Páll Finnbogason (1919-2001) Prentmyndasmiður í Reykjavík

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Páll Finnbogason (1919-2001) Prentmyndasmiður í Reykjavík

Parallel form(s) of name

  • Páll Ágúst Finnbogason (1919-2001) Prentmyndasmiður í Reykjavík
  • Páll Ágúst Finnbogason Prentmyndasmiður í Reykjavík

Standardized form(s) of name according to other rules

Other form(s) of name

Identifiers for corporate bodies

Description area

Dates of existence

12.5.1919-9.6.2001

History

Páll Ágúst Finnbogason 12. maí 1919 - 9. júní 2001. Hann fæddist á Velli í Hvolhreppi 12. maí 1919, og lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti, laugardaginn 9. júní 2001. Prentmyndasmiður í Reykjavík. Síðast bús. í Reykjavík.
Ungur flutti Páll ásamt fjölskyldu sinni til Reykjavíkur og bjó þar síðan.
Útför Páls fór fram frá Háteigskirkju föstudaginn 15. júní 2001.

Places

Völlur í Hvolhreppi; Reykjavík:

Legal status

Hann nam prentmyndasmíði og fékk meistararéttindi 1946 og stofnaði prentmyndagerðina Prentmyndir sama ár, sem hann rak síðan til 1959.

Functions, occupations and activities

Mandates/sources of authority

Á starfsferli sínum gaf hann út fjölda bóka bæði sjálfur og með öðrum. Eftir 1959 hóf Páll útgáfu blaða og tímarita, ritstýrði þeim og skrifaði fjölda greina. Einnig skrifaði hann í DV og fleiri blöð. Páll starfaði um tíma hjá Sameinuðu þjóðunum varðandi stangaveiði í ám og vötnum á Íslandi fyrir ferðamenn. Hann var mikil áhugamaður um stangaveiði og var formaður Landssambands stangveiðifélaga 1958-1959. Ungur gekk Páll í raðir Karlakórs Fóstbræðra enda mikill söngmaður og talinn góður bassi. Hann var einn af stofnendum gamalla Fóstbræðra og fóstbróðir til æviloka. Síðustu starfsár sín vann hann hjá Öryrkjabandalagi Íslands.

Internal structures/genealogy

Foreldrar hans voru Finnbogi, f. 31.3. 1869, d. 21.9. 1937, Sveinssonar frá Kirkjubæ í Fljótshlíð Jónssonar og Sæunn, f. 20.4. 1888, d. 25.2. 1962, Sæmundsdóttir, bónda í Nikulásarhúsum í Fljótshlíð, Guðmundssonar.

Páll átti 3 systkini,
1) Gunnþórunn Klara, f. 12.8. 1909, d. 28.2. 1993.
2) Guðmundur f. 22.6. 1914 nú á Hrafnistu í Hafnarfirði
3) Sæmundur f. 1922, d. 1947.

Páll kvæntist 22.04. 1943 Aðalheiði Rósu, f. 09.06. 1917, Benediktstóttur bónda á Mosfelli í Svínavatnshreppi, Helgasonar, og konu hans, Guðrúnar Þorláksdóttur. Aðalheiður og Páll skildu.

Börn þeirra
1) Guðrún Ása Jóhannsdóttir f. 31. maí 1937. Hún fór í fóstur til Helgu, systur Aðalheiðar, og Jóhanns, manns hennar, á Seljateigi við Reyðarfjörð. Börn Ásu hafa verið í góðu sambandi við ömmu sína sem líkaði það vel.
2) Unnur Pálsdóttir, f. 16. nóvember 1946. Börn hennar eru Aðalheiður Rós, Ágústa Þóra, Páll Sæþór og Jóhann Guðberg.
3) Rúnar Pálsson, f. 8. febrúar 1950. Börn hans eru Einar Óli, Ása Heiður og Arna Rún.
4) Sævar Pálsson f. 10 ágúst 1954. Börn hans eru Loftur og Særún Heiða.

General context

Relationships area

Related entity

Aðalheiður Benediktsdóttir (1917-2010) frá Beinakeldu (9.6.1917 - 1.2.2010)

Identifier of related entity

HAH03187

Category of relationship

family

Type of relationship

Aðalheiður Benediktsdóttir (1917-2010) frá Beinakeldu

is the spouse of

Páll Finnbogason (1919-2001) Prentmyndasmiður í Reykjavík

Dates of relationship

22.4.1943

Description of relationship

Börn þeirra 1) Guðrún Ása Jóhannsdóttir f. 31. maí 1937. Hún fór í fóstur til Helgu, systur Aðalheiðar, og Jóhanns, manns hennar, á Seljateigi við Reyðarfjörð. Börn Ásu hafa verið í góðu sambandi við ömmu sína sem líkaði það vel. 2) Unnur Pálsdóttir, f. 16. nóvember 1946. Börn hennar eru Aðalheiður Rós, Ágústa Þóra, Páll Sæþór og Jóhann Guðberg. 3) Rúnar Pálsson, f. 8. febrúar 1950. Börn hans eru Einar Óli, Ása Heiður og Arna Rún. 4) Sævar Pálsson f. 10 ágúst 1954. Börn hans eru Loftur og Særún Heiða. Aðalheiður og Páll skildu.

Access points area

Subject access points

Place access points

Occupations

Control area

Authority record identifier

HAH03522

Institution identifier

IS HAH

Rules and/or conventions used

Status

Final

Level of detail

Full

Dates of creation, revision and deletion

GPJ 6.7.2019

Language(s)

  • Icelandic

Script(s)

Maintenance notes

  • Clipboard

  • Export

  • EAC

Related subjects

Related places