Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Sigurlaug Steinunn Guðmundsdóttir (1942-2011)
Parallel form(s) of name
- Sigurlaug Steinunn Guðmundsdóttir (1942-2011) frá Jörfa í Víðidal
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
20.7.1942 - 19.4.2011
History
Sigurlaug Steinunn Guðmundsdóttir frá Jörfa í Víðidal, fæddist í Nípukoti í Víðidal 20. júlí 1942. Hún lést af slysförum 19. apríl 2011. Steinunn ólst upp í NípukotiHún hóf búskap með manni sínum á Jörfa árið 1960, þar sem hún bjó til dauðadags. Fyrstu árin tók búskapur og barnauppeldi allan hennar tíma, vinnudagarnir langir við bæði útiverk og heimilisstörf. Eftir að Ægir sonur Steinunnar og Stella kona hans tóku við kúabúskap á Jörfa byggðu þau Jóhannes nýtt íbúðarhús samtýnis eldra húsi, þar sem barnabörn nutu ástúðar og góðs atlætis, og gestum og gangandi var ávallt veittur góður beini.
Útför Steinunnar fer fram frá Víðidalstungukirkju í dag, 29. apríl 2011, og hefst athöfnin kl. 13.
Places
Nípukot og Jörfi í Víðidal 1960:
Legal status
Stundaði barnaskólanám við farskóla í Víðidal og stundaði nám við Kvennaskólann á Blönduósi veturinn 1959-1960.
Functions, occupations and activities
Seinna hóf hún þátttöku í félagsmálum þar sem eðlislæg atorka og samviskusemi Steinunnar nýttist vel. Hún var virk í starfi Kvenfélagsins Freyju þar sem hún var formaður á árunum 1989-1995. Áhugi hennar á tónlist fékk útrás við þátttöku í kirkjukór Víðidalstungukirkju frá stofnun, auk söngnámskeiða og ferðalaga tengdra söng kórsins. Steinunn var einnig virk í Ungmennafélaginu Víði, þar sem hún aðstoðaði við skemmtanahald og aðra atburði í félagslífi sveitarinnar. Þegar prjónastofan Borg var sett á stofn til þess að auka fjölbreytni í atvinnulífi sveitarinnar, og var rekin í félagsheimilinu Víðihlíð, hóf Steinunn störf þar og vann um árabil með öðrum konum í sveitarfélaginu. Seinna vann hún við saumastörf á Hvammstanga og í saumastofu í Skólahúsi í Þingi, auk afgreiðslustarfa í Víðigerði í Víðidal. Meðfram önnum við vinnu og áhugamál sinnti Steinunn ætíð búi og heimili með elju og alúð.
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
Hún var dóttir Guðmundar Jósefssonar, f. 1.3. 1898, d. 8.9. 1966, bónda, og Hrefnu Hinriksdóttur, f. 26.12. 1901, d. 30.10. 1979, saumakonu og húsfreyju.
Systur Steinunnar eru Ingibjörg, f. 3.5. 1932, Brynhildur, f. 20.8. 1933, d. 19.11. 1988, og Aðalheiður, f. 15.9. 1943.
Steinunn giftist þann 15.7. 1962 Jóhannesi Ragnarssyni, f. 29.9. 1929 á Ísafirði. Foreldrar Jóhannesar voru Ragnar Benediktsson skipstjóri á Ísafirði, f. 23.3. 1899, d. 18.2. 1941, og Guðrún Hjaltadóttir húsmóðir, f. 24.6. 1903, d. 27.1. 1995.
Þau eignuðust þrjá syni.
1) Hjalti, f. 8.12. 1961, búsettur í Hafnarfirði, kona hans er Ingunn Lena Bender, f. 7.6. 1960. Þeirra börn eru a) Steinunn Ýr, f. 9.8. 1988, og b) Guðni Jóhannes, f. 19.9. 1991. Uppeldisdóttir Hjalta er c) Birgitta Dögg Þrastardóttir, f. 13.10. 1982.
2) Guðmundur Hrafn, f. 9.11. 1963, búsettur í Kanada, kona hans er Goretty Dias, f. 7.3. 1967, sonur þeirra er a) Brandur Damian, f. 4.9. 2000, uppeldissonur Guðmundar er b) Aidan Thomas Obbema, f. 24.10. 1994.
3) Ægir Jóhannesson, f. 30.10. 1967, bóndi á Jörfa, kona hans er Stella Jórunn A. Levy, f. 20.3. 1975, börn þeirra eru a) Ragnar Bragi, f. 2.3. 1996, b) Agnar Ási, f. 6.10. 1999, og c) Jenný Dögg, f. 14.5. 2002.
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the parent of
Sigurlaug Steinunn Guðmundsdóttir (1942-2011)
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the parent of
Sigurlaug Steinunn Guðmundsdóttir (1942-2011)
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the parent of
Sigurlaug Steinunn Guðmundsdóttir (1942-2011)
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the sibling of
Sigurlaug Steinunn Guðmundsdóttir (1942-2011)
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
is the sibling of
Sigurlaug Steinunn Guðmundsdóttir (1942-2011)
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 24.7.2017
Language(s)
- Icelandic