Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Gestur Aðalgeir Pálsson (1925-2013) Bergsstöðum
Hliðstæð nafnaform
- Gestur Pálsson (1925-2013)
- Gestur Aðalgeir Pálsson
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
13.8.1925 - 17.5.2013
Saga
Var á Grund, Hofteigssókn, N-Múl. 1930. Bóndi á Bergsstöðum og húsvörður í Húnaveri, síðar bús á Blönduósi, í Reykjavík og Kópavogi.
Gestur Aðalgeir Pálsson fæddist á Grund á Jökuldal 13. ágúst 1925. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Grund 17. maí 2013.
Útför Gests verður gerð frá Fossvogskirkju í dag, 23. maí 2013, og hefst athöfnin kl. 13.
Staðir
Grund á Jökuldal: Bergsstaðir: Blönduós: Reykjavík: Kópavogur:
Réttindi
Starfssvið
Gestur var heima við bústörf hjá föður sínum fram yfir tvítugt, þá flutti hann til Akureyrar og fór að vinna ýmis störf, var hann lengst af hjá Vegagerðinni í brúarvinnu. 1963 hófu þau Kristín sambúð á Akureyri og voru þar til 1965 er þau tóku við sem húsverðir í Húnaveri og hófu búskap þar og á Bergsstöðum. Að Bergsstöðum fluttu þau 1974 og bjuggu þar til ársins 1989 þegar þau tóku aftur við húsvörslu í Húnaveri. Fluttu síðan til Blönduóss 1992 og bjuggu þar í sex ár. 1998 fluttu þau til Reykjavíkur og síðar í Kópavog.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hans voru Páll Vigfússon, f. 27.10. 1889, d. 21.4. 1961, frá Hnefilsdal og kona hans María Ingibjörg Stefánsdóttir frá Möðrudal, f. 4.8. 1887, d. 7.10. 1929.
Alsystkini Gests voru:
1) Arnfríður, f. 29.5. 1919, d. 31.1. 1998, Var á Grund, Hofteigssókn, N-Múl. 1930. Síðast bús. í Hafnarfirði.
2) Agnar Vigfús Pálsson, f. 29.8. 1920, d. 5.4. 2011 Var á Grund, Hofteigssókn, N-Múl. 1930.
3) Ragnheiður, f. 7.11. 1922, d. 19.2. 1999. Húsfreyja og verslunarmaður á Akureyri. Var á Grund, Hofteigssókn, N-Múl. 1930.
4) Stefán Arnþór, f. 3.12. 1923, d. 2.4. 2001 Húsamálari á Egilsstöðum. Var á Grund, Hofteigssókn, N-Múl. 1930. Síðast bús. á Egilsstöðum.
5) Þórólfur, f. 6.12. 1926.
María lést frá ungum börnum þeirra Páls,
en með seinni konu sinni Margréti Sigríði Benediktsdóttur frá Reyðarfirði, eignaðist hann
6) Hulda, f. 2.3. 1932, d. 5.1. 1987, Húsfreyja á Akureyri, í Reykjavík og Kaupmannahöfn. Síðast bús. í Danmörku.
7) Erla, f. 10.2. 1933 - 17. júlí 2013 Fiskverkakona á Akureyri.
8) Unnur, f. 12.8. 1935, d. 8.6. 2000, Húsfreyja og verkakona, síðast bús. á Akureyri.
9) Garðar, f. 10.1. 1942, d. 12.11. 1995, Síðast bús. í Arnarneshr.
10) Sævar, f. 16.8. 1943
11) Alda, f. 24.1. 1946.
Gestur giftist Kristínu Halldórsdóttir frá Bergsstöðum í Svartárdal 1963, f. 4.7. 1927, d. 8.10. 2007. Foreldrar hennar voru Halldór Jóhannsson frá Birningsstöðum í Ljósavatnsskarði, f. 20.7. 1895, d. 5.3. 1982, og Guðrún Guðmundsdóttir frá Leifsstöðum í Svartárdal, f. 19.7. 1900, d. 26.10. 1984.
Fyrir átti Gestur:
1) Eddu Skagfjörð, f. 3.2. 1952, móðir hennar var Elísabet Jakobsdóttir, f. 18.12. 1912, d. 6.11. 1992. Maki Eddu er Tryggvi Harðarson, f. 30.6. 1954. Dætur Eddu eru Eva Björg Eggertsdóttir, f. 8.6. 1973, hún á þrjú börn og Elísabet Eggertsdóttir, f. 14.5. 1979, hún á fjögur börn en eitt þeirra er látið.
Börn Gests og Kristínar eru:
2) Guðrún Halldóra, f. 30.9. 1963, hennar maður er Sveinn Kjartansson, f. 10.3. 1963, börn: Kjartan, Hilma Kristín og Gestur.
3) María Páley, f. 30.10. 1965, hennar maður er Vignir Smári Maríasson, f. 29.4. 1965, börn: Aðalgeir Gestur, Hrannar Már, hann á einn son, Elísabet Páley.
4) Aðalgeir Bjarki, f. 6.10. 1967, eiginkona hans er Brynja Guðnadóttir, f. 15.12. 1964, hennar börn og fósturbörn Aðalgeirs Bjarka eru: Berglind Magnúsdóttir, Hulda Magnúsdóttir, hún á tvö börn, Anna María Friðriksdóttir, Guðni Leifur Friðriksson og Stefán Jón Friðriksson.
Dóttir Kristínar og fósturdóttir Gests:
0) Bergljót Sigvaldadóttir, f. 1.11. 1954, maki Þorleifur Jónatan Hallgrímsson, f. 25.4. 1953, börn: Hallgrímur Magnús, hann á tvo börn, Kristín Hildur, hún á fimm börn, Gunnar Sveinn, hann á einn son og Bergþór Snær.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 19.9.2017
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði 1.5.2023
Íslendingabók
Mbl. http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1466791/?item_num=3&searchid=6f2b9b7fdcf62297a063285a44c60748385a0538