Steingrímur Þórisson (1923-2002) Álftagerði

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Steingrímur Þórisson (1923-2002) Álftagerði

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        15.7.1923 - 16.9.2002

        History

        Steingrímur Þórisson fæddist í Álftagerði í Mývatnssveit 15. júlí 1923. Var í Álftagerði III, Skútustaðasókn, S-Þing. 1930.
        Steingrímur fluttist átta ára gamall með foreldrum sínum í Reykholt í Borgarfirði þar sem faðir hans hóf kennslu við Héraðsskólann, en fljótlega eftir komu fjölskyldunnar þangað missti Steingrímur móður sína.
        Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð hinn 16. september 2002.
        Útför Steingríms var gerð frá Hjallakirkju í Kópavogi 24.9.2002 og hófst athöfnin klukkan 13.30.

        Places

        Legal status

        Steingrímur stundaði nám við Reykholtsskóla, lagði stund á bókhald og stærðfræði hjá Jóhanni Frímann, skólastjóra á Akureyri, og útskrifaðist frá Samvinnuskólanum í Reykjavík vorið 1942.

        Functions, occupations and activities

        Hann vann hjá Heildverslun Árna Jónssonar 1942 -1943, var framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hellissands hf. 1943-1945, meðeigandi með þáverandi tengdaföður sínum, Jónasi Magnússyni rafvirkjameistara, í raftækjaversluninni Ljós & Hiti í Reykjavík og var verslunarstjóri þar til 1947, en hóf þá störf hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga og sá þar um gjaldeyris- og innflutningsleyfi til ársins 1954. Fluttist þá aftur í Reykholt, stofnsetti þar verslun og rak hana til ársins 1981. Steingrímur var í stjórn Félags ungra framsóknarmanna 1948-1949 og í stjórn SUF 1949 til 1955. Sat í miðstjórn Framsóknarflokksins á árunum 1950-1954 og var í efsta sæti framboðslista hans í Gullbringu- og Kjósarsýslu árið 1949. Hann starfaði í fjölmörgum félögum. Var meðal stofnenda Borgfirðingafélagsins og sat í stjórn þess til ársins 1955, sat í sundráði Reykjavíkur í þrjú ár, var á meðal stofnenda Kiwanisklúbbsins Jökla í Borgarfirði árið 1972 og var í stjórn þar fyrstu árin. Steingrímur var á yngri árum íþróttamaður góður og lagði einkum stund á knattspyrnu og sund, en síðan bridge og keppti í þeirri íþrótt árum saman.

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar hans; Þórir Steinþórsson 7. maí 1895 - 5. júní 1972. Bóndi í Álftagerði í Mývatnssveit, síðar kennari og skólastjóri í Reykholti í Borgarfirði. Bóndi í Álftagerði III, Skútustaðasókn, S-Þing. 1930 og fyrri kona hans; Þuríður Friðbjörnsdóttir 18. sept. 1900 - 11. feb. 1932. Húsfreyja í Álftagerði í Mývatnssveit og í Reykholti í Borgarfirði. Húsfreyja í Álftagerði III, Skútustaðasókn, S-Þing. 1930.
        Seinni kona Þóris; Laufey Þórmundsdóttir 4. des. 1908 - 11. des. 1999. Var í Bæ, Hvanneyrarsókn, Borg. 1930. Húsfreyja í Reykholti. Síðast bús. í Reykholti.

        Alsystkini Steingríms eru:
        1) Jón Þórisson kennari í Reykholti, f. 22.9. 1920, d. 5.12. 2001. Bóndi í Reykholti í Borg. Var í Álftagerði III, Skútustaðasókn, S-Þing. 1930. Síðast bús. í Reykholtsdalshr. Jón kvæntist 29. desember 1945 Halldóru Jóhönnu Þorvaldsdóttur, f. 15. júlí 1921 - 9. nóv. 2012. Var á Valdastöðum, Grindavíkursókn, Gull. 1930. Húsfreyja og stöðvarstjóri Póst og síma í Reykholti í Reykholtsdalshreppi.
        2) Steinþóra Þórisdóttir [Lóla] fyrrverandi verslunarmaður í Reykjavík, f. 3. apríl 1926 - 8. des. 2013. Var í Álftagerði III, Skútustaðasókn, S-Þing. 1930. Húsfreyja í Reykjavík og rak fyrirtæki ásamt eiginmanni sínum. Steinþóra giftist 4. desember 1949 Halldóri Einarssyni, ljósmyndara og básúnuleikara, f. 1. mars 1926 á Bakka á Akranesi, d. 21. nóvember 2009. Foreldrar hans voru Halldóra Helgadóttir, f. 6. september 1875 á Háafelli í Hvítársíðu, d. 30. október 1964, og Einar Ingjaldsson, f. 29. ágúst 1864 í Nýlendu á Akranesi, d. 31. júlí 1940, bóndi og skipstjóri á Bakka á Akranesi.
        3) Kristján Þór Þórisson fyrrverandi skrifstofustjóri í Reykjavík, f. 28.1. 1932.
        Hálfsystur, samfeðra þær;
        4) Sigrún Þórisdóttir lyfjafræðingur og meinatæknir í Reykjavík, f. 19. des. 1936 - 17. júní 2017.
        5) Þóra Þórisdóttir starfsmaður hjá Landspítalanum í Fossvogi, f. 8.2. 1944.

        Steingrímur kvæntist 17.4. 1943 fyrri konu sinni, Ástu Dagmar Jónasdóttur, f. á Siglufirði 7.9. 1924, d. 17.3. 2001. Var á Eskifirði 1930. Heimili: Siglufjörður. Sonardóttir Magnúsar Stefánssonar og Bjargar E. Jónasdóttur. Starfaði lengst af við heimilisstörf og barnauppeldi, síðar ráðskona og vökukona. Síðast bús. í Garðabæ.

        Börn þeirra eru:
        1) Þuríður Anna Steingrímsdóttir verslunarmaður, f. 28.7. 1943, gift Óla H. Þórðarsyni,
        2) Guðrún Björg Steingrímsdóttir skólamatráður, f. 28.9. 1944, gift Ármanni Hallbertssyni,
        3) Þórir Steingrímsson tæknimaður hjá Rúv og umsjónar maður fyrsta popplagaþáttar þar ásamt Andreu Jónsdóttur sem enn starfar við slíka ´ætti á Rúv [2019] f. 2.2. 1947, kvæntur Margréti Sveinbjörnsdóttur,
        4) Stefán Steingrímsson sölumaður í Reykjavík, f. 15.3. 1950, en kona hans er Margrét Hreinsdóttir
        5) stúlkubarn fætt 13.12. 1951, d. 27.1. 1952.
        Þau Steingrímur og Ásta skildu árið 1956.
        Seinni kona hans var Sigríður E. Jónsdóttir, kennari, f. í Bolungarvík 20.8. 1932, d. 28.12. 1997. Þau giftu sig 19.6. 1959.
        Synir þeirra eru:
        6) Jón Hólmar Steingrímsson viðskiptafræðingur og rekstrarráðgjafi, f. 5.11. 1960, kvæntur Valgerði L. Sigurðardóttur
        7) Bergur Þór Steingrímsson framkvæmdastjóri, f. 8.12. 1961, kona hans er Steinunn Másdóttir.

        Dóttir Sigríðar og stjúpdóttir Steingríms er
        8) Margrét B. Eiríksdóttir, sölustjóri, f. 29.6. 1954. Hún er gift Kristni Ó. Magnússyni.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Reykholtsskóli (1931-1997) Borgarfirði / Snorrastofa

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1931

        Description of relationship

        flutti þangað með foreldrum sínum, síðar námspiltur

        Related entity

        Mývatn

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        15.7.1923

        Description of relationship

        fæddist í Álftagerði í við Mývatn

        Related entity

        Jóhann Frímann (1906-1990) skólastjóri (27.11.1906 - 28.2.1990)

        Identifier of related entity

        HAH05104

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Steingrímur stundaði nám við Reykholtsskóla, lagði stund á bókhald og stærðfræði hjá Jóhanni Frímann, skólastjóra á Akureyri

        Related entity

        Steinþóra Sigríður Þórisdóttir (1926-2013) (3.4.1926 - 8.12.2013)

        Identifier of related entity

        HAH05148

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Steinþóra Sigríður Þórisdóttir (1926-2013) is the sibling of Steingrímur Þórisson (1923-2002) Álftagerði

        Dates of relationship

        3.4.1926

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH05147

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 10.3.2020

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes