Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Sigurgeir Magnússon (1913-2007) Blönduósi
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
27.9.1913 - 5.8.2007
Saga
Sigurgeir Magnússon fæddist á Hvalsá í Kirkjubólshreppi í Strandasýslu hinn 27. september árið 1913. Hann lést í Hrafnistu í Hafnarfirði hinn 5. ágúst 2007.
Sigurgeir ólst upp hjá og í skjóli móður sinnar og var á æskuárum á hinum ýmsu bæjum í Strandasýslu og á Hólmavík. Hann var í tvö ár sem ungur maður við bústörf og kennslu í Hvammi í Vatnsdal.
Hann flutti síðan til Reykjavíkur snemma á fjórða áratugnum og lærði þar húsgagnasmíði og vann við smíðar þar og á Blönduósi en þar bjó fjölskyldan frá 1942-1962. Eftir að Sigurgeir kom til Reykjavíkur á ný, vann hann m.a. við verslun, hjá Sundlaugum Reykjavíkur og sem kirkjuvörður í Fella- og Hólakirkju. Sigurgeir tók þátt í félagsmálum og verkalýðsmálum, söngstarfi og hann lék mörg hlutverk með Leikfélagi Blönduóss. Hann var ritfær, var félagi í Rithöfundafélaginu og gaf út þrjár bækur og birti margar greinar í tímaritum. Sigurgeir hafði mikla ánægju af hestum og var þekktur hestamaður.
Útför Sigurgeirs var gerð frá Fella- og Hólakirkju 21.8.2007 og hófst athöfnin klukkan 15.
Staðir
Hvalsá í Kirkjubólshreppi: Reykjavík og aftur 1962: Samkomuhúsið Blönduósi 1942-1962:
Réttindi
Hann flutti síðan til Reykjavíkur snemma á fjórða áratugnum og lærði þar húsgagnasmíði
Starfssvið
Hann var í tvö ár sem ungur maður við bústörf og kennslu í Hvammi í Vatnsdal. Vann við smíðar þar og á Blönduósi en þar bjó fjölskyldan frá 1942-1962. Eftir að Sigurgeir kom til Reykjavíkur á ný, vann hann m.a. við verslun, hjá Sundlaugum Reykjavíkur og sem kirkjuvörður í Fella- og Hólakirkju. Sigurgeir tók þátt í félagsmálum og verkalýðsmálum, söngstarfi og hann lék mörg hlutverk með Leikfélagi Blönduóss.. Sigurgeir hafði mikla ánægju af hestum og var þekktur hestamaður.
Lagaheimild
Hann var ritfær, var félagi í Rithöfundafélaginu og gaf út þrjár bækur og birti margar greinar í tímaritum.
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hans voru; Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja og starfskona við Sjúkraskýlið á Hólmavík, f. 1876, d. 1937 og Magnús Jónsson bóndi á Kollafjarðarnesi og Hvalsá í Kirkjubólshreppi í Strandasýslu, f. 1872, d. 1915.
Systkini Sigurgeirs voru:
1) Vilborg Magnúsdóttir 11. júlí 1901 - 12. okt. 1977. Húsfreyja á Krossárbakka, Óspakseyrarsókn, Strand. 1930. Húsfreyja í Hvammi í Hvammshr., Dal. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík.
2) Hjörtur Lúðvík Magnússon 12. sept. 1902 - 19. júlí 1904
3) Þorbjörg Magnúsdóttir 15. ágúst 1904 - 1. júní 1922
4) [Jón] Haraldur Magnússon 11. mars 1906 - 20. apríl 1929. Sjómaður
5) Sigurgeir Magnússon 6. maí 1907 - 22. mars 1908.
6) Jófríður Magnúsdóttir 1. ágúst 1908 - 30. júlí 1939. Var á Krossárbakka, Óspakseyrarsókn, Strand. 1930.
7) Þórdís Magnúsdóttir 17. jan. 1910 - 23. mars 1935. Var á Krossárbakka, Óspakseyrarsókn, Strand. 1930.
8) Sólveig Kristbjörg Magnúsdóttir 28. okt. 1911 - 22. okt. 1965. Vinnukona á Krossárbakka, Óspakseyrarsókn, Strand. 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945.
Hinn 11. desember árið 1937 kvæntist Sigurgeir Kristínu Jóhönnu Guðmundsdóttur frá Blönduósi 30. mars 1918 - 30. desember 1987 Var á Blönduósi 1930. Var í Hreppshúsinu, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Reykjavík, húsmóður og starfsmanni Pósts og síma, f. 30.3. 1918, d. 30.12. 1987. Foreldrar hennar voru Sigurunn Þorfinnsdóttir húsmóðir og saumakona, f. 1898, d. 1974 og Guðmundur Agnarsson, vegaverkstjóri og kjötmatsmaður, f. 1898, d. 1969. Bræður hennar voru Agnar Bragi (1919-1989) og Sigþór (1931-2008)
Börn Sigurgeirs og Kristínar Jóhönnu eru sjö. Þau eru:
1) Magnús, f. 23.8. 1937, d. sama dag.
2) Sigurbjörg Bára, f. 1938, gift Vagni Gunnarssyni. Börn þeirra: Sigurgeir, maki Elísabet Björg Gunnarsdóttir. Fyrri maki hans Gréta Ólafsdóttir, d. 1995. Gunnar Erling, maki Sigrún Hauksdóttir. Kristinn Þröstur, maki Guðný Sigurðardóttir. Elma, maki Karl Andreassen. Sólveig Kristbjörg, maki Ólafur Þórðarson.
3) Sævar Frímann, f. 1940, d. 1999, kvæntur Marsý Dröfn Jóndóttur, f. 1941, d. 2002. Börn þeirra: Ingi Hlynur, maki Guðbjörg Helga Birgisdóttir, Kristín Valborg, maki Jón Rúnar Einarsson og Jón Geir, maki Kristbjörg Harðardóttir.
4) Ægir Frímann, f. 1945. Börn hans og Jóhönnu Sigríðar Ólafsdóttur: Hafdís Hanna, maki Gunnar Þór Gunnarsson og Sigurgeir Árni, maki Björg Kristín Ragnarsdóttir.
5) Hrönn, f. 1947, gift Hrólfi Sæberg Jóhannessyni 5.10.1943. Börn þeirra Svanhvít Birna, maki Bjarki H. Diego og Hannes Frímann, maki Marín Manda Magnúsdóttir.
6) Friðrik Ósfjörð, f. 1949, kvæntur Hólmfríði Karlsdóttur. Börn hennar Anna Sigríður og Karl Magnús. Börn Friðriks og Erlu Sighvatsdóttur: Sigrún, maki Karl Karlsson og Thelma Björk, maki Rafnar Hermannsson. Ómar Örn, maki Inga Birna Ragnarsdóttir.
7) Þórdís, f. 1957, gift Eyjólfi Baldurssyni. Börn þeirra: Hómfríður Rós, maki Björn Ingi Hrafnsson, Erla Eir, maki Michael Sheehan, Baldur Kári, unnusta Sunna Dóra Sigurjónsdóttir.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er barn
Sigurgeir Magnússon (1913-2007) Blönduósi
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 22.7.2017
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði
Íslendingabók
mbl 21.8.2007. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1160921/?item_num=2&searchid=f176a47675e50fb605adc84b2087013d6ac92d42
Athugasemdir um breytingar
Stafræn eining metadata
Aðgengi
Heiti skjals
Sigurgeir_Magnsson1913-2007Blndu__si.jpg
Latitude
Longitude
Gerð miðla
Mynd
Mime-type
image/jpeg