Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Vilhelm Lúðvíksson (1935-2016) lyfsali á Blönduósi
Hliðstæð nafnaform
- Vilhelm Heiðar Lúðvíksson (1935-2016) lyfsali á Blönduósi
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
16.1.1935 - 15.9.2016
Saga
Vilhelm fæddist í Reykjavík 16. janúar 1935.
Vilhelm ólst upp í KFUM og var kristinn alla tíð.
Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 15. september 2016.
Jarðarför Vilhelms var gerð frá Laugarneskirkju 21. september 2016, klukkan 13.
Staðir
Réttindi
Stúdentspróf frá Mr 1955, lærði síðan lyfjafræði, fyrst við Háskóla Íslands og svo við Kaupmannahafnarháskóla.
Starfssvið
Vilhelm vann í ýmsum apótekum í Reykjavík, en árið 1974 stofnaði hann apótek á Blönduósi og síðar einnig á Skagaströnd. Árið 1986 flutti hann til Reykjavíkur og tók við Laugarnesapóteki og rak það þar til hann lét af störfum. Vilhelm var ágætur bridgespilari og spilaði bridge á Blönduósi og síðar með Barðstrendingum í Reykjavík. Á yngri árum, áður en golf varð að almennri íþróttaiðkun, stundaði hann golf með Golfklúbbi Reykjavíkur. Á Blönduósi var hann einn af frumkvöðlum um byggingu golfvallar þar. Vilhelm var virkur í félagsmálum framan af ævi. Hann var í stjórn Lyfjafræðingafélagsins, stjórn sjálfstæðra apótekara, Lionsmaður og sveitarstjórnarmaður á Blönduósi í tvö kjörtímabil.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hans; Valdimar Lúðvík Dagbjartsson frá Gröf á Rauðasandi og Sigríður Oddsdóttir frá Brekku í Gufudalssveit.
Systkini Vilhelms voru
1) Lea Kristjánsdóttir 11. mars 1920 - 2. okt. 2016. Var á Óðinsgötu 11, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945.
2) Hjörvar Kristjánsson 30. júlí 1925 - 23. nóv. 1984. Var á Óðinsgötu 11, Reykjavík 1930. Listmálari í Reykjavík.
Fyrri kona Vilhelms og barnsmóðir var Kristín Pálsdóttir frá Krossum í Staðarsveit, f. 26. janúar 1935. Hún lést árið 1994.
Börn þeirra eru:
1) Hrönn, f. 8. júní 1961, gift Þórólfi Antonssyni. Börn þeirra eru Anton Heiðar og Embla Sól.
2) Lúðvík, f. 24. ágúst 1962, kvæntur Kristínu Gunnarsdóttur. Börn þeirra eru Dagbjartur Gunnar, Erla Guðrún og Elsa Kristín.
3) Björk, f. 2. október 1963, gift Sveini Rúnari Haukssyni. Börn þeirra eru Guðfinnur og Kristín en fyrir átti Sveinn Gerði, Ingu og Hauk.
4) Jón Páll, f. 19. febrúar 1967, kvæntur Dóru Þórdísi Albertsdóttur. Sonur þeirra er Daníel.
5) Ásmundur, f. 20. júlí 1968, kvæntur Svanhvíti Sveinsdóttur. Dætur þeirra eru Ástrós Linda, Stefanía Hildur og Gunnhildur.
Seinni kona Vilhelms var Kristjana J. Richter, f. 6. maí 1936, sem lifir mann sinn. Þau voru í sambúð frá árinu 1995.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
is the associate of
Vilhelm Lúðvíksson (1935-2016) lyfsali á Blönduósi
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ skráning 11.6.2020
Tungumál
- íslenska