft leggja mikið á sig, er maður hennar varð að dvelja að heiman. Þau hjón fluttust á Ellideild Héraðshælisins á Blönduósi 1958. Var til þeirra gott að koma og sá ánægjublær yfir herbergi þeirra, þrunginn lífsgleði, sem alls staðar er eigi að finna.

        Börn þeirra hjóna eru:

        1. Björgvin Theodór Jónsson 22. febrúar 1921 - 4. maí 1992 Framkvæmdastjóri og síðar skrifstofumaður á Skagaströnd og síðar á Akureyri. Var á Finnstöðum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Var á Höfðabrekku 1, Höfðakaupstað , A-Hún. 1957. Síðast bús. á Akureyri., kvæntur Þorgerði Guðmundsdóttur,

        2. Þórbjörn Austfjörð Jónsson 19. nóvember 1917 - 22. janúar 1996 Sjómaður, smiður og verkamaður, fyrst á Skagaströnd, síðar í Reykjavík. Var á Finnstöðum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Var á Flankastöðum, Höfðahr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Reykjavík kona hans; Guðrún Anna Guðmunda Árnadóttir 18. júlí 1921 - 26. janúar 2017 Var í Kringlu, Blönduósssókn, A-Hún. 1930. Var á Flankastöðum, Höfðahr., A-Hún. 1957. Fiskverkakona, handavinnukennari og saumakona á Skagaströnd, síðar skólastarfsmaður í Reykjavík.

        3. Benedikt Jens Jónsson 22. janúar 1927 - 7. desember 1975 Var á Finnstöðum, Hofssókn, A-Hún. 1930. Skipstjóri í Reykjavík. Kona hans; Hlín Hulda Kristensen 1. september 1922 - 28. apríl 1984 Var í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Jón Sölvason (1889-1969) Réttarholti (10.12.1889-17.08.1969)

        Identifier of related entity

        HAH05601

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Jón Sölvason (1889-1969) Réttarholti is the spouse of Þorbjörg Halldórsdóttir (1885-1970) Réttarholti

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Björgvin Theodór Jónsson (1921-1992) frá Finnstöðum, Hofssókn (22.2.1921 - 4.5.1992)

        Identifier of related entity

        HAH02764

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Björgvin Theodór Jónsson (1921-1992) frá Finnstöðum, Hofssókn is the child of Þorbjörg Halldórsdóttir (1885-1970) Réttarholti

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Þórbjörn Austfjörð Jónsson (1917-1996) Flankastöðum Skagaströnd (19.11.1917 - 22.1.1996)

        Identifier of related entity

        HAH05853

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Þórbjörn Austfjörð Jónsson (1917-1996) Flankastöðum Skagaströnd is the child of Þorbjörg Halldórsdóttir (1885-1970) Réttarholti

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH09011

        Institution identifier

        HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        MÞ 04.04.2024

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Sources

          Húnavaka árg. 1971;
          Húnavaka árg. 1970;
          Íslendingabók

          Maintenance notes