Árni Gíslason (1928-2012) Litlutungu, Efri-Núpssókn

Original Stafræn eining not accessible

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Árni Gíslason (1928-2012) Litlutungu, Efri-Núpssókn

Hliðstæð nafnaform

  • Árni Vernharður Gíslason (1928-2012) Litlutungu, Efri-Núpssókn

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

2.6.1928 - 17.1.2012

Saga

Árni Vernharður Gíslason 2. júní 1928 - 17. jan. 2012 fæddist í Litlu-Tungu í Miðfirði. Var í Litlutungu, Efri-Núpssókn, V-Hún. 1930. Bifreiðasmíðameistari, bílamálarameistari og sjálfstæður atvinnurekandi í Reykjavík. Heiðursfélagi Bílgreinasambandsins.

Staðir

Litla-Tunga

Réttindi

Árni lauk gagnfræðaprófi frá Reykjaskóla í Hrútafirði og fór til frekara náms í Reykjavík þar sem hann aflaði sér meistaragráðu í bifreiðasmíði og bílamálun.

Starfssvið

Hann stofnaði Bifreiðaverkstæði Árna Gíslasonar 1954. Það var í fyrstu við Kleppsveg en Árni byggði stærra húsnæði í Dugguvogi 23 og flutti þangað 1962. Árið 1978 var flutt í miklu stærra húsnæði á Tangarhöfða 8-12 og breiddin í þjónustu fyrirtækisins aukin. Stærstur hluti fjölskyldunnar starfaði við fyrirtækið. Árið 2004 var nýtt verkstæðishús byggt á Kletthálsi 9. Fyrirtækið var selt árið 2007 og þá dreifðist fjölskyldan til annarra starfa en Árni settist í helgan stein. Mikill fjöldi lærlinga lauk sveinsprófi undir handleiðslu Árna. Hann var einn af stofnfélögum Bílgreinasambandsins og var heiðursfélagi þess. Árni sinnti fyrirtæki sínu af mikilli umhyggju og það átti stóran sess í lífi hans.

Lagaheimild

Heiðursfélagi Bílgreinasambandsins.

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar; Gísli Árnason 21. mars 1894 - 19. ágúst 1955. Bóndi í Litlutungu, Efri-Núpssókn, V-Hún. 1930. og kona hans; Pálína Margrét Pálsdóttir 19. júní 1886 - 23. nóv. 1970. Húsfreyja í Litlutungu, Efri-Núpssókn, V-Hún. 1930. Var í Reykjavík 1910. Fóstursynir: Hörður Pétursson, f. 1922 og Stefán Jóhann Jónatansson, f. 1940.

Systkini;
1) Guðlaug Gísladóttir 12. júní 1920 - 16. mars 2015. Var í Litlutungu, Efri-Núpssókn, V-Hún. 1930. Var á Torfastöðum, Fremri-Torfastaðahr., V-Hún. 1957. Húsfreyja á Torfastöðum, síðar saumakona í Reykjavík.
2) Sigríður Gísladóttir 12. des. 1923 - 5. feb. 2005. Húsfreyja og verkakona, síðast bús. í Reykjavík. Var í Litlutungu, Efri-Núpssókn, V-Hún. 1930.
3) Ingibjörg Petrea Gísladóttir 7. mars 1926 - 11. júlí 1994. Var í Litlutungu, Efri-Núpssókn, V-Hún. 1930. Húsfreyja, síðast bús. í Reykjavík.
Fósturbræður;
4) Hörður Pétursson 8. júlí 1922 - 18. okt. 1950. Var í Litlutungu, Efri-Núpssókn, V-Hún. 1930. Bróðursonur húsfreyju í Litlutungu og fóstursonur þeirra hjóna, Margrétar Pálsdóttur, f. 1886 og Gísla Árnasonar, f. 1894.
5) Stefán Jóhann Jónatansson 25. júní 1940 - 14. des. 2007. Bifreiðasmíðameistari í Kópavogi. Fósturforeldrar: Margrét Pálsdóttir, f. 1886 og Gísli Árnason, f. 1894.

Kona hans 22.10.1949; Guðrún Borghildur Steingrímsdóttir 5. okt. 1925 - 17. feb. 2019. Húsfreyja, saumakona og starfaði síðar við fjölskyldufyrirtækið. Var í Miklagarði, Staðarhólssókn, Dal. 1930.

Börn þeirra;
1) Steinunn Kristín, f. 24. febrúar 1950, gift Sigurði Guðmundssyni. Þau eiga þrjá syni: a) Árni Steingrímur, f. 1971, kvæntur Pálínu Ernu Ásgeirsdóttur. Þau eiga saman einn son, Sigurð Pétur, b) Guðmundur Orri, f. 1977, kvæntur Lilju Pálsdóttur. Þau eiga eina dóttur, Rakel Heklu og c) Unnar Darri, f. 1984, í sambúð með Stellu Rögn Sigurðardóttur.
2) Margrét, f. 26. febrúar 1953, d. 25. september 2011. Hún var gift Gísla Örvari Ólafssyni. Þau áttu þrjú börn: a) Steinar Freyr, f. 1976, kvæntur Kristínu Guðrúnu Jónsdóttur, b) Rúnar Bogi, f. 1982 og c) Kristín Ýr, f. 1993.
3) Gísli, f. 24. janúar 1955, kvæntur Unni Úlfarsdóttur. Þau eiga þrjú börn. a) Hrafnhildur, f. 1976, gift Magna Bernhardssyni. Þau eiga þrjú börn, Viktoríu, Lúkas og Jökul Gísla, b) Árni, f. 1980, í sambúð með Auði Snorradóttur og c) Ragnhildur, f. 1985.
4) Bogi Guðmundur, f. 9. október 1966, kvæntur Kristínu Hlíðberg Rafnsdóttur. Þau eiga tvö börn: a) Steinunn Margrét, f. 1997 og b) Róbert Andri, f. 2001.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH07338

Kennimark stofnunar

IS-HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ skráning 28.11.2022

Tungumál

Leturgerð(ir)

Heimildir

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir