Soffía Jónsdóttir (1910-2006)

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Soffía Jónsdóttir (1910-2006)

Hliðstæð nafnaform

  • Soffía Jónsdóttir (1910-2006) frá Blöndudalshólum

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

22.1.1910 - 24.6.2006

Saga

Soffía Jónsdóttir fæddist á Blöndudalshólum í Húnavatnssýslu 22. janúar 1910. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 24. júní síðastliðinn. Soffía fór ung að vinna, fyrst almenn sveitastörf. Vann á Hólum í Hjaltadal nokkur ár, þar til hún hóf búskap á Bakka í Skagafirði.Í Reykjavík bjó hún fyrst á Barónsstíg 41 og síðan á Austurbrún 4, þar til hún fluttist á Skjól.
Útför Soffíu verður gerð frá kapellunni í Fossvogi í dag og hefst athöfnin klukkan 13.

Staðir

Blöndudalshólar: Vatnsleysa 1913: Hólar í Hjaltadal: Bakki í Viðvíkursveit: Reykjavík 1977:

Réttindi

Starfssvið

Til sjúkrahússins á Sauðárkróki réðst hún til starfa 1944, var matráðskona þar og starfaði þar óslitið til ársins 1977

Lagaheimild

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar hennar voru Jón Kristvinsson 29. október 1877 - 12. apríl 1970. Bóndi á Vatnsleysu í Viðvíkursveit, síðar að Garðakoti í Hjaltadal, Skag. og Guðný Anna Jónsdóttir 21. september 1886 - 14. janúar 1972. Húsfreyja á Vatnsleysu í Viðvíkursveit, Skag. Fósturbarn í Saurbæ, Hvanneyrarsókn, Eyj. 1901. Húsfreyja á Vatnsleysu, Viðvíkursókn, Skag. 1930. Síðast bús. í Hofshreppi. Þau fluttu til Skagafjarðar 1913, og ólst Soffía þar upp. Bjuggu þau lengst af í Vatnsleysu í Skagafirði. Soffía var næstelst átta systkina, sem öll eru látin, nema tveir bræður, þeir Jens, f. 1921, og Róar, f. 1923.
Soffía giftist Jóni Gunnlaugssyni frá Bakka í Skagafirði. Þau skildu.
Eignuðust þau tvo syni,
1) Friðbjörn Gunnlaugur Jónsson, f. 21. mars 1936, Friðbjörn er kvæntur Sólveigu Hannesdóttur og eiga þau fjögur börn. Þau eru: 1) Guðlaug Rún Margeirsdóttir, búsett í Portúgal, maður hennar er Augusto Neto, og eiga þau tvö börn, Vilhelm Þór, f. 1993, og Jóhönnu Dís, f. 1997. 2) Hanna Dís Margeirsdóttir, búsett í Ósló, maður hennar er Ola Norheim, og eiga þau eina dóttur, Selmu Ósk, f. 2004. 3) Soffía Huld Friðbjarnardóttir, búsett í Garðabæ, hennar maður er Friðbert Friðbertsson, og eiga þau eina dóttur, Sólveigu Önnu, f. 2004. 4) Hannes Heimir Friðbjarnarson, búsettur í Kópavogi, kona hans er Edda Ýr Þórsdóttir, og eiga þau einn son, Baldvin Þór, f. 2003.
2) Hreinn Jónsson, f. 8. september 1939 - 5. nóvember 2009. Hreinn Jónsson er kvæntur Camillu Jónsdóttur, og eru börn þeirra þrjú. Þau eru: 1) Ásta Júlía, búsett í Reykjavík, maður hennar er Ágúst M. Þórólfsson. 2) Jón Hreinsson, ókvæntur, býr í Reykjavík. 3) Stefán Jóhann Hreinsson, kona hans er Ólöf L. Lárusdóttir, þeirra dóttir er Rakel Sif, f. 2006, búa þau á Akranesi.
Bróðir Friðbjörns og Hreins, samfeðra, er
0) Pétur Örn Jónsson, f. 14. desember 1945, kvæntur Sigrúnu Skarphéðinsdóttur, og eru þau búsett á Akranesi. Móðir Péturs var María Njálsdóttir f. 7. maí 1917 - 10. janúar 2003 Var í Austmannsdal, Selárdalssókn, V-Barð. 1930. Fósturfor: Guðjón Árnason og Sigríður Amalía Sigurðardóttir.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH02007

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ 26.7.2017

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir