Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Valgerður Bjarnadóttir (1925-2013) frá Efri-Mýrum
Hliðstæð nafnaform
- Valgerður Bjarnadóttir frá Efri-Mýrum
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
26.4.1925 - 6.12.2013
Saga
Valgerður Bjarnadóttir fæddist á Efri-Mýrum í Engihlíðarhreppi í A-Húnavatnssýslu 26. apríl 1925. Hún andaðist á Landspítalanum Fossvogi 6. desember 2013. Útför Valgerðar verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag, 16. desember 2013, og hefst hún kl. 13.
Staðir
Efri-Mýrar: Reykjavík 1945: Keflavík 1955:
Réttindi
Valgerður var veturinn 1940-41 í Reykholtsskóla í Borgarfirði og lauk þaðan unglingaprófi. Hún nam við Kvennaskólann á Blönduósi veturinn 1943-44.
Starfssvið
Fluttist til Reykjavíkur haustið 1945 og vann fyrst í verslun Egils Jacobsen í Austurstræti en hóf síðan störf á saumastofu og lærði kjólasaum. Þar vann hún nokkur ár. Hún kynntist Karli í Reykjavík haustið 1946 og stofnuðu þau heimili þar 1948. Valgerður og Karl fluttust til Keflavíkur 1955 og bjuggu þar síðan. Fyrst leigðu þau hjá Guðlaugu systur Karls og manni hennar á Sólvallagötu 30, en fluttu árið 1957 í nýbyggt eigið húsnæði á Hólabraut 11. Þar bjuggu þau í rúm 30 ár en fluttu þá á Suðurgötu 26. Karl andaðist þar fyrir 15 mánuðum. Þar bjó Valgerður ein hálft ár, en flutti þá á Hrafnistu í Hafnarfirði. Valgerður vann mikið við kjólasaum á heimili sínu í gegnum árin.
Hún vann í um tíu ára skeið á saumastofu Álnabæjar í Keflavík. Hún var mikil hannyrðakona og tók virkan þátt í starfi eldri borgara í Reykjanesbæ síðustu tuttugu árin.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hennar voru hjónin Guðný Ragnhildur Þórarinsdóttir frá Jórvík í Hjaltastaðaþinghá, N-Múl., f. 21. október 1900, d. 27. júlí 1976, og Bjarni Óskar Frímannsson, bóndi og oddviti á Efri-Mýrum í Engihlíðarhreppi, f. í Hvammi í Langadal 12. mars 1897, d. 10. nóvember 1987.
Valgerður (Lóa) var einkabarn en Ragnhildur og Bjarni ólu að meira eða minna leyti upp fjögur börn sem Valgerður leit alltaf á sem systkin sín:
1) Jón Trausti Kristjánsson f 1. júní 1928 - 21. júlí 1993 Bifreiðarstjóri og landpóstur á Blönduósi. Var í Jónshúsi, Blönduóshr., A-Hún. 1957.
2) Bára Þóranna Svavarsdóttir f 9. september 1936. Móðir hennar var Petrea Guðmundsdóttir 14. maí 1902 - 16. september 1993 Holtastöðum og barnsfaðir hennar Svafar Dalmann Þorvaldsson f. 4. janúar 1910 - 14. febrúar 1980. Bifreiðarstjóri. Síðast bús. í Reykjavík Móðir hans var Salóme Pálmdóttir systir Jóns á Akri. Petrea ólst upp hjá móðursystur sinni Katrínu Friðriksdóttur f. 1857 og manni hennar Jóni Guðmundssyni f. 1857. Vinnukona á Holtastöðum í Langadal, A-Hún. Verkakona. Síðast bús. á Sauðárkróki. Maður Báru var Ólafur Axel Jónsson f. 15. september 1934 frá Sandhólum á Húsavík.
3) Ragnheiður Sólveig Pétursdóttir, f. 14. september 1940, d. 27. febrúar 1962. Húsfreyja á Æsustöðum. Var á Efri Mýrum, Engihlíðarhr., A-Hún. 1957. Fyrrikona Sigurðar Sigurðssonar kjötmatsmanns frá Brekkukoti f. 31.8.1934 d. 21.11.1999. Faðir hennar var Pétur Þorgrímur Einarsson f. 18. janúar 1906 - 14. september 1941. Bóndi í Fremstagili, Holtastaðasókn, A-Hún. 1930. Bóndi á Fremstagili í Langadal, A-Hún., og túlkur á Blönduósi og konu hans Ingibjörg Steinvör Þórarinsdóttir f. 15. nóvember 1916 - 9. desember 2012 Vatnsdalshólum, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Bús. í Bandaríkjunum. M2: Daniel Bozen, f. 25.9.1918 í Bandaríkjunum skv. Thorarens.
og elstu dóttur Ragnheiðar,
4) Bjarnhildur Sigurðardóttir f. 18. október 1955 - 22. apríl 2016 Var á Efri Mýrum, Engihlíðarhr., A-Hún. 1957. Húsfreyja og skrifstofustarfsmaður á Skagaströnd og síðar í Reykjavík. 1994. Fósturfor. skv. Thorarens.: Bjarni Ó. Frímannsson og Ragnhildur Þórarinsdóttir.
Valgerður giftist hinn 10. mars 1949 Karli G. Sigurbergssyni, f. 16. júlí 1923, syni hjónanna Oddnýjar Þorsteinsdóttur, f. 19. ágúst 1893 á Eyri í Fáskrúðsfirði, d. 30. október 1983, og Sigurbergs Oddssonar, f. 6. febrúar 1894 í Hvammi í Fáskrúðsfirði, d. 14. mars 1976. Karl andaðist 11. september 2012 á heimili þeirra Valgerðar. Hann var einn ellefu systkina og er aðeins eitt þeirra, Guðbjörg, enn á lífi.
Synir Valgerðar og Karls eru:
1) Bjarni Frímann, f. 20.9. 1949, maki Sólveig Diðrika Ögmundsdóttir, f. 30.12. 1948. Synir þeirra: a) Ögmundur, f. 24.1. 1974, sambýliskona Sóley Jökulrós Einarsdóttir, f. 19.2. 1976. Saman eiga þau Aldísi, f. 21.5. 2009, og Andra, f. 16.11. 2011. b) Bjarni Frímann, f. 26.8. 1989. c) Karl Jóhann, f. 20.9. 1991.
2) Ragnar, f. 6.7. 1959, sambýliskona Þorbjörg Magnúsdóttir, f. 4. apríl 1966. Dætur Ragnars og Þóru Ólafíu Eyjólfsdóttur, f. 7.11. 1958: a) Valgerður, f. 11.9. 1987, sambýlismaður Egill Fivelstad, f. 23.12. 1986. b) Sigríður, f. 2.12. 1989, sambýlismaður Eyvind Kongsvik, f. 28.1. 1989.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er foreldri
Valgerður Bjarnadóttir (1925-2013) frá Efri-Mýrum
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er foreldri
Valgerður Bjarnadóttir (1925-2013) frá Efri-Mýrum
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
er systkini
Valgerður Bjarnadóttir (1925-2013) frá Efri-Mýrum
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 14.8.2017
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði
Íslendingabók
ÆAHún bls 557
mbl 16.12.2013. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1491317/?item_num=0&searchid=51ff4edc2f78753977e24c0cc9d4279a77328b68