Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Halldór Ingimar Elíasson (1939-2019) prófessor
Parallel form(s) of name
- Halldór Elíasson (1939-2019) prófessor
- Halldór Ingimar Elíasson (1939-2019) prófessor
- Halldór Ingimar Elíasson prófessor
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
16.7.1939 - 1.10.2019
History
Dr. Halldór Ingimar Elíasson, stærðfræðingur og prófessor emeritus við Háskóla Íslands (HÍ), lést á Landspítalanum 1. október 2019, 80 ára gamall.
Halldór fæddist 16. júlí 1939 á Ísafirði og ólst upp í Hnífsdal, á Skagaströnd og Akureyri.
Places
Hnífsdalur; Skagaströnd; Reykjavík
Legal status
Halldór lauk stúdentsprófi frá MA árið 1959 og hóf um haustið nám í eðlisfræði og stærðfræði við háskólann í Göttingen í Þýskalandi. Hann lauk þaðan diplomprófi í stærðfræði árið 1963. Doktorspróf í stærðfræði tók Halldór við háskólann í Mainz í Þýskalandi árið 1964.
Functions, occupations and activities
Að loknu námi kenndi Halldór við MR veturinn 1964-1965. Hann vann að stærðfræðilegum rannsóknum við Institute of Advanced Studies í Princeton í Bandaríkjunum 1965-1966 og var aðstoðarprófessor við Brown-háskóla á Rhode Island í Bandaríkjunum 1966-67.
Halldór var sérfræðingur við Raunvísindastofnun HÍ 1967-1970 og gestaprófessor við háskólann í Bonn í Þýskalandi 1970-1971 og við Warwick-háskóla í Englandi 1971-1972. Hann varð dósent í stærðfræði við verkfræði- og raunvísindadeild HÍ 1972-1973 og prófessor frá 1973.
Mandates/sources of authority
Halldór birti margar greinar um stærðfræði í viðurkenndum erlendum stærðfræðitímaritum. Hann var ritstjóri Mathematica Scandinavica fyrir hönd Íslands 1973-1997.
Internal structures/genealogy
Foreldrar hans; Elías Kristján Ingimarsson 11. jan. 1903 - 4. ágúst 1965. Bókhaldari á Bakka, Ísafjarðarssókn, N-Ís. 1930. Frystihússtjóri og kaupfélagsstjóri á Bakka í Hnífsdal, N.-Ís., verksmiðjustjóri á Skagaströnd, síðar yfirfiskimatsmaður og frystihússtjóri á Akureyri, síðast í Reykjavík og kona hans; Guðný Rósa Jónasdóttir 28. des. 1906 - 22. mars 1987. Hjá foreldrum í Ytri-Neslöndum og síðan á Grímsstöðum, Mývatnssveit til 1893. Fór þaðan til Vesturheims 1893.
Systkini hans eru;
1) Jónas Janus Elíasson prófessor emeritus f. 26.5.1938.
2) Þorvarður Rósinkar Elíasson fyrrverandi skólastjóri f. 9.7.1940.
3) Elías Bjarni Elíasson fyrrverandi yfirverkfræðingur f. 13.3.1942
4) Margrét Elíasdóttir listmálari í Svíþjóð f. 13.12.1946.
Kona Halldórs 1970 er; Björg Cortes Stefánsdóttir, BA, kennari og læknaritari 2. sept. 1947.
Börn þeirra eru;
1) Stefán Valdimar Halldórsson f .8.12.1968
2) Anna Margrét Halldórsdóttir 18. sept. 1973
3) Steinar Ingimar Halldórsson 13. maí 1975
General context
Relationships area
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 4.12.2019
Language(s)
- Icelandic