Kristján Stefán Sigurðsson (1924-1997) Læknir Blönduósi

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Kristján Stefán Sigurðsson (1924-1997) Læknir Blönduósi

Parallel form(s) of name

  • Kristján Stefán Sigurðsson læknir

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      14.11.1924 - 9.11.1997

      History

      Kristján Stefán Sigurðsson fæddist í Hælavík á Hornströndum 14. nóvember 1924. Hann lést á Landspítalanum í Reykjavík 9. nóvember 1997.
      Útför Kristjáns fór fram frá Hallgrímskirkju 14.11.1997 og hófst athöfnin klukkan 13.30.

      Places

      Hælavík á Hornströndum: Ísafjörður: Reykjavík: Hvammstangi 1956: Blönduós 1956-1958: Svíþjóð: Patreksfjörður 1961-1966: Keflavík:

      Legal status

      Kristján lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Ísafjarðar. Hann las svo samfara vinnu utanskóla við máladeild Menntaskólans í Reykjavík og varð stúdent þaðan árið 1946. Hann lagði eftir það stund á læknisfræði við Háskóla Íslands og lauk þaðan læknaprófi árið 1954 og hlaut almennt lækningaleyfi árið 1956. Kristján hélt síðan til Svíþjóðar og stundaði framhaldsnám í skurðlækningum árin 1958 til 1961.

      Functions, occupations and activities

      Frá 1956-1958 var hann læknir á Hvammstanga (6 mán.) og í Blönduóshéraði. Eftir heimkomu varð hann héraðslæknir í Patreksfjarðarhéraði frá 1961-1966, en þá var einungis einn læknir þar. Hann starfaði síðan við Landspítalann árin 1966-1971, lengst af við handlækningadeild spítalans. Árið 1971 var hann ráðinn yfirlæknir við Sjúkrahúsið í Keflavík og starfaði þar, þangað til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir árið 1992. Kristján var alla sína starfsævi virkur félagi í Lionshreyfingunni. Hann hafði yndi af söng og var einn af stofnendum Karlakórs Patreksfjarðar. Einnig var hann um langt skeið félagi í Stangaveiðifélagi Keflavíkur.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans voru þau Sigurður Sigurðsson (f. 28. mars 1892, d. 9. maí 1968), fæddur á Læk í Aðalvík, síðar bóndi í Hælavík og símstöðvarstjóri á Hesteyri. Kona Sigurðar var Stefanía Guðnadóttir (f. 22. júní 1897, d. 17. nóv. 1973), fædd í Hælavík. Börn Sigurðar og Stefaníu voru 13, en eftirtalin eru látin; Jakobína, f. 1918, Sigurður Kristinn, f. 1923, dó 11 ára. Ingólfur Marteinn, f. 1926, Baldvin Lúðvík, f. 1928, Guðmundur Jóhann, f.1929, Guðni Kjartans, f. 1931, lést fjögurra ára. Eftirlifandi eru; Sigurborg Rakel, f. 1919, Ólafía Ásdís, f. 1920, Sigríður Stefanía, f. 1922, Guðrún Rósa, f. 1930, Fríða Áslaug, f. 1940, Guðný Sigrún, f. 1945.
      Kristján kvæntist 20. apríl 1950. Eftirlifandi kona hans er Valgerður Guðrún, fædd 20. apríl 1929. Valgerður er dóttir Halldórs Árnasonar, bónda í Garði í Mývatnssveit, og konu hans, Sigríðar Jónsdóttur, en bæði eru látin.
      Kristján og Valgerður eignuðust fimm börn, sem eru:
      1) Hildur, ljósmóðir, f. 1950, gift Ingibirni Hafsteinssyni kaupmanni. Þau eiga fjögur börn á lífi og eitt barnabarn. Tvö barna þeirra eru látin.
      2) Halldór, verkfræðingur, f. 1952, kvæntur Jennýju Ágústsdóttur, tannlækni. Þau eiga tvær dætur.
      3) Sigurður, barnalæknir, f. 1955, kvæntur Guðríði Önnu Daníelsdóttur, tannlækni, þau eiga þrjú börn.
      4) Hjalti, heimilislæknir, f. 1958, kvæntur Veru Björk Einarsdóttur, hjúkrunarfræðingi. Þau eiga þrjú börn á lífi, en eitt barna þeirra er látið.
      5) Guðrún Þura, sjúkraþjálfari og nuddari, f. 1966. Guðrún á eina dóttur.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Héraðshæli Austur Húnvetninga Blönduósi (1955-) (31.12.1955)

      Identifier of related entity

      HAH10014

      Category of relationship

      hierarchical

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Læknir þar 1957

      Related entity

      Valgerður Halldórsdóttir (1929-2000) Héraðshælinu 1957 (20.4.1929 - 25.4.2000)

      Identifier of related entity

      HAH02113

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Valgerður Halldórsdóttir (1929-2000) Héraðshælinu 1957 is the spouse of Kristján Stefán Sigurðsson (1924-1997) Læknir Blönduósi

      Dates of relationship

      20.4.1950

      Description of relationship

      Börn þeirra 1) Hildur Kristjánsdóttir f. 14. október 1950. gift Ingibirni Tómasi Hafsteinssyni f. 2. júlí 1944. 2) Halldór Kristjánsson f. 29. maí 1952, Verkfræðingur, kvæntur Jennýju Ágústsdóttur tannlækni. 3) Sigurður Kristjánsson f. 23. febrúar 1955 barnalæknir, kvæntur Guðríði Önnu Daníelsdóttur tannlækni f. 4. desember 1957 4) Hjalti Kristjánsson f. 23. nóvember 1958, heimilislæknir, kvæntur Veru Björk Einarsdóttur f. 12. apríl 1958, hjúkrunarfræðingi.

      Related entity

      Hildur Kristjánsdóttir (1950) ljósmóðir (14.10.1950 -)

      Identifier of related entity

      HAH03483

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Hildur Kristjánsdóttir (1950) ljósmóðir is the child of Kristján Stefán Sigurðsson (1924-1997) Læknir Blönduósi

      Dates of relationship

      1950

      Description of relationship

      Related entity

      Halldór Kristjánsson (1952) Héraðshælinu 1957 (29.5.1952 -)

      Identifier of related entity

      HAH04676

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Halldór Kristjánsson (1952) Héraðshælinu 1957 is the child of Kristján Stefán Sigurðsson (1924-1997) Læknir Blönduósi

      Dates of relationship

      29.5.1952

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01690

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 3.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes