Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Magnús Björnsson (1942-2014) frá Flögu
Hliðstæð nafnaform
- Magnús Björnsson (1942-2014) frá Flögu
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
1.9.1942 - 26.2.2014
Saga
Magnús Björnsson frá Flögu í Vatnsdal fæddist í Reykjavík 1. september 1942. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 26. febrúar 2014. Magnús ólst upp á Flögu í Vatnsdal. Magnús verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju í dag, 11. mars 2014, og hefst athöfnin kl. 11.
Staðir
Flaga í Vatnsdal:
Réttindi
Hann naut almennrar menntunar þess tíma, gekk í farskóla Ásahrepps og tvo vetur í Hlíðadalsskóla. Hann stundaði nám í Myndlistarskólanum í Reykjavík á árunum 1961-1962. Magnús lauk sveinsprófi í húsgagnasmíði frá Iðnskólanum í Reykjavik 1966 og í framhaldi meistaraprófi í því fagi.
Starfssvið
Starfaði hann í Trésmiðju Víðis á námsárunum. Magnús vann sem smiður við Búrfellsvirkjun 1968-1969. Fagþekking Magnúsar á húsgagnahönnun var mikil og hannaði hann sjálfur töluvert af húsgögnum og innréttingum. Samhliða húsgagnahönnun starfaði Magnús sem bankastarfsmaður í Landsbankanum á árunum 1969-1993. Árið 1997 réð hann sig sem húsvörð fyrir þjónustuíbúðir fyrir aldraða á Dalbraut. Magnús sat í ýmsum nefndum og sat síðast í stjórn húsfélagsins í Bólstaðarhlíð 43 og 45 þar sem hann bjó.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Magnús var sonur Bergþóru Magnúsdóttur, f. 27. janúar 1921, d. 8. apríl 1995, og Gunnars Viggós Jóelssonar, f. 12. júní 1918, d. 19. desember 1990.
Kjörforeldrar Magnúsar voru Elsa Lyng Magnúsdóttir frá Flögu í Vatnsdal, f. 15. desember 1917, d. 11. janúar 2011, og Björn Sigfús Sigurðsson frá Kornsá í Vatnsdal, f. 6. júlí 1920, d. 14. maí 2010.
Alsystkini Magnúsar eru Guðlaug Gunnarsdóttir, f. 14. apríl 1939, og Ingi Sverrir Gunnarsson, f. 17. ágúst 1941.
Magnús kvæntist 29. október 1966 Hallfríði Kristínu Skúladóttur, f. 19. mars 1945.
Dætur þeirra:
1) Margrét, f. 15. maí 1967, d. 24. febrúar 2008. Sambýlismaður hennar til ársins 2004: Þórir Ófeigsson, f. 18. ágúst 1966. Synir þeirra: Oddur Þór, f. 28. maí 1996, og Sindri Dagur, f. 23. júní 1999.
2) Elsa Lyng, f. 25. júlí 1973, maki Stefán Torfi Höskuldsson, f. 5. júlí 1972, börn þeirra eru Krista Karólína, f. 13. apríl 2002, og Magnús Máni, f. 9. apríl 2010.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er foreldri
Magnús Björnsson (1942-2014) frá Flögu
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 4.7.2017
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði
Íslendingabók
mbl 11.3.2014. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1501402/?item_num=1&searchid=7ecddc1c988388d8789a1eff31270bd67be9b0fa
Athugasemdir um breytingar
Stafræn eining metadata
Aðgengi
Heiti skjals
Magns_Bjrnsson1942-2014_frFl__gu.jpg
Latitude
Longitude
Gerð miðla
Mynd
Mime-type
image/jpeg