Ólafur Sigurðsson (1915-1999) læknir

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Ólafur Sigurðsson (1915-1999) læknir

Hliðstæð nafnaform

  • Ólafur Sigurðsson (1915-1999) læknir

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

4.8.1915 - 13.8.1999

Saga

Ólafur Sigurðsson fæddist í Reykjavík 4. ágúst 1915. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 13. ágúst síðastliðinn. Útför Ólafs fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30.

Staðir

Reykjavík: Akureyri 1945:

Réttindi

Ólafur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1934 og læknaprófi frá Háskóla Íslands 1941. Hann stundaði framhaldsnám í lyflæknisfræði við Duke University Hospital í Norður-Karolínu í Bandaríkjunum 1943-1945 og á Hammersmith Hospital og fleiri sjúkrahúsum í Lundúnum 1949-1951.

Starfssvið

Hann var starfandi læknir á Akureyri 1945-1949 og 1951-1953 og yfirlæknir við lyflækningadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri 1954-1985. Ólafur var heiðursfélagi í Læknafélagi Akureyrar, Læknafélagi Íslands og Félagi íslenskra lyflækna. Hann var formaður Hjarta- og æðaverndarfélags Akureyrar frá stofnun þess 1964 til starfsloka.

Lagaheimild

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar hans voru Sigurður Guðmundsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, f. 3. sept. 1878, d. 10. nóv. 1949, og kona hans Halldóra Ólafsdóttir, f. 7. apríl 1892, d. 27. jan. 1968.
Systkini hans eru: Þórunn, f. 30. júní 1917, ekkja, búsett í Lundúnum; Arnljótur, f. 18. des. 1918, d. 22. mars 1919; Örlygur, listmálari í Reykjavík, f. 13. febrúar 1920; Guðmundur Ingvi, hæstaréttarlögmaður í Reykjavík, f. 16. júní 1922 og Steingrímur, listmálari í Reykjavík, f. 29. apríl 1925.
Hinn 15. maí 1948 kvæntist Ólafur Önnu Björnsdóttur, f. 25. nóvember 1920. Foreldrar hennar voru Björn Sigmundsson, deildarstjóri á Akureyri, f. 27. júní 1891, d. 18. janúar 1975, og kona hans Guðrún Gunnlaugsdóttir, f. 24. maí 1893, d. 27. febrúar 1973.
Börn Ólafs og Önnu eru:
1) Halldóra, geðlæknir í Reykjavík, f. 19. október 1948, gift Kjartani Mogensen, landslagsarkitekt, f. 14. desember 1946. Dóttir Halldóru og fyrri eiginmanns, Péturs Rasmussen, konrektors, er Anna Ingeborg, f. 21. janúar 1974. Dóttir Halldóru og Kjartans er Helga Kristín, f. 4. júní 1985.
2) Sigurður, menntaskólakennari á Akureyri, f. 29. september 1951, kvæntur Klöru S. Sigurðardóttur, skrifstofumanni, f. 25. júní 1952. Dóttir Sigurðar og Ingibjargar Einarsdóttur, hjúkrunarfræðings, er Matthildur, f. 20. nóvember 1972. Börn Sigurðar og fyrri eiginkonu, Hanne Frökjær Knudsen, sjúkraþjálfara, eru Mira Kolbrún, f. 25. febrúar 1981, og Ólafur Kim, f. 2. apríl 1988. Dóttir Ólafs og Ástu Guðrúnar Karlsdóttur, fulltrúa í Reykjavík, f. 6. október 1926, d. 12. janúar 1992, er Ragnheiður, læknir og meinafræðingur í Wales, Bretlandi, f. 28. febrúar 1947. Hennar maður er Paul M. Smith, læknir. Börn þeirra eru Ásta Guðrún, f. 21. apríl 1978, og Karl Mapleston, f. 4. maí 1979.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Tengd eining

Örlygur Sigurðsson (1920-2002) listmálari (13.2.1920 - 24.10.2002)

Identifier of related entity

HAH09461

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Örlygur Sigurðsson (1920-2002) listmálari

er systkini

Ólafur Sigurðsson (1915-1999) læknir

Dagsetning tengsla

1920

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Þórunn Sigurðardóttir Tunnard (1917-2008) London (30.6.1917 - 7.12.2008)

Identifier of related entity

HAH02187

Flokkur tengsla

fjölskylda

Type of relationship

Þórunn Sigurðardóttir Tunnard (1917-2008) London

er systkini

Ólafur Sigurðsson (1915-1999) læknir

Dagsetning tengsla

1917

Lýsing á tengslum

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH01798

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ 8.7.2017

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir