Sigfús Blöndal Halldórsson (1891-1968) ritstjóri Heimskringlu, skólastjóri Akureyri 1930

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Sigfús Blöndal Halldórsson (1891-1968) ritstjóri Heimskringlu, skólastjóri Akureyri 1930

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        27.12.1891 - 10.8.1968

        History

        Sigfús Blöndal Halldórsson 27.12.1891 - 10.8.1968. Var í Höfnum, Hofssókn, Hún. 1901. Var í Reykjavík 1910. Skólastjóri og skrifstofumaður. Ritstjóri Heimskringlu í Winnipeg. Skólastjóri á Akureyri 1930. Nefndur Sigfús Halldórs frá Höfnum. Hann andaðist 10. ágúst 1968 að Vífílsstöðum. Hann var fæddur 27. desember 1891 að Þingeyrum. Einkabarn

        Places

        Legal status

        Stúdent og las um hríð við Hafnarháskóla.

        Functions, occupations and activities

        Sigfús Halldórs ólst upp um árabil hjá frændfólki sínu í Höfnum. Hann var stúdent og las um hríð við Hafnarháskóla. Hann var manna víðförlastur, dvaldi um árabil í Austurlöndum og um fjölda ára í Kanada. Hann lagði gjörva hönd á margt um dagana, enda maður vel gefinn, sem hann átti kyn til. Umsjónarmaður á togleðursekrum á Malakkaskaga, ritstjóri vestan hafs og austan, skólastjóri á Akureyri og skrifstofumaður í Reykjavík. Hann var félagslyndur og söngmaður góður. Um skeið form. Húnvetningafélagsins í Reykjavík.

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar hans; Halldór Árnason Anderson 28. júní 1865 - 5. jan. 1959 Winnipeg. Var í Höfnum, Hofssókn, Hún. 1870. Sonur bónda á Höfnum, Hofssókn, Hún. 1880. Stúdent og sýsluskrifari í Hún. Fór til Vesturheims 1901 frá Blönduósi, Torfalækjarhreppi, Hún. og fyrri kona hans; Þuríður Ragnheiður Sigfúsdóttir 25. sept. 1851 - 21. okt. 1906. Var á Tjörn, Tjarnarsókn, Hún. 1860. Húsfreyja í A-Hún. Skagaströnd 1901, virðist ekki hafa farið út með manni sínum og því líklegt að þau hafi skilið, Pálína er með sam skipinu vestur um haf.
        Seinni kona 1907; Pálína Rósa Sigurðardóttir Anderson 22. ágúst 1867 - 26.6.1935. Var á Mársstöðum, Undirfellssókn, Hún. 1870. Tökubarn á Öxl, Þingeyrasókn, Hún. 1880. Fór til Vesturheims 1901 frá Blönduósi, Torfalækjarhreppi, Hún.

        Kona hans 1930; Þorbjörg Helgadóttir Bjarnarsonar f. 1890, vestur-íslensk. Foreldrar hennar Björn Björnsson (1848-1927) og Guðný Vilhelmína Einarsdóttir (1855-1917). Systkini hennar; Einar Gísli Jóhannes (1879-1966), Geir (1880-1958), Guðmundur Halldópr (1882-1910), Jónína 1886, Hermann 1892, og María 1894. 3 elstu börnin eru fædd á Íslandi frá Grashól Þingeyjarsýslu.
        Börn þeirra;
        1) Þuríður Blöndal Halldórsson
        2) Halldór Blöndal Halldórsson

        General context

        Bálför hans fór fram i Reykjavík 20. ágúst 1968. Kaus hann leg sínum jarðnesku líkamsleifum í Hofskirkjugarði í Skagahreppi, en í Hofskirkju var hann fermdur. Því þótt lengst af ævinni hefði hann dvalið fjarri sínum bernskustöðvum, stefndi hugur hans mjög norður í Húnaþing. Var duftkeri hans fengið leg í reit þeirra Hafnarmanna að kórbaki við Hofskirkju. Fór sú athöfn fram 14. september 1968, fagran og kyrran haustdag um miðaftanleytið. Voru þar viðstaddir ástvinir hans og frændfólk úr Reykjavík, ásamt þeim vildarklerkum sr. Benjamín Kristjánssyni og sr. Jóni Guðnasyni, er flutti hugljúfa ræðu í garðinum. Þá voru þar og sóknarprestur og búendur í Hofssókn. Drukku menn síðan erfi að gamalli siðvenju út í Höfnum. Sigfús Halldórs bar mjög einkenni ættar sinnar, sem ósvikinn niðji þeirra Hafnarmanna. Sigfús Halldórs kvæntist 1930 Þorbjörgu Helgadóttur, ágætri vestur-íslenzkri konu, er lifir mann sinn ásamt börnum þeirra.

        Relationships area

        Related entity

        Þorbjörg Bjarnadóttir (1873-1960) Saskatchewan og Grand Fork N Dakota (10.2.1873 - 6.3.1960)

        Identifier of related entity

        HAH09384

        Category of relationship

        family

        Dates of relationship

        1930

        Description of relationship

        Sigfús var maður Þorbjargar fóstur og bróðurdóttur hennar

        Related entity

        Pálína Rósa Sigurðardóttir (1867) fór vestur um haf 1901 frá Blönduósi (22.8.1867 -)

        Identifier of related entity

        HAH07190

        Category of relationship

        family

        Dates of relationship

        16.2.1907

        Description of relationship

        Stjúpsonur

        Related entity

        Þingeyrar ((1000))

        Identifier of related entity

        HAH00274

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        27.12.1891

        Description of relationship

        fæddur þar

        Related entity

        Hafnir á Skaga ((1950))

        Identifier of related entity

        HAH00284

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Barn þar 1901

        Related entity

        Halldór Árnason (1865-1959) Vesturheimi, frá Höfnum á Skaga (28.6.1865 - 5.1.1959)

        Identifier of related entity

        HAH04636

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Halldór Árnason (1865-1959) Vesturheimi, frá Höfnum á Skaga is the parent of Sigfús Blöndal Halldórsson (1891-1968) ritstjóri Heimskringlu, skólastjóri Akureyri 1930

        Dates of relationship

        27.12.1891

        Description of relationship

        Related entity

        Þuríður Sigfúsdóttir (1851-1906) Hjallalandi (25.9.1851 - 21.10.1906)

        Identifier of related entity

        HAH06777

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Þuríður Sigfúsdóttir (1851-1906) Hjallalandi is the parent of Sigfús Blöndal Halldórsson (1891-1968) ritstjóri Heimskringlu, skólastjóri Akureyri 1930

        Dates of relationship

        27.12.1891

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH06778

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 1.11.2020

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Sources

          ®GPJ ættfræði
          Íslendingabók
          sjá Föðurtún bls. 18, 260, 279.
          Mannalát árið 1968. – Húnavaka, 1. tölublað (01.05.1969), Bls. 151-164. http://timarit.is/view_page_init.jsp?gegnirId=000556346
          Lögberg, 4. tölublað (22.01.1959), Blaðsíða 5. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2209352

          Maintenance notes