Þingvallavatn

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Þingvallavatn

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        874 -

        History

        Þingvallavatn, til forna kallað Ölfusvatn, er stærsta náttúrulega stöðuvatn Íslands og er 83,7 km2 að flatarmáli.[1] Í Þingvallavatni eru tvær megineyjar, Sandey og Nesjaey og milli þeirra er Heiðarbæjarhólmi. Við norðanvert vatnið eru Þingvellir, suðaustan af því er Úlfljótsvatn.

        Þar sem Þingvallavatn er dýpst er það 114 m. Mest af vatninu kemur beint úr uppsprettum og því er aðeins lítill hluti þess úr ám. Þó renna árnar Villingavatnsá, Ölfusvatnsá og Öxará í Þingvallavatn. Úr vatninu rennur Sogið, en það er stærsta lindá á Íslandi. Þrjár fiskategundir lifa í Þingvallavatni, en þær eru: bleikja, hornsíli og urriði.[2] Í Þingvallavatni eru fjögur afbrigði af bleikju, fleiri en fundist hafa í nokkru öðru vatni í heiminum, og allar eru þær einstakar fyrir vatnið.

        Places

        Legal status

        Þingvallavatn er í sigdæld sem nær frá Langjökli suður í Hengil og frá Botnssúlum í vestri til Lyngdalsheiðar í austri. Þingvallavatn er stærsta stöðuvatn á Íslandi um 84 ferkílómetrar og er yfirborð þess í um 100,5 metra hæð yfir sjávarmáli. Mesta dýpi vatnsins er 114 metrar og því nær það niður fyrir sjávarmál.

        Vatnasvið Þingvallavatns hefur sömu stefnu og sprungurnar á svæðinu en tilvist þess er nátengd jarðsögu svæðisins. Á vatnasviðinu er mikil úrkoma. Um 9/10 af innstreymi vatns í Þingvallavatn kemur neðanjarðar eftir sprungum að vatninu.

        Einungis um 1/10 hluti innrennslisins er yfirborðsvatn sem kemur úr ýmsum lækjum og smáám en stærst þeirra er Öxará. Það vatn sem rennur í Þingvallavatn norðan úr Langjökli er um 20-30 ár á leiðinni og talið er að á ferð sinni komi það við í möttli jarðar á um 8 kílómetra dýpi. Rigningin sem fellur á hraunin skilar sér á 2-4 mánuðum í Þingvallavatn.

        Sunnan við Þingvallavatn eru Nesjavellir sem eru eitt mesta háhitasvæði landsins. Þar hitnar vatn neðanjarðar vegna snertingar við heitt bergið og þrýstist upp um sprungur og misgengi undir Hengli. Orkuveita Reykjavíkur hefur virkjað háhitasvæðið til að hita upp kalt vatn til húshitunar með lágþrýstri gufu og borholuvatni en einnig til að framleiða rafmagn með háþrýstri gufu. Vatnasvið Þingvallavatns sem er um 1300 ferkílómetrar að stærð hefur að geyma ótrúlegar auðlindir fyrir komandi kynslóðir á Íslandi hreint og tært vatn til drykkjar og háhita sem virkjaður er á Nesjavallasvæðinu.

        Functions, occupations and activities

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Þingvallabærinn (1892 -)

        Identifier of related entity

        HAH00858

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Þingvallabærinn is the associate of Þingvallavatn

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Þingvallakirkja (1859) (1859 -)

        Identifier of related entity

        HAH00859

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Þingvallakirkja (1859) is the associate of Þingvallavatn

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Related entity

        Öxará / Öxarárfoss ((1150))

        Identifier of related entity

        HAH00832

        Category of relationship

        associative

        Type of relationship

        Öxará / Öxarárfoss is the associate of Þingvallavatn

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH00860

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 6.5.2020

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes