Sigurður Marinósson (1945-2017) Hvítuhlíð

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Sigurður Marinósson (1945-2017) Hvítuhlíð

Parallel form(s) of name

  • Sigurður Jónas Marinósson (1945-2017) Hvítuhlíð
  • Sigurður Jónas Marinósson Hvítuhlíð

Standardized form(s) of name according to other rules

Other form(s) of name

Identifiers for corporate bodies

Description area

Dates of existence

10.9.1945 - 13.9.2017

History

Sigurður Jónas Marinósson fæddist á Álfgeirsvöllum í Skagafirði 10. september 1945.
Sigurður barðist við krabbamein síðustu 10 æviárin. Bóndi á Álfgeirsvöllum í Lýtingsstaðahreppi, að Hvalsá við Steingrímsfjörð, á Kollafjarðarnesi við Kollafjörð og loks í Hvítuhlíð í Bitrufirði.
Hann lést á heimili sínu, Hvítuhlíð í Bitrufirði, 13. september 2017.
Útför Sigurðar fór fram frá Kollafjarðarneskirkju 23. september 2017, klukkan 15.

Places

Álfgeirsvellir; Hvalsá; Kollafjarðarnesi ; Hvítuhlíð í Bitrufirði:

Legal status

Hann var barnaskólaárin í Steinsstaðaskóla en stundaði svo nám við bændaskólann á Hvanneyri.

Functions, occupations and activities

Sigurður var bóndi mestan hluta ævinnar. Fyrst með sauðfjárrækt á Álfgeirsvöllum, svo fluttist hann með Sigríði, þáverandi sambýliskonu sinni, að Hvalsá við Steingrímsfjörð. Þar stofnuðu þau fjölskyldu og fluttu svo að Kollafjarðarnesi við Kollafjörð. Sigríður og Sigurður slitu samvistir árið 2003 og flutti hann þá í Hvítuhlíð í Bitrufirði. Auk þess að sinna búskap vann Sigurður á ýmsum vinnuvélum og var með útgerð auk þess að taka sér ýmis verkefni fyrir hendur.

Mandates/sources of authority

Internal structures/genealogy

Foreldrar hans; Marinó Ásvaldur Sigurðsson 3. feb. 1920 - 25. feb. 2010. Var á Álfgeirsvöllum, Lýtingsstaðahreppi, Skag. 1920. Bóndi, oddviti og hreppstjóri á Álfgeirsvöllum í Lýtingsstaðahr. 1994. Gegndi fjölmörgum félags- og trúnaðarstörfum. Síðast bús. á Sauðárkróki og kona hans; Guðlaug Egilsdóttir 23. júlí 1920 - 8. jan. 2010. Var í Húsey í Glaumbæjarsókn, Skag. 1930. Fósturfaðir Árni Hólm Gottskálksson. Húsfreyja á Álfgeirsvöllum í Lýtingsstaðahr. Síðast bús. á Sauðárkróki.

Systkini Sigurðar:
1) Svandís Lilja, f. 3. des. 1949 - 24. júní 2017. Húsfreyja í Gilhaga, að Sveinsstöðum, á Álfgeirsvöllum og loks að Álfheimum í Lýtingsstaðahreppi. Fékkst jafnframt við kennslu auk þess sem hún var skólabílstjóri um árabil.
2) Jórunn María, f. 21. mars 1951.
3) Árný Ingibjörg, f. 8. mars 1955.
4) Álfheiður Björk, f. 7. mars 1959.
5) Álfgeir Egill Þór, f. 6. nóv. 1960.

Sigurður á fjóra syni með fyrrverandi sambýliskonu sinni, Sigríði Jónsdóttur frá Stóra-Fjarðarhorni. Þeir eru
1) Jón Álfgeir, f. 24. maí 1972.
2) Víðir Álfgeir, f. 11. júlí 1973.
3) Marinó Álfgeir, f. 17. des. 1977.
4) Sigurður Álfgeir, f. 29. des. 1978
Sigurður á einnig eina dóttur, með Jóhönnu Hrund Hreinsdóttur úr Mosfellssveit,
5) Fjóla Karen Sigurðardóttir 2. feb. 2000.
Núverandi sambýliskona Sigurðar er Gróa Bjarnadóttir frá Þingeyri. Hún á þrjú uppkomin börn. Þau eru Eyrún Harpa, f. 1978, Berglind Hrönn, f. 1981, og Arnþór Ingi, f. 1988.
Einnig lætur Sigurður eftir sig fjölmörg barnabörn.

General context

Relationships area

Access points area

Subject access points

Place access points

Occupations

Control area

Authority record identifier

HAH05047

Institution identifier

IS HAH

Rules and/or conventions used

Status

Final

Level of detail

Full

Dates of creation, revision and deletion

GPJ 23.8.2019

Language(s)

  • Icelandic

Script(s)

Maintenance notes

  • Clipboard

  • Export

  • EAC

Related subjects

Related places