Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Guðlaugur Guðmundsson (1914-2002) frá Sunnuhlíð í Vatnsdal
Hliðstæð nafnaform
- Guðlaugur Guðmundsson
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
21.7.1914 - 25.11.2002
Saga
Guðlaugur Guðmundsson fæddist 21. júlí 1914 í Sunnuhlíð í Vatnsdal. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 25. nóvember 2002.
Vinnumaður í Koti, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Kaupmaður og leigubifreiðarstjóri. Síðast bús. í Reykjavík. Rithöfundur.
Útför Guðlaugs verður gerð frá Háteigskirkju á morgun, mánudaginn 9. desember, og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Staðir
Sunnuhlíð í Vatnsdal: Reykjavík:
Réttindi
Guðlaugur stundaði nám við Héraðsskólann á Reykjum og kynnti sér síðan loðdýrarækt og landbúnaðarstörf í Svíþjóð, Noregi og Danmörku.
Starfssvið
Hann starfaði við loðdýrarækt í Þingeyjarsýslu 1939-41.
Á stríðsárunum hóf Guðlaugur leigubílaakstur á bifreiðastöðinni Hreyfli. Árið 1960 byrjaði hann verslunarrekstur, fyrst í kjötbúðinni Hofsvallagötu 16 en byggði síðan verslunarhús ásamt Ólafi Pálssyni múrarameistara í Tindaseli 3 í Reykjavík. Þar rak fjölskyldan verslun til ársins 1995.
Guðlaugur hafði forgöngu um að reistur var minnisvarði á Beinahóli á Kili árið 1971 um Reynistaðarbræður er urðu þar úti 1780. Guðlaugur var alla tíð virkur í félagsmálum og sat í stjórnum ýmissa félagasamtaka, s.s. Hreyfils, Kaupmannasamtakanna og Skáksambands Íslands. Auk þess var hann félagi í Rithöfundasambandi Íslands.
Lagaheimild
Guðlaugur sinnti ritstörfum samhliða öðrum störfum. Hann skrifaði bækurnar Vinir dýranna (1956), Reynistaðarbræður (1968), Enginn má undan líta (1974) og Ástir í aftursæti (1978).
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar Guðlaugs voru Guðmundur Magnússon bóndi, f. 21.7. 1874, d. 20.9. 1934, og kona hans Guðrún Guðbrandsdóttir, f. 24.3. 1883, d. 13.9. 1968.
Guðlaugur var næstelstur sjö systkina. Eftirlifandi eru
1) Björn Guðmundsson 4. mars 1913 - 16. febrúar 2005 Ólst upp í Sunnuhlíð í Vatnsdal. Vinnumaður í Koti, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Bifreiðastjóri í Reykjavík lengst af starfsævi frá um 1940, síðast bús. í Reykjavík. á fullorðinsárum gerðist hann flugáhugamaður, tók sólópróf 1971 og flaug síðan landshorna á milli þar til hann var 85 ára.
2) Kjartan Jón Ólafsson Guðmundsson 28. júlí 1915 - 18. nóvember 1946 Var í Koti, Undirfellssókn, A-Hún. 1930.
3) Gestur Guðmundsson 20. september 1916 - 27. júní 2009 Var í Sunnuhlíð, Áshr., A-Hún. 1957. Bóndi í Sunnuhlíð og Kornbrekku.
4) Magnús Gunnar Guðmundsson 12. nóvember 1917 - 18. júlí 2008 Leigubílstjóri. Var í Koti, Undirfellssókn, A-Hún. 1930.
5) Sigurður Guðmundsson 23. ágúst 1920 - 25. ágúst 2005 Málarameistari, síðast bús. í Reykavík. Var í Koti, Undirfellssókn, A-Hún. 1930.
6) Rannveig Ingibjörg Guðmundsdóttir 27. júlí 1923 Húsfreyja í Noregi. Var í Koti, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. m.: Ole Andersen, f. 19.10.1921, d. 1.6.1993. Kjörsonur: Gunnar Andersen, f. 25.08.1958.
Guðlaugur kvæntist 17. júní 1944 Kristínu Þorsteinsdóttur verslunarmanni, f. 22.9. 1924. Dætur þeirra eru:
1) Margrét Þóra kennari, f. 7.2. 1944, gift Friðgeiri Björnssyni, dómstjóra í Reykjavík, f. 18.10. 1940, eiga þau tvær dætur, Kristínu, f. 9.8. 1971, sambýlismaður Björgvin Skúli Sigurðsson, og Guðlaugu, f. 29.10. 1972, unnusti Morten Findstrøm.
2) Sigrún verslunarmaður, f. 24.4. 1947, sambýlismaður Gunnlaugur Gunnarsson verslunarmaður, f. 20.4. 1957.
3) Guðmunda Hrönn kennari, f. 15.12. 1960, hún á eina dóttur, Huldu Margréti Erlingsdóttur, f. 1.11. 1994.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er foreldri
Guðlaugur Guðmundsson (1914-2002) frá Sunnuhlíð í Vatnsdal
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Guðlaugur Guðmundsson (1914-2002) frá Sunnuhlíð í Vatnsdal
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er maki
Guðlaugur Guðmundsson (1914-2002) frá Sunnuhlíð í Vatnsdal
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 19.9.2017
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði 1.10.2022
Íslendingabók
Íslendingaþættir Tímans 25.10.1968; https://timarit.is/page/3570104?iabr=on
mbl 8.12.2002.https://www.mbl.is/greinasafn/grein/703103/?item_num=3&searchid=35afc791fcea183253370270f84b5d76c7993566
Athugasemdir um breytingar
Stafræn eining metadata
Aðgengi
Heiti skjals
Gulaugur_Gumundsson1914-2002_frSunnuhl____Vatnsdal.jpg
Latitude
Longitude
Gerð miðla
Mynd
Mime-type
image/jpeg