Páll Finnbogason (1919-2001) Prentmyndasmiður í Reykjavík

Original Stafræn eining not accessible

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Páll Finnbogason (1919-2001) Prentmyndasmiður í Reykjavík

Hliðstæð nafnaform

  • Páll Ágúst Finnbogason (1919-2001) Prentmyndasmiður í Reykjavík
  • Páll Ágúst Finnbogason Prentmyndasmiður í Reykjavík

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

12.5.1919-9.6.2001

Saga

Páll Ágúst Finnbogason 12. maí 1919 - 9. júní 2001. Hann fæddist á Velli í Hvolhreppi 12. maí 1919, og lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti, laugardaginn 9. júní 2001. Prentmyndasmiður í Reykjavík. Síðast bús. í Reykjavík.
Ungur flutti Páll ásamt fjölskyldu sinni til Reykjavíkur og bjó þar síðan.
Útför Páls fór fram frá Háteigskirkju föstudaginn 15. júní 2001.

Staðir

Völlur í Hvolhreppi; Reykjavík:

Réttindi

Hann nam prentmyndasmíði og fékk meistararéttindi 1946 og stofnaði prentmyndagerðina Prentmyndir sama ár, sem hann rak síðan til 1959.

Starfssvið

Lagaheimild

Á starfsferli sínum gaf hann út fjölda bóka bæði sjálfur og með öðrum. Eftir 1959 hóf Páll útgáfu blaða og tímarita, ritstýrði þeim og skrifaði fjölda greina. Einnig skrifaði hann í DV og fleiri blöð. Páll starfaði um tíma hjá Sameinuðu þjóðunum varðandi stangaveiði í ám og vötnum á Íslandi fyrir ferðamenn. Hann var mikil áhugamaður um stangaveiði og var formaður Landssambands stangveiðifélaga 1958-1959. Ungur gekk Páll í raðir Karlakórs Fóstbræðra enda mikill söngmaður og talinn góður bassi. Hann var einn af stofnendum gamalla Fóstbræðra og fóstbróðir til æviloka. Síðustu starfsár sín vann hann hjá Öryrkjabandalagi Íslands.

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar hans voru Finnbogi, f. 31.3. 1869, d. 21.9. 1937, Sveinssonar frá Kirkjubæ í Fljótshlíð Jónssonar og Sæunn, f. 20.4. 1888, d. 25.2. 1962, Sæmundsdóttir, bónda í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð, Guðmundssonar.

Páll átti 3 systkini,
1) Gunnþórunn Klara, f. 12.8. 1909, d. 28.2. 1993.
2) Guðmundur f. 22.6. 1914 nú á Hrafnistu í Hafnarfirði
3) Sæmundur f. 1922, d. 1947.

Páll kvæntist 22.04. 1943 Aðalheiði Rósu, f. 09.06. 1917, Benediktstóttur bónda á Mosfelli í Svínavatnshreppi, Helgasonar, og konu hans, Guðrúnar Þorláksdóttur. Aðalheiður og Páll skildu.

Börn þeirra
1) Guðrún Ása Jóhannsdóttir f. 31. maí 1937. Hún fór í fóstur til Helgu, systur Aðalheiðar, og Jóhanns, manns hennar, á Seljateigi við Reyðarfjörð. Börn Ásu hafa verið í góðu sambandi við ömmu sína sem líkaði það vel.
2) Unnur Pálsdóttir, f. 16. nóvember 1946. Börn hennar eru Aðalheiður Rós, Ágústa Þóra, Páll Sæþór og Jóhann Guðberg.
3) Rúnar Pálsson, f. 8. febrúar 1950. Börn hans eru Einar Óli, Ása Heiður og Arna Rún.
4) Sævar Pálsson f. 10 ágúst 1954. Börn hans eru Loftur og Særún Heiða.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Tengd eining

Aðalheiður Benediktsdóttir (1917-2010) frá Beinakeldu (9.6.1917 - 1.2.2010)

Identifier of related entity

HAH03187

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Aðalheiður Benediktsdóttir (1917-2010) frá Beinakeldu

er maki

Páll Finnbogason (1919-2001) Prentmyndasmiður í Reykjavík

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH03522

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ 6.7.2019

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir