Identity area
Reference code
Title
Date(s)
- um1945 (Creation)
Level of description
Item
Extent and medium
1 ljósmynd, pappírskópía. Skannað í jpg.
Context area
Name of creator
Archival history
Kirkjubær (færeyska: Kirkjubøur) er lítið þorp á vestanverðri Straumey í Færeyjum, biskupssetur á miðöldum og því helsti sögustaður eyjanna. Þar er jafnframt kóngsjörðin Kirkjubøargarður eða Kirkjubær, þar sem Paturssonarættin hefur búið frá 1557. Kirkjubær og grannþorpið Velbastaður voru áður sérstakt sveitarfélag en runnu saman við Þórshöfn árið 2005.
Biskupssetur hefur líklega verið stofnað í Kirkjubæ um 1100 og sátu Færeyjabiskupar þar fram yfir siðaskipti 1538 en eftir að fyrsti og eini lútherski biskupinn, Jens Gregoríusson Riber, var fluttur til Stafangurs 1557 var biskupsdæmið lagt niður og kóngsbændur tóku við búskap á jörðinni. Elsti hluti íbúðarhússins á Kirkjubøargarði, þar sem Paturssonfjölskyldan býr enn, er talinn vera frá 11. öld og eitt elsta timburhús í heimi sem enn er búið í.
Af öðrum merkum minjum í Kirkjubæ má nefna elstu kirkju Færeyja sem enn er í notkun, Ólafskirkjuna, sem er frá 12. öld og gengdi hlutverki dómkirkju í kaþólskri tíð en lítið er nú eftir af upphaflegu svipmóti hennar, og Múrinn, en það eru rústirnar af ófullgerðri dómkirkju, Magnúsarkirkjunni, sem byrjað var að reisa um 1300 og átti að helga Magnúsi helga Orkneyjajarli. Veggir kirkjunnar standa enn og eru rústirnar á heimsminjaskrá UNESCO.
Sagt er að í Kirkjubæ hafi á miðöldum verið allstórt þorp á þeirra tíma mælikvarða, um 50 hús, en flestum þeirra hafi skolað á haf út í ofviðri á 16. öld. Nú eru 77 íbúar í þorpinu (1. janúar 2010) en árið 1985 voru þeir 55.
Margir þekktir einstaklingar hafa búið eða alist upp í Kirkjubæ. Þar á meðal má nefna Sverri Sigurðsson Noregskonung, Erlend biskup, sem skrifaði Sauðabréfið, Jóannes Patursson kóngsbónda og sjálfstæðisbaráttumann, Helenu systur hans, sem var upphafskona kvenréttindabaráttu í Færeyjum, stjórnmálamanninn Erlend Patursson og listamanninn Trónd Patursson.
Immediate source of acquisition or transfer
Content and structure area
Scope and content
Appraisal, destruction and scheduling
Accruals
System of arrangement
Conditions of access and use area
Conditions governing access
Conditions governing reproduction
Language of material
Script of material
Language and script notes
Physical characteristics and technical requirements
Finding aids
Allied materials area
Existence and location of originals
Existence and location of copies
Related units of description
Notes area
Alternative identifier(s)
Access points
Subject access points
Place access points
Name access points
- Færeyjar (Subject)
Genre access points
Description control area
Description identifier
Institution identifier
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation revision deletion
GPJ skráning 11.7.2020
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Digital object metadata
Filename
8555x-F__reyjar.jpg
Latitude
Longitude
Media type
Image
Mime-type
image/jpeg