Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Ásdís Lúðvíksdóttir (1951-2015) Ísafirði
Hliðstæð nafnaform
- Ásdís Jóna Lúðvíksdóttir (1951-2015) Ísafirði
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
5.11.1951 - 23.8.2015
Saga
Ásdís Jóna Lúðvíksdóttir fæddist á Ísafirði 5. nóvember 1951. Starfaði við umönnunarstörf í Hveragerði og síðar sem félagsliði í Reykjavík. Gegndi ýmsum félagsstörfum
Hún lést á heimili sínu 23. ágúst 2015. Útför Ásdísar Jónu fór fram frá Bústaðakirkju 3. september 2015, kl. 15.
Staðir
Ísafjörður.
Hveragerði
Réttindi
Kvsk á Blönduósi 1968-1969.
Starfssvið
Ásdís ólst upp á Ísafirði hjá foreldrum sínum og systkinum. Hún fór snemma að vinna og vann alla tíð í umönnunarstörfum. Átján ára gömul fór hún í Kvennaskólann á Blönduósi, þar kynntist hún fyrri manni sínum, Gunnari. Þau giftu sig í júní 1971 og fluttu til Ísafjarðar. 1980 fluttu þau til Hveragerðis og hóf Ásdís störf á Dvalarheimilinu Ási þar sem hún starfaði með hléum til 1995. Þá flutti hún til Reykjavíkur og starfaði á Skógarbæ. Eftir það hefur hún störf í Gerðubergi ásamt því að fara í skóla og útskrifast sem félagsliði. Einnig spilaði hún badminton í fjöldamörg ár og keppti um land allt. Ásdís starfaði mikið í félagsmálum og var trúnaðarkona í mörg ár. Einnig var hún mikil hannyrðakona og prjónaði, saumaði og heklaði mikið alla tíð.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hennar voru Lúðvík Kjartan Kjartansson f. 14.12. 1921, d. 2.3. 2008. Var á Dvergasteini, Eyrarsókn, N-Ís. 1930. Sjómaður, verkstjóri og verkamaður á Ísafirði, síðar fiskverkamaður á Selfossi og kona hans 31.12.1951; Anna Jónsdóttir, f. 5.6. 1925 á Ísafirði, d. 19.7. 2009.
Systkini hennar eru;
1) Ólína Louise Lúðvíksdóttir f. 13.9. 1949,
2) Hólmfríður Lúðvíksdóttir f. 15.9. 1955,
3) Kjartan Jón Lúðvíksson f. 30.7. 1959,
4) Óli Pétur Lúðvíksson f. 30.9. 1963.
Maður hennar í júní 1971; Gunnari Jóhannesi Bjarnasyni, f. 26.9. 1948. Þau slitu samvistum 1993.
Dætur Ásdísar og Gunnars eru:
1) Anna Linda Gunnarsdóttir f. 11.5. 1971, gift Grétari Geir Halldórssyni, f. 29.10. 1967. Börn þeirra eru a) Halldór Ari, f. 28.4. 1989, sambýliskona Klara Kristjánsdóttir, f. 3.10. 1989, b) Gunnar Freyr, f. 10.6. 1992, sambýliskona Guðrún Ósk Valþórsdóttir, f. 27.8. 1991, dóttir þeirra er Gabríela Máney, f. 9.7. 2012, c) Katrín Eva, f. 28.5. 1999.
2) Sandra Björk Gunnarsdóttir f. 15.1. 1976, börn hennar eru a) Daníel Ágúst, f. 4.5. 1995, b) Ásdís Birta, f. 1.12. 1997, c) Örvar Reyr, f. 15.9. 1999, d) Kristín Björk, f. 13.6. 2004.
3) Brynja Dögg Gunnarsdóttir f. 5.3. 1978, sambýlismaður hennar er Bjarni Valur Ásgrímsson, f. 6.5. 1973. Börn þeirra eru a) Ásgrímur Þór, f. 3.7. 1998, b) Þorbergur Böðvar, f. 5.6. 2001, c) Ingibjörg Rós, f. 7.12. 2012.
4) Kristbjörg Gunnarsdóttir f. 28.10. 1985, sambýlismaður hennar er Ingólfur Þorbergsson, f. 4.7. 1984. Börn þeirra eru a) Erla María, f. 3.3. 2004, b) Þorbergur Gunnar, f. 2.7. 2008.
Sambýlismaður Ásdísar síðustu 15 ár var Helgi Leifsson, f. 1.12. 1945.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.
Staða
Loka
Skráningarstaða
Hluti
Skráningardagsetning
GPJ skráning 16.2.2022
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði 16.2.2022
Íslendingabók
Mbl 3.9.2015. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1566386/?item_num=1&searchid=aba06c8825d3fec8136df77046d4765f1b000f6b
mbl 8.3.2008. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1198748/?item_num=1&searchid=bc67de458748daa8a1bef154ad0152cb2a410bee
Athugasemdir um breytingar
Stafræn eining metadata
Aðgengi
Heiti skjals
sds_J__na_L__vksdttir1951-2015__safiri.jpg
Latitude
Longitude
Gerð miðla
Mynd
Mime-type
image/jpeg