Sveinn Þórðarson (1913-2007) frá Kleppi

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Sveinn Þórðarson (1913-2007) frá Kleppi

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        13.1.1913 - 13.3.2007

        History

        Sveinn Þórðarson fæddist á Kleppi 13. janúar 1913. Hann lést á heimili dóttur sinnar í Red Deer, Alberta í Kanada 13. mars sl. Sveinn var mikill fjölskyldumaður, naut sín best í gönguferðum, á skíðum og í útilegum með börnum og barnabörnum. Hann las mikið og hlustaði á sígilda tónlist.
        Minningarathöfn um Svein verður haldin í Eventide Funeral Chapel, 4820 – 45 street, Red Deer, Alberta, þriðjudaginn 20. mars kl. 11 f.h. Vilji menn minnast hans er bent á Canadian Cancer Society, Red Deer Unit, 4730 Ross Street. Samúðarkveðjur má senda fjölskyldunni á síðuna www.eventidefuneralchapels.com.
        Sveinn verður jarðsettur í Tindastóls-kirkjugarði við Markerville í Alberta.

        Places

        Kleppur Reykjavík.

        Legal status

        Sveinn varð stúdent frá MR 1931, stundaði nám við HÍ, háskólann í Kaupmannahöfn og háskólann í Jena og lauk doktorsprófi þaðan í eðlisfræði, stærðfræði og efnafræði 1939. Löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi í þýsku 1952.

        Functions, occupations and activities

        Kennari við MA febrúar 1939–52, skólameistari ML 1952–59. Flutti til Kanada 1959. Kenndi í Abbotsford, Fairview og Grande Prairie áður en hann kom til LTCHS. Árið 1964 varð hann prófessor í eðlisfræði við háskólann í Red Deer. Hann fór á eftirlaun 1983. Sveinn stundaði svarðarrannsóknir á Norður- og Austurlandi á vegum Rannsóknarráðs ríkisins sumrin 1939 og 1940 og efnafræðistörf á vegum Síldarverksmiðju ríkisins nokkurn tíma á sumrin frá 1943. Hann var í skíðaráði á Akureyri í nokkur ár og í stjórn Skíðasambands Íslands frá 1947, ennfremur löggiltur skíðadómari 1948. Í stjórn Stúdentafélags Akureyrar var hann öðru hverju og ritstjóri Náttúrufræðingsins 1945–46.

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar hans voru Þórður Sveinsson, yfirlæknir og prófessor, f. 20.12. 1874, d. 21.11. 1946, og kona hans Ellen Johanne Kaaber, f. 9.9. 1888, d. 24.12. 1974. Foreldrar Þórðar voru Sveinn Pétursson, bóndi á Geithömrum, og k.h. Steinunn Þórðardóttir, bónda á Ljótshólum í Svínadal. Foreldrar Ellenar voru Jens Ludvig Joachim Kaaber, framkvæmdastjóri í Kaupmannahöfn, og kona hans Sara, f. Hermann.
        Systkini Sveins eru
        1) Hörður Þórðarson Sveinsson 11. desember 1909 - 6. desember 1975 Sparisjóðsstjóri. Var í Reykjavík 1910. Stud. jur. á Kleppsspítala eldri, Reykjavík 1930.
        2) Úlfar Þórðarson 2. ágúst 1911 - 28. febrúar 2002 Augnlæknir, síðast bús. í Reykjavík. Læknir í Reykjavík 1945.
        3) Nína Thyra Þórðardóttir 27. janúar 1915 - 25. júlí 2004 Var í Reykjavík 1930. Tannsmiður og húsfreyja í Reykjavík. Síðast bús. í Reykjavík, maður hennar Trausti Sigurður Einarsson 14. nóvember 1907 - 26. júlí 1984 Var með foreldrum á Löndum 3, Vestmannaeyjasókn 1910. Prófessor í eðlisfræði við Háskóla Íslands. Síðast bús. í Reykjavík.
        4) Agnar Þórðarson 11. september 1917 - 12. ágúst 2006 Skáld, rithöfundur og bókavörður hjá Landsbókasafninu, síðast bús. í Reykjavík.
        5) Gunnlaugur Einar Þórðarson 14. apríl 1919 - 20. maí 1998 Var á Kleppsspítala eldri, Reykjavík 1930. Hæstaréttarlögmaður í Reykjavík.
        6) Sverrir Friðþjófur Þórðarson 29. mars 1922 - 7. janúar 2013 Var á Kleppsspítala eldri, Reykjavík 1930. Blaðamaður og fréttaritari í Reykjavík.

        Kona Sveins var Þórunn Jónassen Hafstein, f. 23.8. 1912, d. 16.8. 1998, dóttir Marinó Jakob Hafstein 9. ágúst 1867 - 6. júlí 1936 Kennslupiltur á Reynistað, Reynistaðarsókn, Skag. 1880. Fv. sýslumaður á Svarfhóli, Stafholtssókn, Mýr. 1930. Sýslumaður á Ísafirði og í Strandasýslu og k.h. Þórunn Eyjólfsdóttir 19. febrúar 1877 - 1. október 1961 Húsfreyja á Ísafirði og Borðeyri. Húsfreyja á Laugavegi 46, Reykjavík 1930.
        Börn:
        1) Marinó Hafstein, f. 5.12. 1941, starfsmaður Landsbankans, kvæntur Svanhildi Alexandersdóttur, flugfreyju.
        Dætur þeirra: a. Þórunn Björg, í sambúð með Stefáni Viðarssyni, b. Elín Dís. Synir Marinós frá fyrra hjónabandi: a. Sveinn, búsettur í Noregi, b. Sverrir, búsettur í Svíþjóð.
        2) Þórður, viðskiptafræðingur, verktaki malbikunarfyrirtækis, f. 13.12. 1945, k. Mona Billey Thordarson, tannlæknir. Börn: a. Nyja, b. Sando, c. Kara, d. Layla.

        1. Ellen Nína Ingólfsson, starfsmaður elliheimilis, f. 3.1. 1949, var gift Erni Ingólfssyni sem er látinn. Dætur: a. Þórunn Jóhanna, b. Ragnheiður Katrín, c. Ingibjörg Rós, d. Elín Sólveig.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Úlfar Þórðarson (1911-2002) augnlæknir (2.8.1911 - 28.2.2002)

        Identifier of related entity

        HAH02105

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Úlfar Þórðarson (1911-2002) augnlæknir is the sibling of Sveinn Þórðarson (1913-2007) frá Kleppi

        Dates of relationship

        10.1.1913

        Description of relationship

        Related entity

        Hörður Þórðarson (1909-1975) sparisjóðsstjóri Rvk (11.12.1909 - 6.12.1975)

        Identifier of related entity

        HAH07402

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Hörður Þórðarson (1909-1975) sparisjóðsstjóri Rvk is the sibling of Sveinn Þórðarson (1913-2007) frá Kleppi

        Dates of relationship

        10.1.1913

        Description of relationship

        Related entity

        Þóra Þorsteinsdóttir (1908-2000) frá Grund (19.9.1908 - 16.8.2000)

        Identifier of related entity

        HAH02166

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Þóra Þorsteinsdóttir (1908-2000) frá Grund is the cousin of Sveinn Þórðarson (1913-2007) frá Kleppi

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Þórður læknir faðir Sveins var bróðir Ragnhildar móður Þóru

        Related entity

        Þórður Sveinsson (1874-1946) geðlæknir Rvk frá Geithömrum (20.12.1874 - 21.11.1946)

        Identifier of related entity

        HAH07395

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Þórður Sveinsson (1874-1946) geðlæknir Rvk frá Geithömrum is the parent of Sveinn Þórðarson (1913-2007) frá Kleppi

        Dates of relationship

        10.1.1913

        Description of relationship

        Related entity

        Ellen Johanne Kaaber Sveinsson (1888-1974) (9.9.1888 - 24.12.1974)

        Identifier of related entity

        HAH03280

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Ellen Johanne Kaaber Sveinsson (1888-1974) is the parent of Sveinn Þórðarson (1913-2007) frá Kleppi

        Dates of relationship

        10.1.1913

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH02069

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 1.8.2017

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes