Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

Parallel form(s) of name

  • Oddur Alfreð Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      23.7.1911 - 26.3.1983

      History

      Places

      Oddur A. Sigurjónsson er Austur-Húnvetningur að uppruna, fæddur á Grund í Svínadal 23. júlí 1911. Oddur varð snemma áhugamaður um stjórnmál og hefur mikið lagt af mörkum á þeim vettvangi, ætíð eindreginn jafnaðarmaður. Fyrr á árum var hann í framboði til Alþingis í ýmsum kjördæmum, og í bæjarstjórn Neskaupssstaðar sat hann ein þrjú kjörtímabil. Eftir að hann tók við sínu annasama embætti hér syðra, hafa færri stundir gefizt til stjórnmálaafskipta. En áhuginn hefur ekki dvínað. Og marga grein hefur Oddur skrifað til stuðnings málstað sínum. Stjórnmálin hafa verið honum hugsjón og tilbreyting, en alls ekki tæki til valda eða ábata, eins og svo títt er. Til að mynda bauð hann sig jafnan fram í kjördæmum, þar sem flokksfylgi var svo naumt, að vonlaust var að ná kosningu til Alþingis. Í einkalífi hefur Oddur verið lánsamur maður. Á heimili hans hefur jafnan ríkt fjör og lífsgleði, og má ekki síður þakka það frú Magneu, konu hans, og börnum þeirra hjóna, sem eru nú sum horfin að heiman, en önnur enn heima. Þau hjónin hafa ekki aðeins stutt hvort annað og byggt upp heimili sitt með sameigilegu átaki, heldur og engu síður bætt hvort annað upp með ólíkum hæfileikum.
      Oddur er þéttur á velli og þéttur í lund, enda hefur hann því aðeins náð sínu marki, að hann hefur ekki haft fyrir sið að láta í minni pokann. Frú Magnea er aftur á móti gædd svo léttri glaðværð, að enginn getur verið öðru vísi en í sólskinsskapi í návist hennar. Bæði eru með afbrigðum skemmtin, gestrisn og hjálpfús. Og þar eð frændgarðurinn er á báða bóga fjölmennur, hefur hús þeirra legið svo sem um þjóðbraut þvera. Þeir, sem hafa leitað þar athvarfs og átt þar gleðistundir, eru fleiri en tölu verður á komið. En þvílík risna kostar sitt. Er ekki of djúpt tekið í árinni að segja, að hvorugt þeirra
      hjóna hafi nokkru sinni hlíft sér við erfiði né fyrirhöfn. Enda hefur fjölskyldan lengstum verið fjölmenn, þó nú sé aftur tekið að fækka í húsi þeirra:, börnin eru sex.

      Síðast bús. í Vestmannaeyjum.

      Legal status

      Nemandi á Akureyri 1930. Hóf nám í Menntaskólanum á Akureyri, sem var þá ung menntastofnun með glæst fyrirheit, fátækur eins og flestir á þeirri tíð: og lauk þaðan stúdentsprófi 1935, þá tæpra tuttugu og fjögurra ára. Gangfræðaprófi lauk hann 1930 og stúdentsprófi frá Menntaskóla Akureyrar 1935, en það nám hafði hann að miklu leyti stundað utanskóla. Próf í forspjallsvísindum tók hann í Háskóla íslands 1936 og loks kennaraprófi frá Kennaraskólanum 1937.

      Functions, occupations and activities

      Skólastjóri í Neskaupstað 1937 og Kópavogi 1960. Þegar Oddur lét af skólastjórn í Kópavogi 1974, gerðist hann blaðamaður við Alþýðublaðið um fjögurra ára skeið, en þau hjón fluttu síðan heimili sitt til Vestmannaeyja 1978.

      Mandates/sources of authority

      Á Neskaupstaðarárunum gaf hann út Hamar, fjölritað blað, sem hann skrifaði og vann að öllu leyti. Óvíða mun málstaður Alþýðuflokksins hafa verið sóttur og varinn af meira harðfylgi en á síðum Hamars, enda ritstjórinn ekki þekktur fyrir hálfvelgju, vingulshátt eða vettlingatök, hvorki í ræðu né riti.

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans voru Sigurjón bóndi að Rútsstöðum í Svínavatnshreppi, Oddssonar sjómanns í Brautarholti í Reykjavík, Jónssonar, og Ingibjörg Jósefsdóttir bónda á Hamri í Svínavatnshreppi, Jósefssonar.
      Oddur A. Sigurjónsson kvæntist eftirlifandi konu sinni, Magnea Sigríður Bergvinsdóttir 26. febrúar 1917 - 1. október 2001 Húsfreyja í Neskaupstað og í Vestmannaeyjum. Var í Líndalshúsi, Svalbarðseyri, Svalbarðssókn, S-Þing. 1930. Síðast bús. í Vestmannaeyjum., 13. ágúst 1938, dóttur Bergvins Jóhannssonar verkamanns og konu hans Sumarrósar Magnúsdóttur. Magnea er mikil mannkostamanneskja og hefur án efa reynst manni sínum ómetanlegur lífsförunautur. Hún hefur verið eiginkona, móðir og húsmóðir í þeirri bestu merkingu, sem þau orð hafa í huga og hjarta okkar, enda duldist engum, hversu Oddur mat hana mikils. Þau hjón eignuðust sex börn, röskar og dugandi manneskjur, sem bera vitni um hollt og gott uppeldi og þá mannkosti, er þau eiga kyn til.
      Börn þeirra eru:
      1) Rósa Ingibjörg, stöðvarstjóri Íslandspósts, Kópavogi, f. 10. febr. 1940, sambýlismaður hennar er Sigurður Sigvaldason. Börn hennar og Guðmundar Bjarnasonar eru: Oddur Magni, maki Auður Finnbogadóttir og eiga þau tvo syni og hún son af fyrra sambandi. Hólmar, látinn. Hólmar Ingi, sambýliskona Tina Dalun og á hann tvö börn frá fyrra hjónabandi. Elma Bjarney, maki Þorgils Björgvinsson og eiga þau einn son.
      2) Jóhann Bergvin, skipstjóri í Vestmannaeyjum, f. 22. apríl 1943, maki María Friðriksdóttir. Börn þeirra: Lúðvík fv alþingismaður. Magnea, maki Daníel Lee Davis og eiga þau tvö börn. Haraldur, maki Hrefna Óskarsdóttir og eiga þau tvo syni.
      3) Guðmundur Magnús, skólastjóri í Kópavogi, f. 22. apríl 1943, maki Sóley Stefánsdóttir. Börn þeirra eru: Stefanía, maki Þorsteinn Geirsson og eiga þau tvær dætur. Sigrún, maki Jóhann Jóhannsson og eiga þau tvö börn. Sunna, sambýlismaður Ívar Sigurjónsson.
      4) Hrafn Óskar, stýrimaður í Vestmannaeyjum, sambýliskona Friðrikka Svavarsdóttir. Barn þeirra er Lind. Börn Friðrikku frá fyrra hjónabandi og fóstursynir Hrafns, Björgúlfur Stefánsson. Hlynur Stefánsson, maki Unnur Sigmarsdóttir og eiga þau þrjú börn.
      5) Svanbjörg, kennari í Vestmannaeyjum, f. 5.okt. 1951, maki Sævaldur Elíasson. Börn þeirra eru Hörður, sambýliskona Hulda Birgisdóttir. Hildur. Hrafn, sambýliskona Helga Björg Garðarsdóttir.
      6) Lea, hjúkrunarforstjóri í Vestmannaeyjum, f. 27. sept. 1955. Barn hennar og Inga Rúnars Eðvaldssonar er Sigurlaug Birna Leudóttir

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Guðrún Jóhannsdóttir (1898-1966) Rútsstöðum (23.7.1898 - 12.5.1966)

      Identifier of related entity

      HAH04348

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      23.7.1911

      Description of relationship

      Related entity

      Steinunn Sigurjónsdóttir (1929-1973) Rútsstöðum (5.1.1929 - 12.12.1973.)

      Identifier of related entity

      HAH08011

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Steinunn Sigurjónsdóttir (1929-1973) Rútsstöðum is the sibling of Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

      Dates of relationship

      5.1.1929

      Description of relationship

      samfeðra

      Related entity

      Sigurbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir (1917-2010) frá Rútsstöðum (27.9.1917 - 8.5.2010)

      Identifier of related entity

      HAH01928

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sigurbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir (1917-2010) frá Rútsstöðum is the sibling of Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

      Dates of relationship

      27.9.1917

      Description of relationship

      Samfeðra

      Related entity

      Þorbjörg Sigurjónsdóttir (1912-1991) Einarsnesi (2.10.1912 - 13.10.1991)

      Identifier of related entity

      HAH02134

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Þorbjörg Sigurjónsdóttir (1912-1991) Einarsnesi is the sibling of Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

      Dates of relationship

      23.7.1911

      Description of relationship

      Alsystkin

      Related entity

      Haukur Sigurjónsson (1926-2013) Þrúðvangi Hvammstanga og Hótelstj Blönduósi (22.10.1926 - 2.8.2013)

      Identifier of related entity

      HAH01394

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Haukur Sigurjónsson (1926-2013) Þrúðvangi Hvammstanga og Hótelstj Blönduósi is the sibling of Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Samfeðra.

      Related entity

      Ástríður Sigurjónsdóttir (1925-1996) Ljótshólum (22.1.1925 - 1.2.1996)

      Identifier of related entity

      HAH01098

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ástríður Sigurjónsdóttir (1925-1996) Ljótshólum is the sibling of Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Samfeðra

      Related entity

      Árni Sigurjónsson (1937) Rútsstöðum (17.12.1937 -)

      Identifier of related entity

      HAH08941

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Árni Sigurjónsson (1937) Rútsstöðum is the sibling of Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

      Dates of relationship

      17.12.1937

      Description of relationship

      Samfeðra.

      Related entity

      Guðmundur Sigurjónsson (1933) Rútsstöðum (24.2.1933 -)

      Identifier of related entity

      HAH04104

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Sigurjónsson (1933) Rútsstöðum is the sibling of Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

      Dates of relationship

      24.2.1933

      Description of relationship

      Samfeðra

      Related entity

      Ólafur Sigurjónsson (1920-2014) Tungu (26.6.1920 - 11.12.2014)

      Identifier of related entity

      HAH02320

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ólafur Sigurjónsson (1920-2014) Tungu is the sibling of Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

      Dates of relationship

      26.6.1920

      Description of relationship

      Samfeðra

      Related entity

      Guðrún Sigurjónsdóttir (1922-2021) Syðri-Grund (16.7.1922 - 6.5.2021)

      Identifier of related entity

      HAH04452

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðrún Sigurjónsdóttir (1922-2021) Syðri-Grund is the sibling of Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

      Dates of relationship

      16.7.1922

      Description of relationship

      samfeðra

      Related entity

      Þorsteinn Sigurjónsson (1919-1971) Rútsstöðum (22.6.1919 - 22.8.1971)

      Identifier of related entity

      HAH06052

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Þorsteinn Sigurjónsson (1919-1971) Rútsstöðum is the sibling of Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

      Dates of relationship

      29.6.1919

      Description of relationship

      samfeðra

      Related entity

      Sigurjón Oddsson (1891-1989) Rútsstöðum (7.6.1891 - 10.9.1989)

      Identifier of related entity

      HAH01965

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sigurjón Oddsson (1891-1989) Rútsstöðum is the parent of Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

      Dates of relationship

      23.7.1911

      Description of relationship

      Móðir Odds var Ingibjörg Jósefsdóttir 31. desember 1882 - 10. október 1955

      Related entity

      Ingibjörg Jósefsdóttir (1882-1955) Grund og Einarsnesi (31.12.1882 - 10.10.1955)

      Identifier of related entity

      HAH04892

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ingibjörg Jósefsdóttir (1882-1955) Grund og Einarsnesi is the parent of Oddur Sigurjónsson (1911-1983) frá Rútsstöðum

      Dates of relationship

      23.7.1911

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01779

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 15.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes