Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Guðrún Steingrímsdóttir (1929-2013) frá Höfðakoti á Skagaströnd
Hliðstæð nafnaform
- Guðrún Kristín Steingrímsdóttir (1929-2013) frá Höfðakoti á Skagaströnd
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
4.1929 - 31.10.2013
Saga
Guðrún Kristín Steingrímsdóttir fæddist á Skagaströnd 4. janúar 1929. Hún lést á Dvalar-og hjúkrunarheimilinu Grund 31. október 2013. Guðrún ólst upp á Skagaströnd til 14 ára aldurs, en þá var hún ráðin í vist á Holtastöðum í Langadal. Hún hóf nám við gagnfræðaskólann á Akureyri árið 1944 og lauk þaðan gagnfræðaprófi. 18 ára gömul fluttist hún til Reykjavíkur og hóf nám í Fósturskóla Íslands. Eftir útskrift þaðan sigldi hún til Danmerkur og vann þar um tíma á saumastofu Magasin du Nord og seinna á leikskóla. Hún fékk styrk til náms í skóla í Þýskalandi, og dvaldi þar í eitt ár. Þegar heim kom hóf hún störf sem leikskólakennari og vann við ýmsa leikskóla í Reykjavík og tvö sumur í Pálmholti á Akureyri. Eftir að hún giftist og stofnaði fjölskyldu starfrækti hún föndurskóla á heimili þeirra hjóna í Kennarablokkinni á Hjarðarhaga 28. Þar bjuggu þau mestallan sinn búskap. Guðrún var í stjórn Fóstrufélags Íslands á árunum 1981-1983. Frá árinu 1977 starfaði Guðrún sem leikskólastjóri, lengst af á Hagaborg v/Fornhaga, allt þar til hún lét af störfum sökum aldurs árið 1996. Frá árinu 2011 dvaldist Guðrún á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Guðrún verður jarðsungin frá Neskirkju í dag, 12. nóvember 2013, og hefst athöfnin klukkan 13.
Staðir
Skagaströnd: Reykjavík: Danmörk: Þýskaland: Akureyri:
Réttindi
Gagnfræðaskólinn á Akureyri 1944-1947; Nám í Fósturskóla Íslands 1947;
Starfssvið
Leikskólakennari: Föndurkennari:
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hennar voru hjónin Steingrímur Jónsson, sjómaður og bóndi, f. 1897, d. 1992, og Halldóra Pétursdóttir, húsmóðir, f. 1898, d. 1987.
Guðrún var elst af sínum systkinum. Þau eru: Jóna Sigríður, f. 1930, d. 2000, Ólína Marta, f. 1931, d. 1994, Anna Sigurlína, f. 1933, Gyða, f. 1935, d. 2011 og Sigurður Steinþór, f. 1937.
Eiginmaður Guðrúnar var Björgvin Jósteinsson kennari, fæddur á Stokkseyri 26. ágúst 1925, d. 18. des. 2008.
Börn þeirra eru:
1) Dóra, fiðluleikari, f. 1955. Börn: Ingvar, Karen Anna og Tómas Ingi. Ömmubarn: Viktor Owen.
2) Ingi Steinn rafmagnstæknifræðingur, f. 1956, kvæntur Veru Buus Nielsen. Börn: Sigrid og Aldis.
3) Dagný píanókennari, f. 1959, gift Jóhanni S. Bogasyni. Börn: Dagur, Guðbjörg Helga, Guðrún Halla og Björgvin Helgi.
4) Bryndís sellóleikari, f. 1966, gift Brjáni Ingasyni. Börn: Björg, Guðrún og Ingi.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er foreldri
Guðrún Steingrímsdóttir (1929-2013) frá Höfðakoti á Skagaströnd
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er foreldri
Guðrún Steingrímsdóttir (1929-2013) frá Höfðakoti á Skagaströnd
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Guðrún Steingrímsdóttir (1929-2013) frá Höfðakoti á Skagaströnd
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Guðrún Steingrímsdóttir (1929-2013) frá Höfðakoti á Skagaströnd
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
is the cousin of
Guðrún Steingrímsdóttir (1929-2013) frá Höfðakoti á Skagaströnd
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 21.5.2017
Tungumál
- íslenska