Kerlingin í Drangavík

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Kerlingin í Drangavík

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        874 -

        History

        Steinadalsheiði er heiði á milli Gilsfjarðar og Kollafjarðar á Ströndum, milli bæjanna Gilsfjarðarbrekku og Steinadals. Við Heiðarvatn á miðri heiðinni eru mót þriggja sýslna - Strandasýslu, Austur-Barðastrandasýslu og Dalasýslu.
        Sumarvegur liggur um Steinadalsheiði, sem hefur nú vegnúmerið 690 (var númer 69 fram til 1994). Á árunum 1933-48 var sá vegur aðalleiðin milli Hólmavíkur og annarra landshluta. Akvegurinn norður Strandir leysti hann af hólmi þegar hann var tekinn í notkun árið 1948.
        Kollafjarðarnes.
        Kerlingin í Drangavík.

        Places

        Legal status

        Functions, occupations and activities

        Í fyrndinni voru þrjú tröll á Vestfjörðum sem tóku sig til og ætluðu að moka sund á milli Vestfjarða og hins landsins nálægt því sem það er mjóst, milli Gilsfjarðar og Kollafjarðar. Þó höfðu þau annan tilgang um leið: þau ætluðu sumsé að búa til eyjar af því sem þau mokuðu úr sundinu.
        Að vestanverðu gekk moksturinn miklu betur enda var Breiðifjörður allur grynnri en Húnaflói og þeim megin tvö tröllin, karl og kerling, og mynduðu þau af mokstrinum allar eyjarnar sem enn eru eins og berjaskyr á Breiðafirði. En að austanverðu fór allt miður úr hendi þeirri einu tröllkonunni sem þar var, því bæði er aumt eins liðið og Húnaflói miklu dýpri og varð það því flest allt að blindskerjum sem hún mokaði og leið næsta óhrein og skerjótt um flóann.

        Tröllin voru að moka alla liðlanga nóttina og gættu ekki að sér fyrr en dagur var kominn upp á háloft. Þá tóku vestantröllin til fótanna og hlupu svo hart sem þau gátu komist austur og norður yfir Steinadalsheiði og ætluðu að fela sig í Kollafirði. En þegar þau komu ofan á sjávarbakkann kom sólin upp og urðu þau þar bæði að steinum sem síðan heita Drangar. Standa þeir hvor hjá öðrum í svokallaðri Drangavík nálægt Kollafjarðarnesi. Er annar drangurinn allur meiri um sig ofan og mjókkar niður, það er karlinn, en hinn er uppmjór, en gildnar allur niður svo sýnist móta fyrir maga og niðurhlut og jafnvel lærum á honum, það er kerlingin.

        En frá kerlingunni sem mokaði að austanverðu er það að segja að hún varð of naumt fyrir og gáði sín ekki fyrr en birta fór. Hún stökk þá norður yfir Steingrímsfjörð og staðnæmdist hjá klettabelti einu fyrir norðan fjörðinn sem Malarhorn heitir, þegar sólin skein á hana. Hún var svo reið að hún náði ekki upp í nefið á sér af því að hún hafði ekki getað látið standa upp úr Húnaflóa nema fáeina varphólma á fjörðum og nokkur smásker. Rak hún þá rekuna í grellsköpum í Hornið svo fast að úr því sprakk ey sú sem enn er á Steingrímsfirði og Grímsey heitir.

        Er það eina stóreyjan sem tröllkonu þessari tókst að mynda. Og segja menn að grjótlagið sé allt hið sama í eynni sem í Malarhorni og sé það því auðséð að af því bergi sé hún brotin.

        Rétt við eystri eyjarendann er klettur einn líkur nauti að lögun; hann er hár og hnarreistur þeim megin sem frá eynni snýr enda er hann kallaður Uxi og er hnarreisti endinn á honum svipaður kirkjuturni, og áttu það að hafa verið horn uxans. Þann uxa átti kerling og stóð hann á eynni þegar hún sprakk fram á fjörðinn, en dagaði þar uppi eins og fóstru hans.

        Síðan hefir enginn ráðist í að búa til eyjar á Breiðafirði eða Húnaflóa né heldur reynt að moka sundur landið milli meginlands og Vestfjarða.

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Strandasýsla

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Kollafjarðarnes á Ströndum ((1950))

        Identifier of related entity

        HAH00356

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Steinadalsheiði, Gilsfjörður, Drangavík (874 -)

        Identifier of related entity

        HAH00335

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Engey í Kollafirði (874 -)

        Identifier of related entity

        HAH00928

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Steintröll á Íslandi (874 -)

        Identifier of related entity

        HAH00003a

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH00356b

        Institution identifier

        IS-HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        25.3.2023

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes