Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Jósef Halldórsson (1917-2008)
Hliðstæð nafnaform
- Jósef Halldórsson (1917-2008) frá Garðakoti í Skagafirði
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
12.10.1917 - 28.4.2008
Saga
Jósef Halldórsson var fæddur að Garðakoti í Hjaltadal 12. október 1917. Hann lést 28. apríl 2008 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Jósef ólst upp í Garðakoti og einnig Hofsstöðum þar til að hann fluttist til Reykjavíkur 1933 og hóf þar nám í húsasmíði hjá frænda sínum, Birni Rögnvaldssyni, sem starfaði um árabil sem eftirlitsmaður ríkisbygginga á vegum Húsameistara ríkisins. Jósef lauk sveinsprófi 1937 og vann síðan við byggingar og eigið verkstæði þar til hann réðist til Meistarafélags húsasmiða 1966. Hann var einn af stofnendum Meistarafélags húsasmiða og starfaði þar allt til þess að hann veiktist 1987. Jósef var einnig einn af stofnendum Harmonikufélagsins í Reykjavík. Síðastliðna tvo áratugi hefur hann búið á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi og notið þar frábærrar umönnunar starfsfólks heimilisins.
Jósef verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 15.
Staðir
Garðakot í Hjaltadal: Reykjavík 1933:
Réttindi
sveinspróf í húsasmíði 1937, hjá frænda sínum, Birni Rögnvaldssyni, Hann var einn af stofnendum Meistarafélags húsasmiða og starfaði þar allt til þess að hann veiktist 1987.
Jósef var einnig einn af stofnendum Harmonikufélagsins í Reykjavík.
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hans voru Ingibjörg Jósefsdóttir og Halldór Gunnlaugsson Garðakoti.
Systkini Jósefs: Kristín, gift Hartmanni Guðmundssyni b., Þrasastöðum Fjótum; Gunnlaugur, lést ungur; Hólmlaug, gift Árna Stefánssyni lögfræðingi í Reykjavík; Hildur, gift Runólfi Þórðarssyni, verkfræðingi í Reykjavík; Gunnlaugur, b. Brattavöllum, Árskógsströnd, kvæntur Guðrúnu Kristjánsdóttur. Öll systkini hans eru látin nema Gunnlaugur.
Jósef kvæntist 19.11. 1938 Jónu Ástu Sigurðardóttur, f. 29.9. 1913. Þau skildu. Foreldrar hennar voru Sigurlaug Jónsdóttir og Sigurður Jónsson Hömrum í Laxárdal.
Börn þeirra:
1) Hafsteinn, f. 1.11. 1936, d. 7.2. 2006, var kvæntur Ingveldi Magnúsdóttur. Þau skildu. Börn þeirra eru þrjú auk þess sem Hafsteinn átti tvö börn frá fyrri sambúð. Ingibjörg Erla, f. 25.5. 1939, var gift Birni Alfreðssyni. Þau skildu. Þau eiga þrjú börn,
2) Þröstur f. 17.12. 1940, d. 31.12. 1999, Reykjavík, var kvæntur Ósk Pétursdóttur. Þau skildu. Börn þeirra eru þrjú auk þess sem hann átti tvö börn frá fyrri sambúð.
Jósef kvæntist 27.1. 1945 Dýrfinnu Helgadóttur, f. 4.10. 1925, d. 14.9. 1991. Þau skildu. Foreldrar hennar voru Helgi Jörgensson og Anna Sigurðardóttir, Reykjavík.
Börn þeirra:
3) Gunnlaugur, f. 6.7. 1945, kvæntur Lilju Njálsdóttur og eiga þau fjögur börn. Helgi, f. 7.2. 1947, d. 3.12. 2005. Kona hans var Arnbjörg Pálsdóttir og eru dætur þeirra þrjár.
4) Halldór, f. 23.6. 1949, d. 18.3. 1986, var kvæntur Ólöfu Guðrúnu Albertsdóttur og eru dætur þeirra fjórar.
5) Gunnar, f. 6.4. 1953, var kvæntur Brynhildi Egilson. Þau skildu. Þau eiga þrjá syni. Seinni kona Gunnars er Thongleg Utsa og eiga þau tvær dætur.
Jósef kvæntist 16.11. 1974 Ingibjörgu Gísladóttir, f. 13.10. 1915, d. 9.7. 2006. Foreldrar hennar voru Gísli Jónsson, b. í Saurbæ í Vatnsdal, og kona hans, Katrín Grímsdóttir.
Börn Ingibjargar frá fyrra hjónabandi eru: Guðni, Guðrún Katrín, Gísli, Sigurður, Baldur og Gunnar Dagbjartsbörn.
Auk þess ólst upp hjá Jósef og Ingibjörgu
Lars Kjartan, sonur Guðrúnar Katrínar.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 28.6.2017
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
Foreldrar hans voru Ingibjörg Jósefsdóttir og Halldór Gunnlaugsson Garðakoti.
Systkini Jósefs: Kristín, gift Hartmanni Guðmundssyni b., Þrasastöðum Fjótum; Gunnlaugur, lést ungur; Hólmlaug, gift Árna Stefánssyni lögfræðingi í Reykjavík; Hildur, gift Runólfi Þórðarssyni, verkfræðingi í Reykjavík; Gunnlaugur, b. Brattavöllum, Árskógsströnd, kvæntur Guðrúnu Kristjánsdóttur. Öll systkini hans eru látin nema Gunnlaugur. Jósef kvæntist 19.11. 1938 Jónu Ástu Sigurðardóttur, f. 29.9. 1913. Þau skildu. Foreldrar hennar voru Sigurlaug Jónsdóttir og Sigurður Jónsson Hömrum í Laxárdal. Börn þeirra: Hafsteinn, f. 1.11. 1936, d. 7.2. 2006, var kvæntur Ingveldi Magnúsdóttur. Þau skildu. Börn þeirra eru þrjú auk þess sem Hafsteinn átti tvö börn frá fyrri sambúð. Ingibjörg Erla, f. 25.5. 1939, var gift Birni Alfreðssyni. Þau skildu. Þau eiga þrjú börn, Þröstur f. 17.12. 1940, d. 31.12. 1999, Reykjavík, var kvæntur Ósk Pétursdóttur. Þau skildu. Börn þeirra eru þrjú auk þess sem hann átti tvö börn frá fyrri sambúð. Jósef kvæntist 27.1. 1945 Dýrfinnu Helgadóttur, f. 4.10. 1925, d. 14.9. 1991. Þau skildu. Foreldrar hennar voru Helgi Jörgensson og Anna Sigurðardóttir, Reykjavík. Börn þeirra: Gunnlaugur, f. 6.7. 1945, kvæntur Lilju Njálsdóttur og eiga þau fjögur börn. Helgi, f. 7.2. 1947, d. 3.12. 2005. Kona hans var Arnbjörg Pálsdóttir og eru dætur þeirra þrjár. Halldór, f. 23.6. 1949, d. 18.3. 1986, var kvæntur Ólöfu Guðrúnu Albertsdóttur og eru dætur þeirra fjórar. Gunnar, f. 6.4. 1953, var kvæntur Brynhildi Egilson. Þau skildu. Þau eiga þrjá syni. Seinni kona Gunnars er Thongleg Utsa og eiga þau tvær dætur. Jósef kvæntist 16.11. 1974 Ingibjörgu Gísladóttir, f. 13.10. 1915, d. 9.7. 2006. Foreldrar hennar voru Gísli Jónsson, b. í Saurbæ í Vatnsdal, og kona hans, Katrín Grímsdóttir. Börn Ingibjargar frá fyrra hjónabandi eru: Guðni, Guðrún Katrín, Gísli, Sigurður, Baldur og Gunnar Dagbjartsbörn. Auk þess ólst upp hjá Jósef og Ingibjörgu Lars Kjartan, sonur Guðrúnar Katrínar.