Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Rósa Níelsdóttir (1920-1995) frá Þingeyrardeli
Hliðstæð nafnaform
- Rósa Aðalheiður Níelsdóttir (1920-1995) frá Þingeyrardeli
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
18.8.1920 - 29.12.1995
Saga
Var í Stykkishólmi, Snæf. 1920. Iðnaðarverkakona í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík. Rósa Aðalheiður Níelsdóttir fæddist 18. ágúst 1920 í Stykkishólmi.
Rósa fluttist ung til Reykjavíkur og hélt lengi heimili með Maríu systur sinni og Hafdísi Hönnu dóttur hennar og síðar með syni sínum og tengdadóttur.
Útför Rósu fer fram frá Hallgrímskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Staðir
Stykkishólmur: Þingeyrar: Þingeyrasel: Reykjavík: Selfoss:
Réttindi
Starfssvið
Hún starfaði á ýmsum stöðum, s.s. veitingahúsunum Miðgarði við Óðinstorg og Tryggvaskála á Selfossi, í Belgjagerðinni og saumastofunni Lýru, kaffihúsinu Tröð og síðast á barnaheimilinu Dyngjuborg.
Lagaheimild
"Í nóvember árið 1930 fór faðir þeirra, Níels Hafsteinn Sveinsson, að leita að fé í Víðidalsfjalli en hreppti vonskuveður og hrapaði í fjallinu.
Heima í Þingeyrarseli, beið Halldóra Ívarsdóttir, móðir þeirra, árangurslaust, með yngstu dótturina á fyrsta ári en þá elstu 13 ára sem var send ein til byggða að leita hjálpar. Í kjölfar þessa atburðar lá ekki annað fyrir móður þeirra en að tvístra systrahópnum. Sjálf réð hún sig ásamt elstu dótturinni, Maríu, í vinnumennsku að Vatnsdalshólum og hafði yngstu dótturina, Elsu, með sér. Hinum systrunum fjórum, Jóhönnu, Ingibjörgu móður minni, Ingunni og Helgu, var komið fyrir hjá vinum og vandamönnum. Þegar þessir atburðir gerðust var Ívar bróðir þeirra systra farin að heiman og var í vinnumennsku að Hvammi í Vatnsdal. Þessi óblíðu örlög hafa alla tíð verið þeim systrum mjög ofarlega í huga og án efa mótað allan þeirra æviveg."
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hennar voru ættaðir úr Húnaþingi, Halldóra Guðrún Ívarsdóttir, f. 1887, d. 1967, og Níels Hafstein Sveinsson, f. 1876, d. 1930, og höfðu áður setið á Ytri- Kóngsbakka í Helgafellssveit, en fluttust síðar að Þingeyrum, þar sem Níels hafði búið í upphafi aldarinnar ásamt móður sinni og bróður, og þaðan í frá í Þingeyrarseli vestan Vatnadalshálsa allt til ársins 1930 er Níels hrapaði til bana í Víðidalsfjalli og heimilið leystist upp.
Þeim hjónum varð tíu barna auðið en tvo drengi, Svein og Ívar, misstu þau kornunga, 1910 og 1911, en önnur börn þeirra eru: Ívar, f. 1912, Jóhanna f. 1914, d. 1940, María f. 1916, d. 1973, Ingibjörg, f. 1918, Rósa f. 1920, d. 1995, Ingunn f. 1923, Helga, f. 1926, og Elsa, f. 1930.
Rósa eignaðist einn son,
1) Níels Hafstein myndlistarmann, f. 1947, og er faðir hans Steinþór M. Gunnarsson, málarameistari, f. 1925. Kona Níelsar Hafstein er Magnhildur Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur, f. 1950, þeirra sonur er Haraldur, f. 1984.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Rósa Níelsdóttir (1920-1995) frá Þingeyrardeli
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Rósa Níelsdóttir (1920-1995) frá Þingeyrardeli
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Rósa Níelsdóttir (1920-1995) frá Þingeyrardeli
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 14.7.2017
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ Ættfræði
Íslendingabók
mbl 5.1.1996. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/242604/?item_num=3&searchid=d74d52082f5d0227425c284e4ff94d0801f3b174