Ari Jóhannes Jósefsson (1939-1964) skáld frá Bala á Blönduósi

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Ari Jóhannes Jósefsson (1939-1964) skáld frá Bala á Blönduósi

Parallel form(s) of name

  • Ari Jósefsson (1939-1964)

  • Ari Jóhannes Jósefsson skáld

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      28.8.1939 - 18.6.1964

      History

      Ari Jóhannes Jósefsson 28. ágúst 1939 - 18. júní 1964. Skáld. Var á Bala, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Drukknaði. Hann fór til Reykjavíkur eftir að hafa hætt í MA, þar sem hann varð fljótlega áberandi í hópi ungu skáldanna. Hann stundaði nám í íslenskum fræðum í tvö ár, hélt svo til Rúmeníu til að læra rómönsk fræði og var á heimleið þaðan þegar hann féll fyrir borð á Gullfossi og drukknaði, þann 18. júní 1964.
      Um brostinn streng
      er skyldi skærast hljóma
      um skugga er bar
      á vornótt svona heiða
      lognaldan þylur fregn við fjörusand.

      Feiknstöfum rituð
      eru örlög manna
      alinn við mold og steina
      hafdjúp gistir
      einn er hver sér þótt sýnist fleiri í för.

      Fjallkonan beið þín
      hreina hjartaprúða
      með hvítan kollinn
      nýja rós á barmi var seiður hafsins þyngri þessa nótt?

      Hví fórstu Ari
      í faðminn Ránar kalda?
      Fagnað þér skyldi
      er stigir þú á grundu.
      Það er ei öllum unnt að komast heim.
      H.B.B.
      Mikils er vant — en með í för
      munu augu þín dul og snör
      þar sem baráttan brýnust er;
      bera megi hún svip af þér —

      gustur sem úngur ör og hlýr
      inní þykknið af bragði snýr
      kliðar saungva í regnsins raust
      ryður brautina hlífðarlaust

      unz í myrkviðnum mannsins vé:
      moldin bakvið hin dauðu tré
      finnur í vexti frjómögn sín —
      félagi, slík er minníng þín.
      Þorsteinn frá Hamri.

      Places

      Bala Blönduósi: Reykjavík:

      Legal status

      Hann fór í Menntaskólann á Akureyri en hætti þar. Veturinn 1959-60 dvaldist hann í Barcelona en las eftir það utanskóla við Menntaskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan stúdent 1961. Hann stundaði nám í íslenskum fræðum í tvö ár, hélt svo til Rúmeníu til að læra rómönsk fræði

      Functions, occupations and activities

      Skáld

      Mandates/sources of authority

      Hann gaf meðal annars út tímaritið Forspil með Degi Sigurðarsyni og fleirum árið 1958. 1961 kom út ljóðabókin Nei.
      Trúarjátning
      Ég trúi á moldina
      og son hennar manninn
      fæddan af skauti konunnar sem er píndur á okkar dögum
      krossfestur drepinn og grafinn
      en mun rísa upp á morgun og krefjast réttar síns til brauðsins
      ég trúi á anda rétttlætisins samfélag mannanna
      og friðsælt líf
      Ari Jósefsson.

      Einum teygi taka út
      „tékka“ veig á svörtum.
      Aldrei geigi sumbli og sút
      á sumardegi björtum.
      Ari Jósefsson.

      Lengi höfðum við leitað að orðum
      látið þau svífa í bláum ljósi
      uns þau sprungu eins og sápukúlur.
      Ari Jósefsson.

      Internal structures/genealogy

      Ari Jóhannes Jósefsson 28. ágúst 1939 - 18. júní 1964. Skáld. Var á Bala, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Drukknaði.
      Foreldrar hans: Jósef Jón Indriðason f. 26. júlí 1904 Litlu Ásgeirsá, d. 27. júní 1991, sjá Baldurshaga, Bala 1957. Maki (sambýlisk); Soffía Guðrún Stefánsdóttir f. 15. sept. 1913 Hringveri, d. 14. nóv. 2005.
      Systkini hans:
      1) Stefán Reynir Jósefsson 11. september 1932 - 26. júlí 2015 Bala Blönduósi.
      2) Milly Jóna Jósepsdóttir Coward 1. ágúst 1934 - 15. apríl 1999. Síðast bús. í Bandaríkjunum. M: William Coward, f. 13.4.1928.
      3) Kristjana Gréta Jósefsdóttir 1. nóvember 1935. Var á Bala, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
      4) Guðmundur Sverrir Jósefsson 18. nóvember 1940. Var á Bala, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
      5) Brynja Sigrún Jósefsdóttir 16. júní 1948. Var á Bala í Blönduóshr., A-Hún. 1957.
      Unnusta hans var Sólveig Hauksdóttir f. 25. júní 1943
      Barn þeirra;
      1) Haukur Arason 28. janúar 1962

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Hannahús Blönduósi (1924 -)

      Identifier of related entity

      HAH00657

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      1940

      Description of relationship

      var þar sem barn, gæti verið fæddur þar

      Related entity

      Árbakki Blönduósi 1914 (1914 -)

      Identifier of related entity

      HAH00023

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      barn þar 1947

      Related entity

      Bali Blönduósi (1901 -)

      Identifier of related entity

      HAH00084

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Var þar 1957

      Related entity

      Brynja Sigrún Jósefsdóttir (1948) frá Bala (16.6.1948 -)

      Identifier of related entity

      HAH02951

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Brynja Sigrún Jósefsdóttir (1948) frá Bala is the sibling of Ari Jóhannes Jósefsson (1939-1964) skáld frá Bala á Blönduósi

      Dates of relationship

      16.6.1948

      Description of relationship

      Related entity

      Sverrir Jósefsson (1940) Blönduósi (18.11.1940 -)

      Identifier of related entity

      HAH04141

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sverrir Jósefsson (1940) Blönduósi is the sibling of Ari Jóhannes Jósefsson (1939-1964) skáld frá Bala á Blönduósi

      Dates of relationship

      18.11.1940

      Description of relationship

      Related entity

      Gréta Jósefsdóttir (1935-2018) Blönduósi (1.11.1935 - 1.4.2018)

      Identifier of related entity

      HAH05977

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Gréta Jósefsdóttir (1935-2018) Blönduósi is the sibling of Ari Jóhannes Jósefsson (1939-1964) skáld frá Bala á Blönduósi

      Dates of relationship

      28.8.1939

      Description of relationship

      Related entity

      Milly Jósepsdóttir Coward (1934-1999) frá Blönduósi (1.8.1934 - 15.4.1999)

      Identifier of related entity

      HAH05978

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Milly Jósepsdóttir Coward (1934-1999) frá Blönduósi is the sibling of Ari Jóhannes Jósefsson (1939-1964) skáld frá Bala á Blönduósi

      Dates of relationship

      28.8.1939

      Description of relationship

      Related entity

      Arís Njálsdóttir (1966) Blönduósi (19.2.1966)

      Identifier of related entity

      HAH02469

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Arís Njálsdóttir (1966) Blönduósi is the cousin of Ari Jóhannes Jósefsson (1939-1964) skáld frá Bala á Blönduósi

      Dates of relationship

      19.2.1966

      Description of relationship

      Ari var bróðir Grétu móður Arísar

      Related entity

      Erna Berglind Hreinsdóttir (1963) Skagaströnd (23.7.1963)

      Identifier of related entity

      HAH03349

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Erna Berglind Hreinsdóttir (1963) Skagaströnd is the cousin of Ari Jóhannes Jósefsson (1939-1964) skáld frá Bala á Blönduósi

      Dates of relationship

      23.7.1963

      Description of relationship

      Barnsmóðir Ara var Sólveig Hauksdóttir (1943) systir Hreins föður Ernu Berglindar.

      Related entity

      Soffía Stefánsdóttir (1913-2005) Bala (15.9.1913 - 14.11.2005)

      Identifier of related entity

      HAH02004

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Soffía Stefánsdóttir (1913-2005) Bala is the parent of Ari Jóhannes Jósefsson (1939-1964) skáld frá Bala á Blönduósi

      Dates of relationship

      28.8.1939

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH02455

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 24.10.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        ®GPJ ættfræði

        Maintenance notes