Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Ólafur Ólafsson (1905-2001) Kambakoti
Hliðstæð nafnaform
- Ólafur Ólafsson (1905-2001) Kambakoti
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
24.5.1905 - 4.8.2001
Saga
Ólafur Ólafsson fæddist í Háagerði á Skagaströnd 24. maí 1905. Hann lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 4. ágúst síðastliðinn. Ólafur og Sveinfríður hófu búskap á Borgarlæk á Skaga árið 1933, síðan fluttu þau að Álfhóli í Skagahreppi. Þaðan fluttu þau að Kleif á Skaga árið 1935 og bjuggu þar í 13 ár, er þau fluttu að Kambakoti í Vindhælishreppi, þar sem þau bjuggu til ársins 1967 er Sveinfríður lést. Jónmundur sonur þeirra tók þá við búinu. Eftir að Ólafur brá búi dvaldist hann mest í Kambakoti, að undanskildum nokkrum árum sem hann dvaldist í Grindavík og Kópavogi hjá dóttur sinni Olgu. Frá 1990 dvaldi hann síðan á Gauksstöðum á Skaga hjá dóttur sinni Eiðnýju og tengdasyni sínum Jóni.
Útför Ólafs fer fram frá Hólaneskirkju á Skagaströnd í dag og hefst athöfnin klukkan 14.
Staðir
Háagerði á Skagaströnd: Árbakki: Borgarlæk á Skaga 1933: Álfhóll í Skagahreppi: Kleif á Skaga 1935: Kambakot í Vindhælishreppi 1948-1967:
Réttindi
Bóndi:
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hans voru Ólafur Ólafsson í Háagerði, f. 1856, d. 1906, og Helga Árnadóttir, f. í Eyjafirði 6. júní 1879, d. 25. ágúst 1912.
Systkini hans voru: Jón Árnason (sonur Helgu), Helga, María, Guðríður og Jón.
Ólafur ólst upp hjá hjónunum Ólafi Björnssyni og Sigurlaugu Sigurðardóttur á Árbakka í Vindhælishreppi.
Árið 1935 kvæntist Ólafur Sveinfríði Jónsdóttur, f. 2. apríl 1898, d. 23. júlí 1967.
Þeirra börn eru:
1) Jónmundur Friðrik, f. 3. maí 1934, sambýliskona Sveinbjörg Björnsdóttir sem er nýlátin,
2) Olga, f. 29. maí 1935, fyrrv. maki Ólafur Þ. Sigurðsson, d. 7. febrúar 2001,
3) Eiðný Hilma, f. 5. júlí 1936, maki Jón Stefánsson,
4) Ólafur, f. 3. nóvember 1939, maki Hjördís Sæunn Þorsteinsdóttir,
5) Guðríður Fjóla, f. 19. janúar 1941, maki Hörður Jóhannesson, f. 9. september 1938, d. 7. október 1988, sambýlismaður Skarphéðinn Jóhannesson.
Fyrir hjónaband eignaðist Ólafur þrjú börn.
Þau eru tvíburarnir móðir þeirra var Guðbjörg Hallbera Guðjónsdóttir, f. 23. september 1891, d. 3. júlí 1981.
1) Þórey og
2) Hallur, f. 3. október 1931. Maki Halls er Guðlaug Berglind Björnsdóttir.
3) Fríða, f. 11. janúar 1933, maki Guðmundur Matthíasson. Móðir Fríðu var Klemensína Guðný Jónsdóttir, f. 25. október 1909, d. 25. júlí 1966.
Stjúpbörn Ólafs frá fyrra hjónabandi Sveinfríðar eru:
1) Guðmundur, f. 27. september 1921, d. 24. desember 1998. Fyrri kona Guðmundar var Guðlaug Jóhannesdóttir, f. 31. janúar 1916, d. 3. september 1981. Seinni kona hans var Guðrún Sigurgeirsdóttir, f. 15. maí 1925, d. 27. desember 1983,
2) Guðrún, f. 26. október 1922, maki Baldur Þórarinsson f. 3. október 1921, d. 14. september 1988,
3) Erlenda Stefana, f. 15. desember 1923, maki Kristján Fjeldsted, f. 4. febrúar 1922.
Ólafur og Sveinfríður ólu upp tvö börn Guðrúnar, þau
1) Gísli Ófeigsson, f. 13. júní 1943, maki Ester Garðarsdóttir,
2) Sveinfríður Sigrún Guðmundsdóttir, f. 16. desember 1947, maki Ásgeir Axelsson.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
is the grandparent of
Ólafur Ólafsson (1905-2001) Kambakoti
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 8.7.2017
Tungumál
- íslenska