Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Peter Duus (1795- júlí 1868) Höndlunarfaktor á Skagaströnd,
Parallel form(s) of name
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
22.3.1795 - júlí 1868
History
[Hans Peter] Pétur Duus 22.3.1795 - júlí 1868. Höndlunarfaktor á Skagaströnd, Spákonufellssókn, Hún. 1835. Faktor í Garðabæ, Stokkseyrarsókn, Árn., 1845. Kaupmaður í Keflavík, Útskálasókn, Gull. 1860. Fæddur í Kaupmannahöfn.
„Peter Duus kaupir verslunina í Keflavík 3. júní 1848 af Martin Smith sem hafði rekið þar verslun um árabil. Peter Duus var kvæntur Ástu Tómasdóttur Bech. Þau voru ung þegar þau kynntust í Reykjavík. Foreldrar Ástu bjuggu á Kjalarnesi. Ásta hafði búið lengi í Kaupmannahöfn þegar þau Peter Duus hittast. Þau giftu sig fljótlega og fóru til Kaupmannahafnar en stoppuðu ekki lengi þar því Peter bauðst verslunarstjórastaða í Reykjavík. Þaðan fara þau til Skagastrandar og síðan til Eyrarbakka þar sem þau efnuðust vel. Þegar þau frétta að verslunin í Keflavík var til sölu hafa þau trúlega verið fljót að grípa tækifærið, því þá var Keflavík stærsti verslunarstaðurinn á suð-vesturlandi. Þegar þau kaupa verslunina eru fyrir í Keflavík tvær verslanir, K-nudtzons verslun og Verslun Sveinbörns Ólafssonar (Miðverslun). Seinna kom Ziemsen, sem við þekkjum sem Ziemsen í Rvík. Kaupverð eignanna var 3.700 ríkisdalir. Ef miðað er við verkamannalaun í þá daga og í dag, myndi eignin reiknast á kr.19.824.000.
Peter Duus og Ásta innleiddu ýmsar nýjungar í Keflavík t.d létu þau gera stóran matjurtagarð við íbúðarhús sitt og ræktuðu þar ýmsar káltegundir. Deilur hlutust af við Leirubændur og dómsmál vegna landamerkja, en kartöflugarður hjónanna utan í Hólmsbjargi reyndist vera innan Leirulands.
Peter Duus og Ásta eignuðust 4 börn sem hétu, Hans Pétur, Lovísa Henrietta Florentina, Anna Guðrún og Lúðvík Tómas Henrik.
Áfram reka þau verslunina með miklum myndarbrag til ársins 1868 eða í 20 ár. Þóttu þau hin mestu sómahjón og segir Sr. Sigurður Sívertsen á Útskálum svo um Ástu: „Hún var mikill kvenskörungur. Mesta reglukona, stjórnssöm, utanhúss sem innan.“ Um Peter Duus sagði Sigurður: „Hann var reglu- og atorkumaður, áreiðanlegur, stjórnsamur, vandaður húsfaðir og tápmikill.“
Hans Pétur Duus tók við Duusverzlun eftir föður sinn Pétur Duus. Hafði faðir hans selt honum verzlunina í hendur 1864 og var verzlunin þá metin á 15000 ríkisdali. Hann rak verslunina í 4 ár.
Árið 1868 taka við versluninni sonur þeirra Hans Peter, og tengdasonur Daníel Johnsen. Þeir ráku verslunina saman í 6 ár en þá kaupir Hans Peter Daníel mág sinn útúr fyrirtækinu.
Places
Legal status
Functions, occupations and activities
Kaupmaður, Fiskhöndlari áður en hann flytur til Íslands
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
Foreldrar hans; Peter Duus og Anne Knudsen Kaupmannahöfn.
Maki 1, 11.9.1822; Annetje Kolk 1805 Amsterdam, foreldrar hennar; Jacob Kolk „schuitenvoeder“ og Tanneke Jansen
Maki 2, 6. apríl 1827, Ásta Tómasdóttir Bech 3.11.1795 - 2.8.1864. Var í Reykjavík 27, Reykjavíkurkaupstað 1801. Húsfreyja í Garðabæ, Eyrarbakka, Árn., 1845.
Börn hans með fyrri konu;
1) Jakob Henrik Duus 2.8.1823
2) Jannecke Duus 1823 maður hennar 2.5.1845; Andreas Farino Nagel
Með seinni konu;
1) Hans Peter Duus 1829 - 23.7.1884. Var í Garðabæ, Stokkseyrarsókn, Árn., 1845. Kaupmaður í Keflavík, 1880. Kona hans 1873: Friðrika Kristjana Sveinbjörnsdóttir Duus 9.12.1844. Var í Keflavík, Útskálasókn, Gull. 1860 og í Keflavík, 1880.
2) Lovise Henriette Florentine Duus 1830 - 18.2.1835. Var á Skagaströnd, Spákonufellssókn, Hún. 1835.
3) Anna Guðrún Duus 1832. Var á Skagaströnd, Spákonufellssókn, Hún. 1835. Húsfreyja á Ísafirði. „Hin mesta snildarkona, virt og elskuð af öllum“, segir í Blöndu. Maður hennar Daníel Arason Johnsen kaupmaður í Kaupmannahöfn.
4) Ludvig Tómas Henrik Duus 20.2.1835 - 8.5.1861. Var á Garðbæ, Stokkseyrarsókn, Árn. 1845. Factor? í Keflavík, Útskálasókn, Gull. 1860.
General context
Peter kom til landsins 1824, ráðinn sem verslunarstjóri af Gísla Símonarsyni frá Málmey í Skagafirði, Duus starfaði fyrst við verslun hans [C. A. Jacobæus í Reykjavík] í Reykjavík en síðar á Skagaströnd.
1848 - Peter Duus keypti verslunina í Keflavík af Martin Smith á 3.700 ríkisdali.
„Hinn harðasti vetur yfir land allt og stóðu hörkur miklar, svo aldrei varð hlé á frá þorrakomu til góuloka. Varð hér mikil neyð af bjargarskorti. ... Vorið rigningarsamt og sama óþurrkatíð fram á slátt. Heyjaðist illa. Seinna strandaði jakt hans „Ása“ [P. Duus kaupmanns í Keflavík sem dó í júli] í Keflavík, hlaðin fiski og búin til útsiglingar. Menn drukknuðu allir, 6 að tölu.“
Grafreitur þeirra er í Útskálakirkjugarði. Séra Sigurður B. Swertsen prestur á Útskálum ritaði ( kirkjubókina, en hann færði nöfn þeirra hjóna í dánardáld eftirfarandi um frú Ástu „Hún var mikill kvenskörungur, mesta reglukona, stiórnsöm utan hús og innan.“ Um P. Duus „Var hann reglu-og atorkumaður, áreiöanlegur, stjórnsamur, vandaður húsfaöir og tápmikill."
Og þótt Duus kaupmaður þætti harður í viöskiptum, var þvf æfinlega bætt við, er um hann var rætt: „En hann gerði aldrei gys að fátækum viðskiptamönnum sínum, né leyfði þjónum sínum það."
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Maintained by
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 27.1.2021
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði
Ftún bls. 36, 37.
Suðurnesjaannáll 1868
Duus verslun – letursteinn „HPD“ – Ferlir https://ferlir.is/duus-verslun-letursteinn-hpd/