Guðrún Árnadóttir (1887-1975) rithöfundur frá Lundi

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Guðrún Árnadóttir (1887-1975) rithöfundur frá Lundi

Parallel form(s) of name

  • Guðrún Baldvina Árnadóttir (1887-1975) rithöfundur frá Lundi

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

    • Guðrún frá Lundi

    Identifiers for corporate bodies

    Description area

    Dates of existence

    3.6.1887 - 22.8.1975

    History

    Guðrún Árnadóttir 3. júní 1887 - 22. ágúst 1975 Var á Lundi, Knappstaðasókn, Skag. 1890. Húsfreyja á Neðra-Nesi, Hvammssókn, Skag. 1930. Skáldkona og húsfreyja á Ytra-Mallandi. Síðast bús. á Sauðárkróki. [Guðrún frá Lundi].
    Guðrún fæddist á Lundi í Stíflu í Fljótum í Skagafirði, ein af ellefu börnum Árna Magnússonar og Baldvinu Ásgrímsdóttur. Hún ólst upp í Lundi til ellefu ára aldurs og kenndi sig jafnan við þann bæ sem rithöfundur. Á unglingsárum átti hún heima á Höfðaströnd og Skaga. Árið 1910 giftist hún Jóni Þorfinnssyni og bjuggu þau lengi á Ytra-Mallandi á Skaga en fluttu til Sauðárkróks árið 1940 og áttu þar heima til æviloka.

    Places

    Lundur í Stíflu í Fljótum í Skagafirði
    Höfðaströnd
    Ytra-Malland á Skaga
    Sauðárkrókur

    Legal status

    Rithöfundur

    Functions, occupations and activities

    Ritskrá;

    Dalalíf, 1946–1951, 5 bindi (1: Æskuleikir og ástir; 2: Alvara og sorgir; 3: Tæpar leiðir; 4: Laun syndarinnar; 5: Logn að kvöldi).
    Afdalabarn, 1950.
    Tengdadóttirin, 1952–1954, 3 bindi (1: Á krossgötum; 2: Hrundar vörður; 3: Sæla sveitarinnar).
    Þar sem brimaldan brotnar, 1955. — Fyrra bindi af tveimur.
    Römm er sú taug, 1956. — Síðara bindi af tveimur.
    Ölduföll, 1957.
    Svíður sárt brenndum, 1958. — Fyrsta bindi af þremur.
    Á ókunnum slóðum, 1959. — Annað bindi af þremur.
    Í heimahögum, 1960. — Þriðja bindi af þremur.
    Stýfðar fjaðrir (3 bindi), 1961–1963.
    Hvikul er konuást, 1964.
    Sólmánaðardagar í Sellandi, 1965. — Fyrsta bindi af þremur.
    Dregur ský fyrir sól, 1966. — Annað bindi af þremur.
    Náttmálaskin, 1967. — Þriðja bindi af þremur.
    Gulnuð blöð, 1968.
    Utan frá sjó (4 bindi), 1970–1973.

    Mandates/sources of authority

    Guðrún skrifaði mikið þegar hún var barn og unglingur en ekkert þann tíma sem hún var húsmóðir í sveit. Eftir að hún flutti á Sauðárkrók hóf hún skriftir að nýju og fyrsta bindi Dalalífs, fimm binda skáldsögu hennar (samtals 2189 bls.), kom út árið 1946, þegar Guðrún var 59 ára, og náði miklum vinsældum. Eftir það sendi hún frá sér eina bók á ári allt til 1973, nema árið 1969. Hún skrifaði því samtals 26 bækur en sögurnar eru færri því sumar skáldsagna Guðrúnar voru í nokkrum bindum.

    Guðrún sækir efnivið sinn í sveitalífið og allar bækur hennar nema ein gerast í sveit, flestar um eða upp úr aldamótum 1900. Guðrún frá Lundi skrifaði fyrst og fremst sjálfri sér og öðrum til ánægju. Bækur hennar eru þjóðlegar skemmtibókmenntir en um leið raunsæjar og henni þykir takast einstaklega vel að lýsa hversdagslífi og daglegu amstri. Bækur hennar nutu framan af lítils álits meðal bókmenntafræðinga og ritdómara en þær hafa lifað og haldið vinsældum og í rauninni má segja að Guðrún hafi skapað sérstaka bókmenntagrein sem nýtur æ meiri viðurkenningar.

    Internal structures/genealogy

    Foreldrar hennar; Árni Magnússon 15. september 1854 - 29. febrúar 1924 Var á Brúnastöðum, Holtssókn, Skag. 1870. Var á Illugastöðum, Stórholtssókn, Skag. 1880. Bóndi á Syðra-Mallandi á Skaga, Skag. og kona hans 24.10.1881; Baldvina Ásgrímsdóttir 25. desember 1858 - 10. nóvember 1941 Húsfreyja á Syðra-Mallandi á Skaga, Skag. Var í Enni, Hofssókn, Skag. 1901.
    Systkini hennar;
    1) Aðalbjörg Árnadóttir 16. júní 1882 - 13. júlí 1882
    2) Ásmundur Árnason 9. september 1884 - 17. júní 1962 Bóndi á Ytra-Mallandi á Skaga, Skag. og síðar á á Ásbúðum, Skagahr., A-Hún. Var þar 1957. Ásmundur „var yfirburðagreindur maður“ segir í Skagf.1910- Bóndi í Ásbúðum, Ketusókn, A-Hún. 1930. 1950 II. Kona Ásmundar 18.12.1906; Steinunn Sveinsdóttir 26. janúar 1883 - 10. október 1974 Húsfreyja á Ytra-Mallandi og í Ásbúðum á Skaga. Var í Ásbúðum, Skagahr., A-Hún. 1957. Steinunn var „hlý og hreinlynd, en hafði öra lund“ segir í Skagf.1910-1950 II.
    3) Magnea Aðalbjörg Árnadóttir 28. september 1883 - 18. desember 1968 Húsfreyja á Syðri-Ey, Vindhælishr., Hún.
    4) Ingibjörg Kristín Árnadóttir 6. október 1885 - 18. júlí 1966 Verkakona á Sauðárkróki 1930. Síðast bús. á Sauðárkróki.
    5) Anna Árnadóttir 10. febrúar 1889 - 14. janúar 1891 Var á Lundi, Knappstaðasókn, Skag. 1890.
    6) Magnús Antoníus Árnason 6. ágúst 1891 - 10. febrúar 1975 Bóndi á Ketu, Hvammssókn, Skag. 1930. Bóndi á Ketu á Skaga, Skag. Síðast bús. í Reykjavík.
    7) Jónína Árnadóttir 4. ágúst 1893 - 18. nóvember 1980 Húsfreyja í Neðranesi á Skaga 1915-23 á Kleif á Skaga, Skag. 1923-35 síðar á Sauðárkróki. Húsfreyja á Kleif, Hvammssókn, Skag. 1930. Síðast bús. á Sauðárkróki.
    8) Ásgrímur Árnason 30. september 1896 - 18. janúar 1933 Var í Enni, Hofssókn, Skag. 1901. Bóndi á Syðra-Mallandi á Skaga, Skefilsstaðahr., Skag. Bóndi þar 1930.
    9) Helga Árnadóttir 1. febrúar 1898 - 4. febrúar 1985 Hjúkrunarkona á sjúkrahúsinu á Blönduósi 1930. Bús. í Neðra-Nesi og síðar Ásbúðum í Skagahreppi.
    10) Lilja Kristín Árnadóttir 29. júní 1901 - 27. desember 1981 Húsfreyja á Þorbjargarstöðum á Laxárdal ytri, Skag. Húsfreyja þar 1930. Síðast bús. á Sauðárkróki.

    Maður hennar 1910; Jón Jóhann Þorfinnsson 28.10.1884 - 20.12.1960. Var í Ytri-Vík, Reynistaðasókn, Skag. 1901. Bóndi í Þverárdal, Bólstaðarhlíðarhr., A-Hún. Bóndi og smiður á Valabjörgum á Skörðum og á Ytra-Mallandi á Skaga. Bóndi í Neðra-Nesi, Hvammssókn, Skag. 1930.

    General context

    Relationships area

    Related entity

    Ásmundur Árnason (1884-1962) Ásbúðum á Skaga (9.9.1884 - 17.6.1962)

    Identifier of related entity

    HAH03657

    Category of relationship

    family

    Type of relationship

    Ásmundur Árnason (1884-1962) Ásbúðum á Skaga is the sibling of Guðrún Árnadóttir (1887-1975) rithöfundur frá Lundi

    Dates of relationship

    Description of relationship

    Related entity

    Helga Árnadóttir (1898-1985) hjúkrunarkona Blönduósi (1.2.1898 - 4.2.1985)

    Identifier of related entity

    HAH04871

    Category of relationship

    family

    Type of relationship

    Helga Árnadóttir (1898-1985) hjúkrunarkona Blönduósi is the sibling of Guðrún Árnadóttir (1887-1975) rithöfundur frá Lundi

    Dates of relationship

    Description of relationship

    Related entity

    Magnea Árnadóttir (1883-1968) Syðri-Ey (28.9.1883 - 18.12.1968)

    Identifier of related entity

    HAH08871

    Category of relationship

    family

    Type of relationship

    Magnea Árnadóttir (1883-1968) Syðri-Ey is the sibling of Guðrún Árnadóttir (1887-1975) rithöfundur frá Lundi

    Dates of relationship

    Description of relationship

    Related entity

    Magnús Árnason (1891-1975) Ketu á Skaga, fisksali í Reykjavík (6.8.1891 - 10.2.1975)

    Identifier of related entity

    HAH08874

    Category of relationship

    family

    Type of relationship

    Magnús Árnason (1891-1975) Ketu á Skaga, fisksali í Reykjavík is the sibling of Guðrún Árnadóttir (1887-1975) rithöfundur frá Lundi

    Dates of relationship

    Description of relationship

    Related entity

    Jónína Árnadóttir (1893-1980) Sauðárkróki (4.8.1893 - 18.11.1980)

    Identifier of related entity

    HAH08873

    Category of relationship

    family

    Type of relationship

    Jónína Árnadóttir (1893-1980) Sauðárkróki is the sibling of Guðrún Árnadóttir (1887-1975) rithöfundur frá Lundi

    Dates of relationship

    Description of relationship

    Related entity

    Lilja Árnadóttir (1901-1981) Þorbjargarstaðir á Skaga (29.6.1901 - 27.12.1981)

    Identifier of related entity

    HAH08872

    Category of relationship

    family

    Type of relationship

    Lilja Árnadóttir (1901-1981) Þorbjargarstaðir á Skaga is the sibling of Guðrún Árnadóttir (1887-1975) rithöfundur frá Lundi

    Dates of relationship

    Description of relationship

    Related entity

    Jón Jóhann Þorfinnsson (1884-1960) Þverárdal og Valabjörgum

    Identifier of related entity

    Category of relationship

    family

    Type of relationship

    Jón Jóhann Þorfinnsson (1884-1960) Þverárdal og Valabjörgum is the spouse of Guðrún Árnadóttir (1887-1975) rithöfundur frá Lundi

    Dates of relationship

    Description of relationship

    Access points area

    Subject access points

    Place access points

    Occupations

    Control area

    Authority record identifier

    HAH08869

    Institution identifier

    IS HAH

    Rules and/or conventions used

    Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

    Status

    Final

    Level of detail

    Full

    Dates of creation, revision and deletion

    GPJ skráning 21.4.2022
    MÞ 29.10.2025 Viðbót

    Language(s)

    • Icelandic

    Script(s)

      Sources

      ®GPJ ættfræði 21.4.2022
      Íslendingabók
      Wikipedia; https://is.wikipedia.org/wiki/Gu%C3%B0r%C3%BAn_fr%C3%A1_Lundi

      Maintenance notes