Inga Kristjánsdóttir Bjartmarz (1925-2000) Stykkishólmi

Original Stafræn eining not accessible

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Inga Kristjánsdóttir Bjartmarz (1925-2000) Stykkishólmi

Hliðstæð nafnaform

  • Sólveig Inga Kristjánsdóttir Bjartmarz (1925-2000) Stykkishólmi

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

20.10.1925 - 26.1.2000

Saga

Inga Kr. Bjartmars fæddist í Stykkishólmi 20. október 1925. Var í Stykkishólmi 1930. Kvsk á Blönduósi 1943-1944.
Hún lést á Landspítalanum 26. janúar 2000. Útför Ingu fór fram frá Stykkishólmskirkju 5.2.2000 og hófst athöfnin klukkan 14.

Staðir

Stykkishólmur
Vestmannaeyjar

Réttindi

Kvsk á Blönduósi 1943-1944.

Starfssvið

Með heimilisstörfum vann hún aðallega við verslun, fyrst í Vestmannaeyjum en lengst af í Stykkishólmi.

Lagaheimild

Hún tók virkan þátt í starfi Ungmennafélagsins, skátahreyfingarinnar og stúkunnar. Inga söng og starfaði með kór Stykkishólmskirkju til fjölda ára.

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar; Kristján Guðmundur Bjartmarsson Bjartmars 4. mars 1886 - 1. sept. 1978. Afgreiðslumaður í Stykkishólmi 1930. Verslunarmaður, kennari og oddviti í Stykkishólmi og kona hans; Anna Petrína Ingvarsdóttir 14. feb. 1894 - 20. ágúst 1930. Húsfreyja í Stykkishólmi.
Seinni kona hans 1930; Sólborg Ingvarsdóttir 28. apríl 1899 - 7. júlí 1990. Ráðskona í Stykkishólmi 1930. Húsfreyja í Stykkishólmi. Systir fyrri konu hans.

Systkini;
1) Ásta Soffía Kristjánsdóttir Bjartmarz 4. júlí 1917 - 10. des. 2010. Var í Stykkishólmi 1930. Var í Stykkishólmi, Snæf. 1920. Húsfreyja og fékkst við ýmis störf í Vestmannaeyjum.
2) Gunnar Kristjánsson Bjartmars 27. nóv. 1919 - 5. mars 1945. Var í Stykkishólmi 1930.
3) Ágúst Guðmundur Kristjánsson Bjartmars 13. jan. 1924 - 17. des. 2016. Húsasmiður og kennari í Stykkishólmi. Gegndi ýmsum félags- og trúnaðarstörfum. Heiðursborgari Stykkishólms.
Samfeðra;
4) Anna María Bjartmarz 6. des. 1933 - 1. jan. 2022. Húsfreyja í Stykkishólmi.

Maður hennar 20.10.1950; Svanlaugur Elías Lárusson 28. mars 1924 - 4. sept. 2016. Var í Stykkishólmi 1930. Verslunarmaður og verslunareigandi í Stykkishólmi.

Börn þeirra;
1) Sara Elín, kennari, f. 6.3. 1951, gift Jónasi Jónssyni, kennara, f. 10.6. 1955. Börn þeirra eru Svanlaugur, f. 1974, í sambúð með Rannveigu Oddsdóttur, f. 1973, og Ragnhildur, f. 1980.
2) Gunnar, skólastjóri, f. 8.2. 1954, kvæntur Láru Guðmundsdóttur, kennara, f. 3.4. 1955. Börn þeirra eru Hrefna Dögg, f. 1984, Guðlaugur Ingi, f. 1986, Gunnhildur, f. 1990, og Berglind, f. 1993.
3) Lárus Þór, viðskiptafræðingur, f. 5.10. 1957, kvæntur Helgu Harðardóttur, endurskoðanda, f. 10.10. 1959. Börn þeirra eru Haukur, f. 1987, Hörður Þór, f. 1989, og Linda, f. 1996.
4) Anna Kristborg, leikskólakennari, f. 21.9. 1963, gift Ingvari G. Jónssyni, kennara, f. 5.6. 1962. Börn þeirra eru Inga Rún, f. 1983, Fanney, f. 1991, og Anna Guðný, f. 1999.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH07918

Kennimark stofnunar

IS-HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ skráning 2.12.2022

Tungumál

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir