Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Rósa Benediktsdóttir (1936-2018) frá Kirkjubóli í Strandasýslu.
Hliðstæð nafnaform
- Rósa Jónída Benediktsdóttir (1936-2018)
- Rósa Jónída Benediktsdóttir
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
16.6.1936 - 19.18.2018
Saga
Hún fæddist á Lækjargötu 9 á Akureyri 16. júní 1936. Rósa var tekin þriggja ára í fóstur af hjónunum Ragnheiði Lýðsdóttur hreppstjóra og Benedikt Grímssyni sparisjóðsstjóra sem bjuggu á Kirkjubóli í Strandasýslu. Ragnheiður og Benedikt reyndust henni ætíð sem bestu foreldrar þó hún héldi alla tíð góðu sambandi við móður sína og með þeim mæðgum var mjög kært.
Rósa flutti til Reykjavíkur sem ung kona og bjó þar alla tíð síðan. Lífsförunautur Rósu var Stefán Þengill Jónsson, f. 26. apríl 1929, d. 10. mars 2001.
Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 19. ágúst 2018.
Útför Rósu fór fram frá Langholtskirkju 10. september 2018, klukkan 13.
Jarðarförin fór fram frá Langholtskirkju mánudaginn 10. september kl. 13.00.
Staðir
Akureyri; Kirkjuból á Ströndum 1939; Hrafnista;
Réttindi
Rósa lauk barnaskólaprófi frá Heydalsárskóla ; Kvsk á Blönduósi 1955:
Starfssvið
Vann við ýmis störf, m.a. starfaði hún sem þjónn á strandsiglingaskipinu Esjunni, á Hótel Sögu, Röðli, Hábæ, Tröð og víðar og í einkasamkvæmum. Auk þess starfaði t.d. í verslun Náttúrulækningafélagsins og í Múlabæ. Rósa var stjórnarmaður í Gigtarfélaginu um tíma.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hennar; Árni Valdimarsson 5. ágúst 1900 - 13. maí 1970. Var á Öngulstöðum, Munkaþverársókn, Eyj. 1901. Verkamaður á Akureyri. Sjómaður á Akureyri 1930 og Jóhanna Björg Jónsdóttir 2. júlí 1908 - 29. okt. 1989. Vinnukona á Laugavegi 34 a, Reykjavík 1930. Verkstjóri Akureyri.
Fósturforeldrar: Ragnheiður Lýðsdóttir frá Skriðinsenni, f. 22. júní 1895, d. 1. sept. 1983, og Benedikt G. Grímsson, bóndi og hreppstjóri, f. 17. apríl 1898, d. 21. júlí 1980.
Bróðir hennar;
1) Magnús Guðmundsson
Fóstursystkini;
1) Grímur Benediktsson 7. maí 1927 - 18. maí 2018. Bóndi og búfræðingur á Kirkjubóli í Kirkjubólshreppi og jafnframt sparisjóðsstjóri um árabil. Var á Kirkjubóli, Kollafjarðarnesssókn, Strand. 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Gegndi margvíslegum félags- og trúnaðarstörfum.
2) Sigurður Matthías Benediktsson 29. des. 1928 - 28. maí 2005 [sagður f 19.12.1928 í minningargrein], Kennari, smiður og bóndi á Kirkjubóli, Kollafjarðarnesssókn, Strand. og var þar 1930. Síðast bús. í Hólmavík. Kona hans 20.9.1959; Sigrún Kristín Valdimarsdóttir 12. mars 1940
3) Lýður Valgeir Benediktsson 2. sept. 1931
Maður hennar; Stefán Þengill Jónsson 26. apríl 1929 - 10. mars 2001. Var á Öndólfsstöðum, Einarsstaðasókn, S-Þing. 1930. Múrarameistari og tónmenntakennari. Síðast bús. í Reykjavík.
Börn Stefáns Þengils og Ásthildar Sigurðardóttur eru:
1) Valgerður, f. 4.5. 1959, sjúkraliði og nuddari á Akureyri. Maður hennar er Ottó Eiríksson byggingameistari.
2) Stefán Þorri, f. 6.4. 1967, framreiðslumaður í Reykjavík. Kona hans er Arndís Aradóttir.
Stefán Þengill og Ásthildur Sigurðardóttir skildu.
Dóttir hennar, faðir: Páll Brekkmann Ásgeirsson; 4. mars 1932 - 30. mars 2019. Sjómaður og fékkst við ýmis störf. Síðar bús. í Grundarfirði.
1) Jóhanna Björg Pálsdóttir 27. des. 1960 - 30. sept. 2018. Bankastarfsmaður og starfaði síðar við garðyrkju í Reykjavík. Afrekskona í handbolta og fótbolta. Eiginkona hennar var Lana Kolbrún Eddudóttir, f. 1965. Þær skildu.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
is the associate of
Rósa Benediktsdóttir (1936-2018) frá Kirkjubóli í Strandasýslu.
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 5.10.2019
Tungumál
- íslenska