Ólafur Davíðsson (1862-1903) cand phil Hofi í Hörgárdal

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Ólafur Davíðsson (1862-1903) cand phil Hofi í Hörgárdal

Parallel form(s) of name

  • Ólafur Davíðsson cand phil Hofi í Hörgárdal

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      26.2.1862 - 6.9.1903

      History

      Náttúrufræðingur og þjóðsagnasafnari. Drukknaði í Hörgá. Hinn innanfeiti Ólafur Davíðsson var tvítugur þegar þetta var, fæddur í janúar 1862, prestssonur að norðan. Hann lagði stund á náttúrufræði við Kaupmannahafnarháskóla en varð síðar þekktastur fyrir söfnun sína á íslenskum þjóðsögum, gátum, vikivökum og þulum.

      Places

      Hof í Hörgárdal: Kaupmannahöfn:

      Legal status

      Cand Phil: Hann lærði náttúrufræði í Kaupmannahafnarháskóla

      Functions, occupations and activities

      1897 fór hann aftur til Íslands og var kennari á Möðruvöllum í Hörgárdal og stundaði samhliða þjóðsagnasöfnun og fræðistörf. Sjá bækurnar "Vaxandi vængir" eftir Þorstein Antonsson og "Örlagasaga" um Gísla Guðmundsson eftir sama höfund. Örlagasaga er sérstæð bók, eins og miðja vegu milli heimildaútgáfu og sagnfræðiverks, og samanstendur að miklu leyti af beinum uppskriftum á misáhugaverðu efni sem liggur eftir Gísla, Ólaf og ýmsa samtíðarmenn þeirra, til dæmis mannlýsingum og bókmenntaumfjöllun, en þar eru einnig nokkrar skemmtilegar lýsingum á stúdentalífinu.

      Gísli Guðmundsson og Ólafur Davíðsson áttu það sameiginlegt að deyja fyrir aldur fram, þótt Gísli færi á undan, og báðir drukknuðu. Ólafur drukknaði í Hörgá rétt rúmlega fertugur árið 1903 en Gísli stytti sér aldur aðeins hálfþrítugur, stökk fyrir borð á ferju frá Jótlandi. Og Ólafur hélt áfram að láta allt fjúka: „Það hleypur einhver hundakæti í mig þegar ég heyri að kunningjar mínir hrökkva upp af.“

      Mandates/sources of authority

      Náttúrufræðingurinn (1962):
      Íslenskar gátur, skemtanir, vikivakar og þulur: safnað hafa J. Árnason og Ó. Davíðsson, 1-4, Kaupmannahöfn, Bókmenntafélagið, 1887-1903
      Galdur og galdramál á Íslandi, 1-3, Reykjavík, Sögufélag, 1941-1943
      Ég læt allt fjúka: sendibréf og dagbókarbrot frá skólaárunum, Reykjavík, Ísafoldarprentsmiðja, 1955
      Íslenskar þjóðsögur, 1-4, Reykjavík, Þjóðsaga, 1978-1980
      Árið 1955 gaf Finnur Sigmundsson út dagbók Ólafs frá námsárum hans á Íslandi og í Danmörku, ásamt bréfum hans til föður síns á sama tíma, undir titlinum Ég læt allt fjúka.
      Hundakæti Ólafs Davíðssonar
      „Út úr þessu tali fórum vér að þreifa á hjörtum vorum og vita, hve hart þau slægju, en oss var ómögulegt að finna hjartað í mér. Vér fundum enga hjartslátt, þótt vér þreifuðum um allt brjóstið og alla hliðina á mér. Ég er líka fjarskalega feitur, einkum innanklæða.“
      Svo ritaði Ólafur Davíðsson, nemi við Lærða skólann í Reykjavík, í dagbók sína föstudaginn 19. maí 1882, skömmu áður en hann sigldi til framhaldsnáms í Kaupmannahöfn.

      Lausavísur eftir hann:
      Allir djöflar æri þig.
      Allt sem lifir særi þig.
      Fárleg örlög flengi þig.
      Fjandinn sjálfur hengi þig

      Finnst mér lífið fúlt og kalt
      fullt er þar af lygi og róg
      en brennivínið bætir allt
      bara ef það er drukkið nóg.

      Glímumaður guð var ei
      gat hann ekki Jakob fellt.
      Viðureign hans við Maríu mey
      menn ei vita, en hún hélt.

      Glæsir kátur hvítar bát og færi.
      Með voða orgi árvakur
      oft hann dorga smálúður.

      Greyið Stjarna grautartrog
      getur borið þessu sinni.
      Bara að hún fái ei flog
      og falli á rass á göngu sinni.

      Það kemur ekki mál við mig
      hvað Munda tólin kitla.
      En of oft tekur upp um sig
      Indíana litla.

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans voru Sigríður Ólafsdóttir Briem 19. maí 1839 - 2. nóvember 1920 Húsfreyja á Hofi í Hörgárdal. Sigríður Ólafsdóttir Briem 19. maí 1839 - 2. nóvember 1920 Húsfreyja á Hofi í Hörgárdal og Davíð Guðmundsson 15. júní 1834 - 27. september 1905 Prestur á Felli í Sléttuhlíð 1860-1873 og Hofi í Hörgárdal 1873-1905. Prófastur í Eyjafjarðarsýslu 1877-1897 og alþingismaður.
      Ólafur Davíðsson, þjóðsagnasafnari og náttúrufræðingur, fæddist að Felli í Sléttuhlíð, sonur Davíðs Guðmundssonar, pr. að Hofi í Hörgárdal, og k.h., Sigríðar Ólafsdóttur Briem. Systir Ólafs var Ragnheiður, móðir Davíðs Stefánssonar, skálds frá Fagraskógi. Sigríður, móðir Ólafs, var systir Valdimars Briem sálmaskálds og vígslubiskups, og Haralds Briem á Búlandsnesi, langafa Davíðs Oddssonar Morgunblaðsritstjóra. Móðir séra Davíðs Guðmundssonar var Ingibjörg, systir Jóns Árnasonar þjóðsagnasafnara.

      General context

      Ólafur lætur sannarlega margt fjúka, sérstaklega í dagbókinni, enda er hún óumdeilanlega skemmtilegasti hluti bókarinnar. Ég myndi örugglega ekki þola þennan sjálfsánægða MR-uppskafning ef ég kynntist honum í dag, en fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina bærilegri. Sem persóna í eigin 19. aldar skrifum er Ólafur reglulega sjarmerandi, léttúðugur og grimmilega hreinskilinn. Sjálfur vill hann heldur ekki meina að hann sé neitt montinn, heldur fyrst og fremst raunsær: „Jóni fannst ég hafa heldur mikið sjálfsálit. Ég var ekki samþykkur því. Ég sagði, að mér fyndist að sérhver ætti að láta sjálfan sig njóta sannmælis eins og aðra og fara um sig hólsorðum eða álasorðum eftir því, sem við ætti.“

      Líf Ólafs í Lærða skólanum er ekki að öllu leyti frábrugðið menntaskólalífi okkar daga: hann spásserar um götur Reykjavíkur með félögum sínum, borðar vínarbrauð, drekkur hálfbjóra og verður svínkaður, skrópar í tíma, les undir próf og spjallar við skólabræður sína um landsins gagn og nauðsynjar, pólitík, trúmál, bókmenntir og kvenfólk. Og tekst á hörkunni að læra að reykja, eins og mörgum fyrr og síðar: „Mér hefur oft orðið dauðillt af tóbaksnautn. Ég hef bliknað og hnigið næstum því í dá, fengið jafnvel nábít og velgju og gubbað, en ég hef ekki látið það á mig fá og haldið áfram, og nú hef ég unnið sigur. Nú kann ég að reykja og taka í nefið.“
      Það er ekki laust við að það sé djammað í Lærða skólanum og lýsingar Ólafs á skemmtanalífi piltanna eru afar líflegar og myndu sóma sér vel í raunveruleikasjónvarpsþáttum okkar daga. Stendur þar upp úr löng og nákvæm lýsing á dansleik sem haldinn var í tilefni af afmæli konungs vorið 1882, en þar gerðust „busar og kastringar“ sérstaklega mjög ölvaðir. Einn þeirra meig og gubbaði í rúmið sitt, dröslaði svo félaga sínum blindfullum upp í rúmið „svo að honum yrði kennt um ósóma þann, er hann hafði gjört sjálfur“ og marseraði að því búnu aftur inn í samdrykkjusalinn „á sokkaleistunum og hafði penem útbyrðis“.

      Ólafur var góður félagi barnanna Davíðs Stefánssonar, síðar skálds, og barna skólastjórans á Möðruvöllum, Huldu Á. Stefánsdóttur, sem Davíð átti síðar eftir að yrkja til ótal ástarljóð og Valtýs, síðar ritstjóra Morgunblaðsins. Sviplegt fráfall Ólafs, er hann drukknaði í Hörgá 1903, snart börnin djúpt. Um þessa atburði er fjallað í ævisögu Davíðs Stefánssonar, Snert hörpu mína, eftir Friðrik G. Olgeirsson, útg. 2007.

      Relationships area

      Related entity

      Hannes Davíðsson (1880-1963) Hofi í Hörgárdal (4.11.1880 - 16.4.1963)

      Identifier of related entity

      HAH03549

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Hannes Davíðsson (1880-1963) Hofi í Hörgárdal is the sibling of Ólafur Davíðsson (1862-1903) cand phil Hofi í Hörgárdal

      Dates of relationship

      4.11.1880

      Description of relationship

      Related entity

      Guðmundur Davíðsson (1866-1942) Hraunum í Fljótum (22.1.1866 - 23.9.1942)

      Identifier of related entity

      HAH03988

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Davíðsson (1866-1942) Hraunum í Fljótum is the sibling of Ólafur Davíðsson (1862-1903) cand phil Hofi í Hörgárdal

      Dates of relationship

      22.1.1866

      Description of relationship

      Related entity

      Eggert Ólafur Gunnlaugsson Briem (1811-1894) Espihóli (15.10.1811 - 11.3.1894)

      Identifier of related entity

      HAH03079

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Eggert Ólafur Gunnlaugsson Briem (1811-1894) Espihóli is the cousin of Ólafur Davíðsson (1862-1903) cand phil Hofi í Hörgárdal

      Dates of relationship

      1862

      Description of relationship

      Ólafur var sonur Sigríðar (1839-1920) dóttur Ólafs Eggerts (1808-1859) bróður Eggerts Briem sýslumanns

      Related entity

      Jóhann Gunnlaugur Briem (1801-1880) Prestur í Árósum (19.4.1801 - 10.3.1880)

      Identifier of related entity

      HAH05315

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Jóhann Gunnlaugur Briem (1801-1880) Prestur í Árósum is the cousin of Ólafur Davíðsson (1862-1903) cand phil Hofi í Hörgárdal

      Dates of relationship

      1862

      Description of relationship

      dóttursonur Ólafs bróður Jóhanns

      Related entity

      Hulda Stefánsdóttir (1897-1989) Skólastýra Kvsk (1.1.1897 - 25.3.1989)

      Identifier of related entity

      HAH01457

      Category of relationship

      associative

      Type of relationship

      Hulda Stefánsdóttir (1897-1989) Skólastýra Kvsk is the friend of Ólafur Davíðsson (1862-1903) cand phil Hofi í Hörgárdal

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Related entity

      Sigurður Jónasson (1863-1887) stúdent frá Eyjólfsstöðum (8.12.1863 - 7.8.1887)

      Identifier of related entity

      HAH01244

      Category of relationship

      associative

      Type of relationship

      Sigurður Jónasson (1863-1887) stúdent frá Eyjólfsstöðum is the friend of Ólafur Davíðsson (1862-1903) cand phil Hofi í Hörgárdal

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Námu saman við Kaupmannahafnar háskóla urðu þar fyrir áhrifum Brandesarstefnunnar, báðir enduðu líf sitt með drukknun.

      Related entity

      Gísli Guðmundsson (1859-1884) Bollastöðum (12.1.1859 - 1884)

      Identifier of related entity

      HAH01243

      Category of relationship

      associative

      Type of relationship

      Gísli Guðmundsson (1859-1884) Bollastöðum is the friend of Ólafur Davíðsson (1862-1903) cand phil Hofi í Hörgárdal

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Námu saman við Kaupmannahafnar háskóla urðu þar fyrir áhrifum Brandesarstefnunnar, báðir enduðu líf sitt með drukknun.

      Related entity

      Davíð Guðmundsson (1834-1905) prestur Hofi í Hörgárdal (15.6.1834 - 27.9.1905)

      Identifier of related entity

      HAH03016

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Davíð Guðmundsson (1834-1905) prestur Hofi í Hörgárdal is the parent of Ólafur Davíðsson (1862-1903) cand phil Hofi í Hörgárdal

      Dates of relationship

      26.2.1862

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01787

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 8.8.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        Maintenance notes