Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Sigríður Björnsdóttir (1907-2001)
Hliðstæð nafnaform
- Sigríður Björnsdóttir (1907-2001) dr. phil.
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
13.1.1907 - 20.10.2001
Saga
Sigríður Björnsdóttir fæddist á Ísafirði 13. janúar 1907. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 20. október síðastliðinn. Sigríður ólst upp fyrstu árin á Ísafirði en fluttist til Reykjavíkur og síðan til Hafnarfjarðar. Sigríður og Árni bjuggu frá árinu 1933 í Einarsnesi 21 (sem þá hét Hörpugata) í Skerjafirði. Þau höfðu bæði mikinn áhuga á ræktun trjáa, berja og ýmissa matjurta og ber garðurinn í Einarsnesinu þess enn vitni. Jarðarberjauppskeran fór t.d. oft yfir 300 pund þegar vel áraði. Sigríður flutti árið 1995 að Hrafnistu í Reykjavík.
Útför Sigríðar fór fram í kyrrþey að hennar ósk í Fossvogskapellu hinn 30. október.
Staðir
Ísafjörður: Kaupmannahöfn 1923: Skerjafjörður Reykjavík: Hafnarfjörður:
Réttindi
Hún lauk gagnfræðaprófi frá Flensborgarskóla árið 1921.
Starfssvið
Sigríður fluttist árið 1923 til frændfólks síns í Kaupmannahöfn þar sem hún stundaði ýmiss konar nám og vann síðan við íslenska sendiráðið þar í borg þar til hún fluttist heim árið 1930. Um tíma starfaði hún við danska sendiráðið í Reykjavík. Um árabil starfaði hún við skráningu vörumerkja og einkaleyfa með eiginmanni sínum.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hennar voru Gyðríður (Gyða) Þorvaldsdóttir Jónssonar læknis á Ísafirði, f. 21. ágúst 1872, d. 22. maí 1926, og dr. Björn Bjarnason Sveinssonar bónda í Viðfirði, f. 3. júlí 1873, d. 18. nóv. 1918.
Sigríður var önnur í röð fjögurra barna þeirra hjóna en þau voru Högni, f. 1905, Sigríður, Þórunn, f. 1908, og Kristín, f. 1910, og eru þau öll látin.
Sigríður giftist 1. mars 1930 Árna Stefáni Björnssyni tryggingastærðfræðingi, f. á Þverá í Hallárdal 14. apríl 1898, d. 31. mars 1978.
Sigríður og Árni eignuðust tvo syni og þeir eru:
1) Björn, f. 10. apríl 1932, kvæntur Sigríði Sigurðardóttur. Þau eiga fjögur börn, Gyðu, Ólöfu, Brynju Sif og Árna Sigurð.
2) Ómar f. 9. apríl 1936, kvæntur Hrafnhildi Oddnýju Kristbjarnardóttur. Þau eiga þrjú börn, Kristínu, Guðrúnu og Árna Björn, og fimm barnabörn. Ómar á eldri dóttur, Huldu Sigríði, og tvö barnabörn.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Tengd eining
Identifier of related entity
Flokkur tengsla
Type of relationship
Dagsetning tengsla
Lýsing á tengslum
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 17.7.2017
Tungumál
- íslenska