Fnjóskadalur Þingeyjarsýslu

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Fnjóskadalur Þingeyjarsýslu

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        (874) -

        History

        Fnjóskadalur (stundum kallaður Hnjóskadalur áður fyrr) er mikill dalur í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann dregur nafn af svokölluðum „fnjóskum“, sem eru „þurrir og feysknir trjábútar“.

        Dragáin Fnjóská rennur eftir honum. Í suðri endar hann í þrem eyðidölum, Bleiksmýrardal, Hjaltadal og Timburvalladal, en nyrst sveigir dalurinn til vesturs og heitir þar Dalsmynni. Um það rennur Fnjóská til sjávar í Eyjafirði. Norður af dalnum er Flateyjardalsheiði og norðan við hana Flateyjardalur. Vestan dalsins er Vaðlaheiði og vestan hennar er Svalbarðsströnd. Austan dalsins eru einnig fjöll, að norðan milli hans og Köldukinnar og að sunnan milli Fnjóskadals og Bárðardals. Þar á milli er Ljósavatnsskarð.

        Hringvegurinn liggur um Fnjóskadal og til vesturs til Svalbarðsstrandar um Víkurskarð, nokkru sunnan við Dalsmynni, en til austurs um Ljósavatnsskarð til Bárðardals. Áður lá vegurinn til Eyjafjarðar upp úr dalnum á móts við Ljósavatnsskarð yfir Vaðlaheiði, en nú hafa verið gerð jarðgöng undir heiðina, Vaðlaheiðargöng.

        Places

        Legal status

        Í Fnjóskadal er Vaglaskógur, einn stærsti upprunalegi skógur á Íslandi, en einnig eru þar Lundsskógur og Þórðarstaðaskógur.

        Functions, occupations and activities

        Dalurinn er grafinn af vatnsföllum, einkum Fnjóská og skriðjöklum á ísöld. Hann lá upphaflega beint norður og var þá Flateyjardalsheiði og Flateyjardalur hluti af honum og Fnjóská rann til sjávar í utanverðan Skjálfanda. Með tímanum grófu ár og jöklar skarð í fjöllin þar sem Dalsmynni er nú og svo fór að lokum að Fnjóska fann sér þar farveg og tók að renna til Eyjafjarðar.

        Í ísaldarlok, fyrir um 12.000 árum síðan, stífluðu jöklar Dalsmynni og Ljósavatnsskarð og þá myndaðist mikið jökullón í dalnum, um 40 kílómetra langt, og má enn sjá móta fyrir strandlínum þess hátt í hlíðum fjallanna. Lónið hvarf þegar jöklarnir hopuðu.

        Jarðhiti er við Reyki og þaðan liggur hitaveita allt til Grenivíkur.

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        Í dalnum eru margir bæir, og má þar meðal annarra nefna Steinkirkju, Þverá, Illugastaði, Kotungsstaðir, Végeirsstaði, Háls, Reyki, Hallgilsstaði og Sólvang.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Fnjóskárbrú í Fnjóskadal (1908 -)

        Identifier of related entity

        HAH00863

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Jón Ólafsson (1877-1957) Hjaltadal Fnjóskadal, Sörlastöðum og Fjósatungu (24.6.1877 - 10.9.1957)

        Identifier of related entity

        HAH06595

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Dates of relationship

        24.6.1877

        Description of relationship

        Hjaltadal í Fnjóskadal og Fjósatungu í sömu sveit til 1889. Fluttist þá að Sörlastöðum og var þar fram til 1901. Bóndi í Fjósatungu í Fnjóskadal 1901-05, í Hjaltadal 1905-08 og á Snæbjarnarstöðum í Fnjóskadal 1908-24. Vinnumaður á Snæbjarnarstöðum, Hálssókn, S-Þing. 1930.

        Related entity

        Fnjóská í Fnjóskárdal ((874) -)

        Identifier of related entity

        HAH00864

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Fnjóská í Fnjóskárdal is the associate of Fnjóskadalur Þingeyjarsýslu

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Vaglaskógur ((1950))

        Identifier of related entity

        HAH00224

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Vaglaskógur is the associate of Fnjóskadalur Þingeyjarsýslu

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Vaðlaheiði (874 -)

        Identifier of related entity

        HAH00888

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Vaðlaheiði is the associate of Fnjóskadalur Þingeyjarsýslu

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH00865

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 11.5.2020

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Sources

          Guðmundur Paul

          Maintenance notes