Davía Jakobína Guðmundsson (1910-1999) Sólbakka utan ár

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Davía Jakobína Guðmundsson (1910-1999) Sólbakka utan ár

Parallel form(s) of name

  • Davía Jakobína Niclasen Guðmundsson (1910-1999)

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      19.2.1910 - 17.1.1999

      History

      „Fjærst út í kvikasilfursbjarma hafauðnarinnar rís pínulítið, einmana, blágrýtt land. Borið saman við ógnarvíðáttu þessa hafs virðist svona klettótt landkríli naumast umfangsmeira en sandkorn á samkomuhúsgólfinu. Þannig hefst sagan um Snillingana glötuðu eftir Færeyinginn William Heinesen.
      Davía Jakobína Niclasen var fædd í Færeyjum 19. febrúar 1910. Hún lést á Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi 17. janúar síðastliðinn.
      Á Vífilstöðum kynntist hún manninum sem hún átti eftir að giftast, Einari Guðmundssyni, sem var starfsmaður á hælinu. Þau hófu búskap í Hafnarfirði í húsi við Reykjavíkurveg sem seinna varð verslun Geiru og Leifu. Þar fæddist fyrsta barn þeirra, Guðmundur. Þau fengu síðar íbúð á Vífilsstöðum og þar fæddist Harry. Eftir giftingu var Davía heimavinnandi, eins og það heitir í dag, sinnti sínu heimili. Starf Einars var mjög erfitt og kom að því að þau hjónin ákváðu árið 1942 að flytja til Hólmavíkur þar sem honum bauðst vinna við að keyra vörubíl fyrir Kaupfélagið. Þar byggðu þau sér húsið Litla-Hvamm. Þau leigðu út frá sér hluta hússins og kom það sér vel fyrir Davíu að hafa fólk hjá sér í húsinu þar sem Einar var oft lengi í förum með flutninga. Það er erfitt að ímynda sér erfiðið sem fólst í vinnu þessara ára, vegir lélegir og bílar og aðrir farkostir all frumstæðir á okkar tíma mælikvarða.
      Á Hólmavík fæddist dóttirin Herdís 18. júní 1943. Það var mikil gleði hjá Davíu að eignast dóttur og var samband þeirra mæðgna alla tíð mjög náið. Herdís hefur verið hennar stoð og stytta í gegnum árin og ekki síst eftir að hún var orðin ein og heilsan farin að bila. Ég vil fyrir hönd okkar hjónanna þakka Herdísi alla þá ræktarsemi og hlýju sem hún hefur sýnt móður sinni.

      Til Blönduóss flyst svo fjölskyldan 1946. Á þessum árum var fátt um íbúðarhúsnæði á lausu, svo ekki var um annað að gera en að byggja. Hús þeirra reis á "bakkanum". Þetta var á þeim tíma sem engar götur höfðu verið lagðar og menn fengu bara lóðir og byrjuðu að byggja. Seinna fékk gatan þeirra heitið Árbraut og er það réttnefni því hún liggur við árbakkann norðanverðu við Blöndu. Húsið reis á skömmum tíma þótt erfitt væri að afla byggingarefnis. Tvær íbúðir voru í húsinu; í öðrum endanum bjuggu Einar og Davía með sín börn, en í hinum bjuggu fyrst Þorvaldur Þorláksson (Valdi í Vísi) og Jónína Jónsdóttir (Ninna) með sín börn og síðar Svavar Pálsson og kona hans Hallgerður Helgadóttir (Gerða) með sín börn, varð þeirra vinskapur góður. Ég minnist þess að eitt sinn er við vorum í heimsókn á Árbrautinni og gestir komu óvænt að þá var bankað á eldhúsgluggann. Þegar ég opnaði gluggann var rétt inn nýbökuð jólakaka. Mér er ekki grunlaust um að svona sendingar hafi verið gagnkvæmar.
      Davía fluttist til Íslands 1928 og bjó þar síðan. Síðustu 42 árin var hún búsett á Blönduósi.
      Útför Davíu fer fram frá Blönduóskirkju í dag 23. jan. 1999 og hefst athöfnin klukkan 14.

      Places

      Færeyjar: Vífilsstaðir 1928: Hafnarfjörður: Hólmavík 1942: Blönduós 1946:

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Hún var í Kvenfélaginu Vöku og var gerð að heiðursfélaga þess á 80 ára afmæli sínu. Í mörg ár söng hún í kirkjukórnum enda var hún mjög trúuð kona.

      Mandates/sources of authority

      Nú heldur þú á haustsins stig
      húmi slær á veginn.
      Við vonum þó að vermi þig
      vorsól hinumegin.
      (Guðrún, Ágústína, Inga Dóra og Gréta.)

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar voru Hansína Joensen 1.2.1882 og Johannes Nikodemus Niclasen 22.7.1879 - 21.7.1961. Systkinin voru sjö, sex systur og einn bróðir.
      Systkini hennar;
      1) Cecilie Fossheim f. 19.4.1908 - 6.9.2002, maður hennar; Nils Fossheim f. 18.9.1908 - 2.7.2000 Danmörku
      2) Marsanna Niclasen f. 16.11.1911 - 24.10.1985, óg barnlaus, Færeyjum
      3) Theana Follend f. 18.9.1913 - 26.8.2007, maður hennar; Jákub Follend f. 10.9.1904 - 9.5.1978 Færeyjum.
      4) Dagny Richards f. 5.2.1915 - 24.6.1980, maður hennar; Ted Richards f. 2.1.1922 - 21.4.1994 Englandi.
      5) Niclas Pauli Niclasen f. 10.7.1918 - 17.8.1963, kona hans; Mia Niclasen f. 7.4.1917 - 5.9.2015 Danmörku.
      6) Ninna Abrahamsson f. 6.8.1921 - 6.12.2001, maður hennar; Ernst Vajhoj Abrahamsen f. 28.9.1921 - 14.12.2000 Danmörku.
      Afkomendur Hansínu og Nikodemusar eru búsettir víða í Evrópu.
      Hinn 16. nóvember 1931 giftist Davía Einari Guðmundssyni, f. í Grindavík 22. júní 1893, d. 19. ágúst 1970. Börn þeirra eru:
      1) Guðmundur Sandberg, f. 23.5. 1933, d. 5.10. 1974. Fyrri kona Guðmundar var Þórdís Guðmundsdóttir frá Kirkjubóli í Norðfirði, f. 11.4 1936, d. 10.9. 1960. Börn Guðmundar og Þórdísar eru: Stefanía Hrönn, f. 13.1. 1956, býr á Seltjarnarnesi, gift Friðriki Halldórssyni og er sonur þeirra Guðmundur Þór. Bryndís Bylgja, f. 4.5. 1959, býr í Danmörku, í sambúð með Kaj Klein. Þeirra sonur er Jógvan David Klein. Einar, f. 11.4. 1960, býr í Reykjavík. Seinni kona Guðmundar er Hrafnhildur Reynisdóttir frá Mjósyndi í Villingaholtshreppi, f. 17.10. 1943, býr í Reykjavík. Dóttir þeirra Þórdís, f. 24.6. 1967, býr í Reykjavík, gift Ágústi Einarssyni og eiga þau tvo syni, Einar og Stefán.
      2) Jóhannes Harry, f. 26.5. 1936, búsettur í Garðabæ, giftur Kristínu Hólm frá Eskifirði, f. 16.6. 1940. Þeirra börn eru: Erling, f. 10.4. 1963, búsettur í Danmörku, kvæntur Sigríði Heimisdóttur og eiga þau börnin Birnu og Kristin. Davíð, f. 24.7. 1970, býr í Garðabæ. Kristín, f. 24.7. 1970 býr í Reykjavík, í sambúð með Hannesi Eðvarðssyni.
      3) Herdís, f. 18.6. 1943, býr á Blönduósi, gift Jóhannesi Þórðarsyni frá Sauðanesi í Torfalækjarhreppi. Þeirra börn eru: Nökkvi, f. 4.10. 1964, búsettur á Höfn, kvæntur Írisi Gísladóttur og eiga þau börnin Yrsu Líf og Darra Snæ. Ari Knörr, f. 20.8. 1973, býr á Akureyri, í sambúð með Sæunni Jóhannesdóttur. Sveinbjörg Snekkja, f. 20.8. 1973, býr í Reykjavík, í sambúð með Hjalta Kristjánssyni og eiga þau soninn Almar Knörr.

      General context

      „Lífsbaráttan í litlu þorpi við upphaf aldarinnar hefir verið hörð. Algerlega undir duttlungum náttúruaflanna komin, hafið, forðakistan sem grundvallaði tilvist þessa litla samfélags gat á svipstundu reist hramminn í reiði sinni og svipt fjölskyldur fyrirvinnu og ástvinum. Gagnvart svo óvægnum öflum verða menn auðmjúkir, lífsafkoma er í höndum þess sem öllu ræður. Trú þessa fólks er sjálfsprottin vaxin af sögu og reynslu þjóðarinnar, jafn sjálfsögð og sólarupprás með nýjum degi. Þannig var trú ömmu minnar, svo sjálfsögð og án alls efa. Trúin á Guð var hennar andlegi brunnur“

      Relationships area

      Related entity

      Þórður Pálsson (1918-2004) Sauðanesi (25.12.1918 - 9.6.2004)

      Identifier of related entity

      HAH02175

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Herdís dóttir Davíu er gift Jóhannesi syni Páls

      Related entity

      Færeyjar (um 800)

      Identifier of related entity

      HAH00264

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      19.2.1910

      Description of relationship

      Fædd í Færeyjum

      Related entity

      Þórðarhús Blönduósi (1898 -)

      Identifier of related entity

      HAH00143

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      1945

      Description of relationship

      Leigjandi þar meðan þau byggðu eigið hús, Sólbakka utan ár.

      Related entity

      Einar Guðmundsson (1893-1970) vélstjóri Sólbakka utan ár (22.6.1893 - 19.8.1970)

      Identifier of related entity

      HAH03107

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Einar Guðmundsson (1893-1970) vélstjóri Sólbakka utan ár is the spouse of Davía Jakobína Guðmundsson (1910-1999) Sólbakka utan ár

      Dates of relationship

      16.11.1931

      Description of relationship

      Börn þeirra; 1) Guðmundur Sandberg, f. 23.5. 1933, d. 5.10. 1974. Fyrri kona Guðmundar var Þórdís Guðmundsdóttir frá Kirkjubóli í Norðfirði, f. 11.4 1936, d. 10.9. 1960. Seinni kona Guðmundar er Hrafnhildur Reynisdóttir frá Mjósyndi í Villingaholtshreppi, f. 17.10. 1943, 2) Jóhannes Harry, f. 26.5. 1936, búsettur í Garðabæ, giftur Kristínu Hólm frá Eskifirði, f. 16.6. 1940. 3) Herdís, f. 18.6. 1943, býr á Blönduósi, gift Jóhannesi Þórðarsyni frá Sauðanesi í Torfalækjarhreppi.

      Related entity

      Ari Knörr Jóhannesson (1973) Blönduósi (20.8.1973 -)

      Identifier of related entity

      HAH02460

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ari Knörr Jóhannesson (1973) Blönduósi is the grandchild of Davía Jakobína Guðmundsson (1910-1999) Sólbakka utan ár

      Dates of relationship

      20.8.1973

      Description of relationship

      Móðir Ara er Herdís dóttir Daviu

      Related entity

      Árbraut 19 / Sólbakki utan ár (Nóvember 1946 -)

      Identifier of related entity

      HAH00669

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Árbraut 19 / Sólbakki utan ár is owned by Davía Jakobína Guðmundsson (1910-1999) Sólbakka utan ár

      Dates of relationship

      1946

      Description of relationship

      Related entity

      Herdís Einarsdóttir (1943) Bakka, Blönduósi (18.6.1943 -)

      Identifier of related entity

      HAH08369

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Herdís Einarsdóttir (1943) Bakka, Blönduósi is the child of Davía Jakobína Guðmundsson (1910-1999) Sólbakka utan ár

      Dates of relationship

      18.6.1943

      Description of relationship

      Related entity

      Harry Einarsson (1936) Blönduósi (26.5.1936 -)

      Identifier of related entity

      HAH05447

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Harry Einarsson (1936) Blönduósi is the child of Davía Jakobína Guðmundsson (1910-1999) Sólbakka utan ár

      Dates of relationship

      26.5.1936

      Description of relationship

      Related entity

      Guðmundur Einarsson (1933-1974) bifreiðastjóri Blönduósi (23.5.1933-5.10.1974)

      Identifier of related entity

      HAH03935

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðmundur Einarsson (1933-1974) bifreiðastjóri Blönduósi is the child of Davía Jakobína Guðmundsson (1910-1999) Sólbakka utan ár

      Dates of relationship

      23.5.1933

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01166

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 13.5.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes