Kollafjarðarnes á Ströndum

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Kollafjarðarnes á Ströndum

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        (1950)

        History

        Kollafjörður er stuttur fjörður á Ströndum. Bændur þar lifa á sauðfjárrækt. Grunnskóli var rekinn á Broddanesi frá 1978 fram til ársins 2004, en hætti þá um haustið og skólabörnum er nú ekið til Hólmavíkur. Skólabyggingin er nú notuð í ferðaþjónustu, en þar er farfuglaheimili. Hún er teiknuð af dr. Magga Jónssyni arkitekt.
        Næsti fjörður norðan við Kollafjörð er Steingrímsfjörður og næsti fjörður sunnan við er Bitrufjörður. Úr botni Kollafjarðar liggur vegur nr. 69 yfir í Gilsfjörð um Steinadalsheiði.
        Utarlega í Kollafirði norðanverðum standa tveir steindrangar í fjöruborðinu, í Drangavík. Sagan segir að þeir séu tröll sem dagaði þar uppi eftir að hafa gert tilraun til að skilja Vestfirði frá meginlandinu. Kjálkann ætluðu þau að hafa fyrir tröllaríki. Stærri drangurinn er kerlingin og sá minni er karlinn. Þriðja tröllið sem tók þátt í þessari vinnu er drangurinn sem Drangsnes er kennt við.
        Á Kollafjarðarnesi er kirkja, byggð úr steinsteypu árið 1909. Það er elsta steinsteypta hús á Ströndum. Kollafjarðarnes er nú í eyði. Á sveitabænum Felli var um tíma rekin sumardvöl fyrir fatlaða einstaklinga.
        Erfið siglingaleið er inn á fjörðinn vegna skerja. Þjóðsagan segir að kerlingin Hnyðja hafi lagt á fjörðinn að þar myndi aldrei drukkna maður og heldur aldrei fást þar bein úr sjó, eftir að synir hennar tveir drukknuðu í fiskiróðri.

        Places

        Kollafjörður; Strandir; Broddanes; Hólmavík; Steingrímsfjörður; Bitrufjörður; Steinadalsheiði; Drangavík; Drangsnes; Fell:

        Legal status

        Functions, occupations and activities

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        Jarðir í Kollafirði;

        Broddadalsá tvíbýli, önnur jörðin frístundadvalarstaður, á henni stundaður sauðfjárbúskapur
        Broddanes fjórbýli, sauðfjárbúskapur stundaður á þremur, frístundadvalarstaður á einni
        Stóra-Fjarðarhorn, í byggð, sauðfjárbúskapur
        Undraland, frístundadvalarstaður
        Þrúðardalur, eyðibýli, íbúðarhús uppistandandi
        Hamar, eyðibýli, engar byggingar
        Fell, í byggð, ekki búskapur
        Miðhús, í byggð, sauðfjárbúskapur
        Steinadalur, í byggð, sauðfjárbúskapur
        Ljúfustaðir, frístundadvalarstaður
        Litla-Fjarðarhorn, frístundadvalarstaður
        Hlíð, eyðibýli, engar byggingar
        Kollafjarðarnes, frístundadvalarstaður, kirkjustaður

        Síðastnefnda jörðin, yst við norðanverðan Kollafjörð, tilheyrðu áður Kirkjubólshreppi og síðar Hólmavíkurhreppi, en hinar tilheyrðu Broddaneshreppi, síðar Fellshreppi og síðan aftur Broddaneshreppi. Nú eru öll þessi sveitarfélög hluti af Strandabyggð.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Hólmavík við Steingrímsfjörð (3.6.1890 -)

        Identifier of related entity

        HAH00298

        Category of relationship

        hierarchical

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Húnaflói (874 -)

        Identifier of related entity

        HAH00891

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Kollafjörður gengur úr Húnaflóa

        Related entity

        Kerlingin í Drangavík (874 -)

        Identifier of related entity

        HAH00356b

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Steinadalsheiði, Gilsfjörður, Drangavík (874 -)

        Identifier of related entity

        HAH00335

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Jón Ásgeirsson (1839-1898) Þingeyrum (16.3.1839 - 26.7.1898)

        Identifier of related entity

        HAH05509

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Jón Ásgeirsson (1839-1898) Þingeyrum is the associate of Kollafjarðarnes á Ströndum

        Dates of relationship

        16.3.1839

        Description of relationship

        fæddur þar

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH00356

        Institution identifier

        IS HAH Vestf

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 25.2.2019

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes