Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Halldór Stefánsson (1872-1955) búfræðingur
Hliðstæð nafnaform
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
2.5.1872 - 8.7.1955
Saga
Halldór Stefánsson 2. maí 1872 - 8. júlí 1955. Verkamaður á Akureyri 1930. Búfræðingur frá Ólafsdalsskóla. Ráðsmaður í Eyjafirði, síðar starfsmaður Vatnsveitu Akureyrar.
Staðir
Akureyri
Réttindi
Búfræðingur frá Ólafsdalsskóla
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hans; Stefán Gamalíelsson 7. des. 1819 - 14. mars 1874. Vinnumaður á Grímsstöðum, Reykjahlíðarsókn, S-Þing. 1845. Bóndi í Haganesi og kona hans 28.9.1849; Björg Helgadóttir 19. apríl 1825 - 8. nóv. 1893. Var á Skútustöðum, Skútustaðasókn, Þing. 1835. Húsfreyja í Haganesi í Mývatnssveit. Var í Garði, Skútustaðasókn, S-Þing. 1890.
Systkini hans;
1) Baldvin Stefánsson 15. september 1849 - 29. október 1931 Hjá foreldrum í Haganesi við Mývatn um 1855-60 og 1871-72. Var í Haganesi, Skútustaðasókn, S-Þing. 1860. Í vistum og húsmennsku á ýmsum bæjum við Mývatn á árunum 1873-77 og 1884-1900. Húsmaður í Ytri-Neslöndum í Reykjarhlíðarsókn, S-Þing. 1910. Var í Garði, Skútustaðahreppi, S-Þing. 1920. Þurfamaður á Grímsstöðum, Skútustaðasókn, S-Þing. 1930.
2) Þórarinn Stefánsson 6. nóvember 1850 - 16. júlí 1860 Hjá foreldrum í Haganesi að minnsta kosti 1855-60.
3) Guðbjörg Stefánsdóttir 3.9.1852 - 16. júlí 1860
4) Stefán Stefánsson 30. júlí 1854 - 5. febrúar 1929 Bóndi á Skútustöðum og Ytri-Neslöndum í Mývatnssveit.
5) Helgi Stefánsson 2.10.1856 - 27.7.1860
6) Hjálmar Stefánsson 22.9.1858 - 22.7.1860
7) Þórarinn Stefánsson 6. febrúar 1861 - 13. mars 1949 Hjá foreldrum í Haganesi til um 1873. Í vistum og vinnumennsku, lengst í Mývatnssveit og einnig á Helgastöðum í Reykjadal eitt árið á árunum um 1874-87. Bóndi í Álftagerði í Mývatnssveit 1888. Fór þaðan til Vesturheims 1889. Til er nokkurt safn bréfa sem hann skrifaði Guðbjörgu systur sinni á Íslandi. Bóndi í Beaulieu, Pembina, N-Dakota, Bandaríkjunum 1900. Var í Dauphin, Manitoba, Kanada 1906 og 1911. Fiskimaður í Nelson, Manitoba, Kanada 1916.
8) Guðbjörg Stefánsdóttir 30. maí 1863 - 17. okt. 1937. Húsfreyja í Garði í Mývatnssveit, S-Þing. Var þar 1930. Maður hennar 12.7.1883; Árni Jónsson 19. sept. 1856 - 19. nóv. 1926. Var í Garði, Skútustaðasókn, S-Þing. 1860. Bóndi í Garði, Skútustaðasókn, S-Þing. 1890. Bóndi í Garði í Mývatnssveit. Börn þeirra ma; Arnþór (1904-1983) Kennari Lundi ov. og Þura í Garði skáldkona.
8) Helga Stefánsdóttir 21. júní 1865 - 11. júlí 1912 Með foreldrum í Haganesi í fyrstu. Í vistum og vinnumennsku í Mývatnssveit lengstaf 1874-90. Húsfreyja á Geirastöðum, Skútustaðahreppi frá 1890 fram um 1900.
9) Hjálmar Jónas Stefánsson 5. feb. 1869 - 24. des. 1943. Ólst upp að talsverðu leyti á Neslöndum við Mývatn. Stundaði barnakennslu um tíma. Bóndi á Ljótsstöðum í Laxárdal 1895-96 og á Syðri-Neslöndum við Mývatn 1896-1902. Var í Víðikeri og Jarlsstaðaseli, Bárðardal og á Sveinsströnd í Mývatnssveit og víðar, t.d. í Reykjavík, vann að húsamálun, fiðluleik og fleiru. Bóndi og kennari í Vagnbrekku í Mývatnssveit frá 1922. Bóndi í Vagnbrekku, Skútustaðasókn, S-Þing. 1930. Skáldmæltur og safnaði fróðleik um ættir. Þekktur víða um land fyrir fiðluleik og gekk undir nafninu „Hjálmar fiðlari“. „hafa ... menn sagt ... að hann hafi gengið með fiðluna sína út um hagann og spilað fyrir blómin. Einnig að hann hafi leitað þangað sem fossar féllu og notað fossniðinn fyrir undirspil.“ segir í Árbók Þingeyinga.
Fyrri kona Hjálmars; Jakobína Björnsdóttir Fáfnis 25. maí 1874 - 15. apríl 1941. Var á Granastöðum, Þóroddsstaðarsókn, Þing. 1880. Var í Reykjahlíð, Reykjahlíðarsókn, S-Þing. 1890. Húsfreyja á Ljótsstöðum í Laxárdal 1895-96 og á Syðri-Neslöndum við Mývatn 1896-1902. Þau Hjálmar slitu samvistum 1903 og þá flutti hún að Stóru-Reykjum í Reykjahverfi. Nam ljósmóðurfræði syðra 1904-05. Var síðan ljósmóðir á Húsavík, í Mývatnssveit, í Öxarfirði og á Akureyri. Síðar skáldkona í Vesturheimi, fluttist vestur 1923. Ljóð hennar voru gefin út í bókinni „Hvíli ég væng á hvítum voðum“ Þau skildu.
Seinni kona Hjálmars; Kristín Hólmfríður Jónsdóttir 25. maí 1878 - 14. apríl 1970. Húsfreyja og húskona í Miðhvammi og á Kraunastöðum í Aðaldal og Helgastöðum í Reykjadal, S-Þing. Húsfreyja síðan í Víðikeri og Jarlsstaðaseli í Bárðardal og Sveinsströnd og Vagnbrekku í Mývatnssveit. Þau byggðu Vagnbrekku 1922 og bjuggu þar lengi. Ráðskona á Vagnbrekku, Skútustaðasókn. Sonur þeirra Arinbjörn (1919-2011) faðir Ásdísar (1971) hjúkrunarfræðings á Blönduósi, konu Þórðar Pálssonar frá Sauðanesi.
Kona hans; Ingibjörg Lýðsdóttir 12.7.1874. Húsfreyja á Akureyri.
Börn þeirra;
1) Anna Halldórsdóttir 5.6.1902 - 21.5.1975. Fór frá Hvoli, Dal. til Akureyrar 1928. Húsfreyja á Akureyri 1930. Húsfreyja. Síðast bús. á Akureyri. Anna var tvígift, fyrri maður hennar var; Sigurður Lýðsson f. 5.6.1889 - 23.2.1927 Bóndi á Hvoli í Saurbæjarhr., Dal. frá 1922 til æviloka. „Efnismaður sem hann átti kyn til“, segir í Dalamönnum. Frá Skriðnesenni og áttu þau tvö börn, en misstu annað,
Seinni maður Önnu var; Hermann Ingimundarson f. 29.5.1893 - 31.3.1961. Bóndi á Hvítadal í Saurbæ, Dal. 1922-27. Trésmiður á Akureyri 1930. Trésmiður á Akureyri.og var hann frá Staðarhóli í Saurbæ í Dalasýslu.
2) Stefán Halldórsson 21.4.1905 - 30.3.1996. Múrarameistari og verkstjóri á Akureyri. Steinsmiður á Akureyri 1930. Síðast bús. á Akureyri.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 13.2.2020
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði