Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Ingibjörg Árnadóttir (1922-2015) Selfossi, frá Miðgili
Hliðstæð nafnaform
- Ingibjörg Árnadóttir (1922-2015) frá Miðgili
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
19.9.1922 - 13.8.2015
Saga
Ingibjörg Árnadóttir fæddist að Miðgili í Langadal A-Húnavatnssýslu 19. september 1922. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum 13. ágúst 2015. Imma ólst upp við hefðbundin sveitastörf á æskuheimilinu. Tvo vetur var hún við nám í Kvennaskólanum á Blönduósi og átti þaðan góðar minningar og hélt sambandi við margar skólasystur sínar árum saman. Þegar hún var í Kvennaskólanum kynntist hún eiginmanni sínum til 70 ára sem þá var skólasveinn á Bændaskólanum að Hólum. Árið 1945 hófu þau búskap á Selfossi sem þá var í mótun sem þéttbýlisstaður. 1948 fluttu þau að Eyrarvegi 12 og bjó fjólskyldan þar til ársins 1966 að þau fluttu að Mánavegi 1 sem var heimili þeirra í 48 ár. Fyrstu árin starfaði Imma á Hótel Selfoss og var það hennar vinnustaður af og til jafnhliða barnauppeldi og heimilisstörfum. Eftir að börnin uxu úr grasi fór hún að vinna hjá Kaupfélagi Árnesinga við afgreiðslu í bakaríinu við Eyrarveg og eru það margir sem minnast hennar þaðan. Hún var ein af stofnfélögum Kvenfélags Selfoss og var virk þar um árabil. Helsta áhugamál þeirra hjóna voru ferðalög um landið okkar fagra og eru fáir staðir sem þau hafa ekki heimsótt. Eitt af sameiginlegum áhugamálum þeirra var einnig hestamennska og voru þau félagsmenn í Hestamannafélaginu Sleipni. Ætíð var hún kvik í hreyfingum og voru gönguferðir partur af hennar daglega lífi. Heilsuhraust var hún með eindæmum alla tíð. Eftir að Einar fluttist að Fossheimum 2008 hélt hún ein heimili þar til hún var rúmlega 90 ára er hún flutti til hans og nutu þau síðustu æviáranna saman. Hún átti 16 langömmubörn og eitt langalangömmubarn.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Staðir
Miðgil í Langadal:
Réttindi
Kvsk á Blönduósi:
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hennar voru Vilborg Guðmundsdóttir, f. 1885, og Árni Ásgrímur Guðmundsson, f. 1888, bændur að Miðgili. Imma, eins og hún var alltaf kölluð, var næstelst fjögurra systra, þeirra Guðrúnar, f. 1921 (látin), Elísabetar Árnýjar, f. 1925, og Önnu, f. 1927.
Hún giftist 18. maí 1946 Einari Sigurðssyni frá Tóftum í Stokkseyrarhreppi, f. 7. júli 1922. Foreldrar hans voru Margrét Kristjánsdóttir, f. 1893, og Sigurður Kristinn Einarsson, f. 1891. Börn Immu og Einars eru
1) Vilborg Árný, f. 1946, hennar maður er Einar Hólm Ólafsson, börn þeirra a) Ingibjörg Hólm. b) Ólafur Hólm.
2) Sigurður Kristinn, f. 1948.
3) Jarþrúður Einarsdóttir, f. 1951, hennar maður er Sigurbjörn Árnason, börn þeirra a) Arnar. b) Harpa. c) Katla. Áður átti Sigurbjörn dótturina Þorbjörgu.
4) Margrét, f. 1959, maður hennar var Ómar Halldórsson, þau skildu, dætur þeirra eru a) Urður. b)Halla. Áður átti Ómar dótturina Aþenu, sem ólst að hluta upp hjá þeim.
5) Sonja Ingibjörg, f. 1961, hennar maður er Hrafn Stefánsson, þeirra synir eru a) Einar Ingi. b) Heiðar Númi.
Hún átti 16 langömmubörn og eitt langalangömmubarn.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er foreldri
Ingibjörg Árnadóttir (1922-2015) Selfossi, frá Miðgili
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er foreldri
Ingibjörg Árnadóttir (1922-2015) Selfossi, frá Miðgili
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Ingibjörg Árnadóttir (1922-2015) Selfossi, frá Miðgili
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Ingibjörg Árnadóttir (1922-2015) Selfossi, frá Miðgili
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Ingibjörg Árnadóttir (1922-2015) Selfossi, frá Miðgili
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
is the cousin of
Ingibjörg Árnadóttir (1922-2015) Selfossi, frá Miðgili
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
is the cousin of
Ingibjörg Árnadóttir (1922-2015) Selfossi, frá Miðgili
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
is the cousin of
Ingibjörg Árnadóttir (1922-2015) Selfossi, frá Miðgili
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
is the grandparent of
Ingibjörg Árnadóttir (1922-2015) Selfossi, frá Miðgili
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 25.6.2017
Tungumál
- íslenska