Páll H Árnason (1906-1991) frá Geitaskarði

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Páll H Árnason (1906-1991) frá Geitaskarði

Hliðstæð nafnaform

  • Páll H Árnason frá Geitaskarði

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

5.8.1906 - 12.1.1991

Saga

Bóndi og leigjandi á Skólavegi 7, Vestmannaeyjum 1930. Heimili: Glaumbær, Hún. Bóndi í Glaumbæ. Síðast bús. í Vestmannaeyjum. Einn af Ofanbyggjurum Vestmannaeyja, Páll Árnason bóndi í Þórlaugargerði vestra, hefur kvatt jarðartilveru og verður útför hans gerð frá Landakirkju í dag. Fallinn er í valinn valinkunnur maður sem alla ævi vann hörðum höndum og í hverju einu sem hann tók sér fyrir hendur, stóru sem smáu, skilaði hann af sér betri hlut en hann tók við. Þannig er vandlifað, en svo mikill ræktunarmaður var Páll í Þórlaugargerði hvort sem var til andagiftar eða móður Jarðar að kynni við hann voru í senn skóli sem skemmtun. Skóli að skynja endalausan dugnað og vilja, skemmtun að skilja lífsgleðina sem á bak við bjó, ástina til þesssem lifir og hrærist.
Páll í Þolló, eins og við Ofanbyggjarapeyjarnir kölluðum hann í daglegu tali, flutti til Vestmannaeyja frá Húnavatnssýslu 1951 með Guðrúnu Aradóttur konu sinni og sonum. Páll fæddist á Geitaskarði í Langadal 5. ágúst 1906. Þau Guðrún giftu sig 1932 og höfðu búið í 17 ár nyrðra þegar þau fluttu búferlum til Eyja 1951. Þá höfðu þau búið á Móbergi og í Glaumbæ í Langadal. Ástæðan fyrir því að þau fluttu til Eyja var sú að Páll þjáðist af asma og hafði trú á sjávarloftinu til heilsubótar og meiningin var sú að stunda ekki búskap í Eyjum. Þegar þau Guðrún tóku við Þórlaugargerði vestra, einum Ofanbyggjarabæjanna í sveitinni í Eyjum, voru þar tvær kýr fyrir og bóndinn í Páli vildi halda þeim. En mói sem hægt var að brjóta í besta ræktunarland, hvanngræna grasið í Eyjum og andi bóndans tók í taumana og fyrr en varði var Páll farinnað rækta upp svæði Ofanbyggjara byggðarinnar sem aldrei fyrr höfðuverið ræktuð.
Í Þórlaugargerði bjuggu þau Guðrún til 1985 er þau fluttu sig um set til bæjarins. Í brennuleiðöngrum bernskuáranna fyrir hver áramót stálum við peyjarnir oft traktornum hans Páls, drógum hann með reipi út að hliði í skjóli nætur og gangsettum þar með allt annað en fermingarsvip. Auðvitað vissi Páll af þessu, en aldrei sagði hann orð þótt oft leiddi hann okkur til verkkunnáttu og vits í hinu daglega brauðstriti. Mest voru þau Guðrún og Páll með 16 kýr og alla tíð réð andi bóndans stemmningu þeirra Þórlaugargerðishjóna. Það var satt að segja með ólíkindum hvað Páll vann afkastamikinn og langan vinnudag þrátt fyrir veika heilsu lengstaf ævinnar. En ef andinn getur verið holdinu yfirsterkari þá var sú náttúra í Páli í Þórlaugargerði og ætíð fór hann blíðum höndum um gróður jarðar þótt heilsan væri honum ekki eins holl og vonir stóðu til. Páll í Þolló var sérstæður maður, sterkur persónuleiki og blærinn í lífi hans var hún Guðrún. Hann hélt sínu striki, laus við pjatt og hégóma, en lifði lífinu eins og sannur maður. Þegar aðrir óku um á tryllitækjum nútímans lét Páll sér nægja gamla traktorinn sinn og það var stórkostlegt eftir eldgosið 1973 að fylgjastmeð Páli í verkum sem lögðu grunninn að uppgræðslu Heimaeyjar. Þá nutu Eyjarnar sérstaklega bóndans sem bar að svo óvænt norðan úr landi.

Staðir

Geitaskarð: Móberg og Glaumbær í Langadal: Þórlaugargerði Vestmannaeyjum:

Réttindi

Bóndi

Starfssvið

Lagaheimild

Þjóðhátíðardraumur ‘ 80

Sumargleði sanna bera
í sælu Dalnum piltur, freyja.
Fágað allt sem fremst má vera,
á friðarhátíð Vestmannaeyja.

Aldursþroski og friðarblómi,
að ævintýrum vinna snjöllum.
Alsgáð skemmtun ein, er sómi,
okkar jarðar töfrahöllum.
P.H.Á.

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar hans voru Árni Ásgrímur Þorkelsson (1852-1940) og Hildur Solveig (1874-1931) Sveinsdóttir Arasonar á Lýtingsstöðum.
Systkin Páls voru:
1) Sigríður Árnadóttir 4. júlí 1893 - 27. júní 1967 Var í Geitaskarði, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Húsfreyja. Var í Geitaskarði, Engihlíðarhr., A-Hún. 1957. Síðast bús. á Sauðárkróki.
2) Ísleifur Árnason 20. apríl 1900 - 7. ágúst 1962 Lögfræðingur á Túngötu 18, Reykjavík 1930. Prófessor í Reykavík 1945. Borgardómari um tíma.
3) Guðrún Árnadóttir Johnson 27. maí 1902 - 11. september 1973 Húsfreyja í Reykjavík 1945. Húsfreyja, síðast bús. í Reykjavík. 4) Páll.
Fyrri kona Páls 18.11.1926 var Anna Kristín Árnadóttir (1874-1987) þau skildu. Foreldrar hennar voru Árni Stefánsson trésmiður á Akureyri (1874-1946) og Jónína Gunnhildur Friðfinnsdóttir (1885-1969).
Barn þeirra:
1) Hildur (1927-1929)
Kona hans 1932 var Guðrún foreldrar hennar voru Ari Hermann Erlendsson frá Grundarkoti, Blönduhlíð, Skagafirði, og Björg Halldórsdóttir frá Styringsstöðum í Langadal. Þau áttu tvær dætur, Guðrúnu og Helgu, sem býr á Móbergi.
Þau eignuðust þrjá syni,
2) Ari Birgir 8. mars 1934 - 4. febrúar 2001 Síðast bús. í Vestmannaeyjum.
3) Árni Ásgrímur 14. september 1942 - 27. mars 2011 Bús. í Vestmannaeyjum, Hafnarfirði og síðar húsvörður í Kópavogi
4) Hildar Jóhann 9. október 1946 - 8. nóvember 2015 Verkamaður í Vestmannaeyjum.
og fósturdótturina
0) Guðrúnu Sigríði.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Tengd eining

Björg Halldórsdóttir (1873-1943) Móbergi (21.7.1873 - 27.3.1943)

Identifier of related entity

HAH02723

Flokkur tengsla

fjölskylda

Dagsetning tengsla

1932 - ?

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Helga Ólína Aradóttir (1913-2004) Móbergi (13.3.1913 - 27.6.2004)

Identifier of related entity

HAH01415

Flokkur tengsla

fjölskylda

Dagsetning tengsla

1932 - ?

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Geitaskarð / Skarð Engihlíðarhreppi ([900])

Identifier of related entity

HAH00210

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Vestmannaeyjar

Identifier of related entity

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Árni Pálsson (1942-2011) Vestmannaeyjum (14.9.1942 - 27.3.2011)

Identifier of related entity

HAH05087

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Árni Pálsson (1942-2011) Vestmannaeyjum

er barn

Páll H Árnason (1906-1991) frá Geitaskarði

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Árni Þorkelsson (1852-1940) Geitaskarði (17.12.11852 - 2.12.1940)

Identifier of related entity

HAH03527

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Árni Þorkelsson (1852-1940) Geitaskarði

er foreldri

Páll H Árnason (1906-1991) frá Geitaskarði

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Hildur Solveig Sveinsdóttir (1874-1931) Geitaskarði (22.10.1874 - 14.8.1931)

Identifier of related entity

HAH06686

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Hildur Solveig Sveinsdóttir (1874-1931) Geitaskarði

er foreldri

Páll H Árnason (1906-1991) frá Geitaskarði

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Sigríður Árnadóttir (1893-1967) Geitaskarð (4.7.1893 - 27.6.1967)

Identifier of related entity

HAH09002

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Sigríður Árnadóttir (1893-1967) Geitaskarð

er systkini

Páll H Árnason (1906-1991) frá Geitaskarði

Dagsetning tengsla

1906

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Ísleifur Árnason (1900-1962) Borgardómari frá Geitaskarði (20.1.1900 - 7.8.1962)

Identifier of related entity

HAH04760

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Ísleifur Árnason (1900-1962) Borgardómari frá Geitaskarði

er systkini

Páll H Árnason (1906-1991) frá Geitaskarði

Dagsetning tengsla

1906

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Guðrún Árnadóttir (1902-1973) frá Geitaskarði (27.5.1902 - 11.9.1973)

Identifier of related entity

HAH04236

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Guðrún Árnadóttir (1902-1973) frá Geitaskarði

er systkini

Páll H Árnason (1906-1991) frá Geitaskarði

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Guðrún Aradóttir (1909-1995) (27.9.1909 - 24.12.1995)

Identifier of related entity

HAH01811

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Guðrún Aradóttir (1909-1995)

er maki

Páll H Árnason (1906-1991) frá Geitaskarði

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Brynjólfur Þorbjarnarson (1918-1995) frá Geitaskarði (6.1.1918 - 14.1.1995)

Identifier of related entity

HAH01159

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Brynjólfur Þorbjarnarson (1918-1995) frá Geitaskarði

is the cousin of

Páll H Árnason (1906-1991) frá Geitaskarði

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Móberg í Langadal ([1000])

Identifier of related entity

HAH00215

Flokkur tengsla

stigveldi

Type of relationship

Móberg í Langadal

er stjórnað af

Páll H Árnason (1906-1991) frá Geitaskarði

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Glaumbær í Langadal ((1950))

Identifier of related entity

HAH00211

Flokkur tengsla

stigveldi

Type of relationship

Glaumbær í Langadal

er stjórnað af

Páll H Árnason (1906-1991) frá Geitaskarði

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH01820

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ 10.7.2017

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir