Ragnheiður Árnadóttir (1912-2007) frá Tungu á Blönduósi

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Ragnheiður Árnadóttir (1912-2007) frá Tungu á Blönduósi

Parallel form(s) of name

  • Ragnheiður Vilhelmína Árnadóttir (1912-2007) frá Tungu á Blönduósi

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      11.12.1912 - 21.3.2007

      History

      Ragnheiður Vilhelmína Árnadóttir fæddist á Auðólfsstöðum í Langadal, í Bólstaðarhlíðarhreppi, 11. desember 1912. Hún andaðist á hjúkrunarheimilinu á Sólvangi í Hafnarfirði 21. mars síðastliðinn. Í Reykjavík annaðist Ragnheiður húsmóðurstörf af miklum dugnaði og myndarskap. Hún var mikil hannyrðakona og féll sjaldan verk úr hendi. Saumaskapur hennar og hannyrðir allar báru vott um vandvirkni hennar og listfengi. Ragnheiður stundaði ýmis störf í Reykjavík auk húsmóðurstarfanna, m. a. . Allmörg síðustu ár Ragnheiðar og Zóphaníasar saman áttu þau heima í Sjálfsbjargarhúsinu í Hátúni 10 í Reykjavík. Eftir lát Zóphaníasar bjó Ragnheiður þar í rúm 8 ár. Þá flutti hún á dvalarheimilið á Blesastöðum á Skeiðum og þar dvaldist hún í 10 ár. Í febrúarmánuði 2005 fór hún á hjúkrunarheimilið Sólvang í Hafnarfirði.
      Útför Ragnheiðar verður gerð frá Fossvogskapellu í dag 28. mars 2007 og hefst athöfnin klukkan 15.

      Places

      Auðólfsstaðir í Langadal: Tunga á Blönduósi: Reykjavík 1946:

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Rak sjoppu á Langholtsveginum í rúmlega tíu ár með manni sínum Zóphaníasi

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar voru Steinunn Jónsdóttir á Blönduósi og Árni Sigurðsson (1886-1958) Bóndi á Kúskerpi, útgerðarmaður og síðar verkamaður á Akri í Hrísey. Búfræðingur frá Ólafsdalsskóla. Smali á Rútstöðum, Auðkúlusókn, Hún. 1901. Útgerðarmaður í Árnahúsi, Hríseyjarsókn, Eyj. 1930.
      Barnung var Ragnheiður tekin í fóstur af hjónunum Ingibjörgu Pétursdóttur (1865-1959) og Birni Björnssyni (1867-1947) Tungu á Blönduósi. Hjá þeim ólst hún upp og var hjá þeim allt til þess að hún flutti til Reykjavíkur 1946.
      Ragnheiður átti ekkert alsystkini, en 12 hálfsystkini samfeðra og tvo hálfbræður sammæðra. Þessum hálfsystkinum sínum kynntist Ragnheiður lítið eða ekkert, enda ólust þau upp fjarri henni. Þegar Ragnheiður hafði aldur til stundaði hún ýmsa vinnu á Blönduósi, auk þess sem hún annaðist aldraða fósturforeldra sína.
      Hinn 21. apríl 1947 giftist Ragnheiður Zóphaníasi Elínberg Benediktssyni skósmið, f. 5. mars 1909, d. 2. júlí 1986.
      Ragnheiður eignaðist eina dóttur,
      1) Birnu Ingibjörgu Óskarsdóttur 14.10.19361, faðir Óskar Benjamínsson 16. október 1907 - 23. nóvember 1988 Bílstjóri á Akureyri 1930. Bifreiðarstjóri og bankamaður í Reykjavík. Síðast bús. í Reykjavík.
      Birna fluttist til Svíþjóðar og er búsett þar. Áður átti hún dótturina Ellen sem ólst upp á heimili afa síns og ömmu, Ragnheiðar og Zóphaníasar, uns þær mæðgur fluttu úr landi. Ellen á fjögur börn, Önnu, Lísu, Jesper og Cornelíu, og fjögur barnabörn, Filippu, Lo, Inu og Teo. Þau eru öll búsett í Svíþjóð.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Benedikt Helgason (1877-1943) Ytra-Tungukoti, Blöndudal (2.10.1877 - 28.4.143)

      Identifier of related entity

      HAH02571

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Ragnheiður var seinni kona Zophaníasar Elenbergs, sonar Benedikts

      Related entity

      Helgi Benediktsson (1914-1982) Hvammi, Hvammstanga (12.1.1914 - 29.12.1982)

      Identifier of related entity

      HAH04889

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      21.4.1947

      Description of relationship

      Ragnheiður var gift Zophoníasi bróður hans

      Related entity

      Auðólfsstaðir í Langadal ([900])

      Identifier of related entity

      HAH00150

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      11.12.1912

      Description of relationship

      fædd þar

      Related entity

      Baldurshagi / Indriðabær Blönduósi (1910 -)

      Identifier of related entity

      HAH00083

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      ólst upp hjá Indriða og Margréti

      Related entity

      Tunga Blönduósi (1922 - 1987)

      Identifier of related entity

      HAH00137

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Fósturdóttir þar 1933 og 1946

      Related entity

      Anna Guðrún Björnsdóttir (1901-1970) frá Tungu á Blönduósi (20.7.1901 - 15.5.1970)

      Identifier of related entity

      HAH02334

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Anna Guðrún Björnsdóttir (1901-1970) frá Tungu á Blönduósi is the sibling of Ragnheiður Árnadóttir (1912-2007) frá Tungu á Blönduósi

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Fóstursystur, Ragnheiður var alin upp hjá Birni og Ingibjörgu í Tungu foreldrum Önnu Guðrúnar

      Related entity

      Hafsteinn Björnsson (1899-1960) Blönduósi (17.5.1899 - 1.4.1960)

      Identifier of related entity

      HAH04605

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Hafsteinn Björnsson (1899-1960) Blönduósi is the sibling of Ragnheiður Árnadóttir (1912-2007) frá Tungu á Blönduósi

      Dates of relationship

      Description of relationship

      fóstur systir

      Related entity

      Björn Björnsson (1867-1947) Tungu Blönduósi (1.10.1867 - 24.1.1947)

      Identifier of related entity

      HAH02785

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Björn Björnsson (1867-1947) Tungu Blönduósi is the parent of Ragnheiður Árnadóttir (1912-2007) frá Tungu á Blönduósi

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Fósturdóttir

      Related entity

      Ingibjörg Pétursdóttir (1865-1959) Tungu (18.1.1865 - 3.9.1959)

      Identifier of related entity

      HAH06731

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ingibjörg Pétursdóttir (1865-1959) Tungu is the parent of Ragnheiður Árnadóttir (1912-2007) frá Tungu á Blönduósi

      Dates of relationship

      Description of relationship

      fósturbarn

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01863

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 12.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes