Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Rannveig Jónasdóttir (1903-1994) kennari Blönduósi
Hliðstæð nafnaform
- Rannveig Jónasdóttir (1903-1994) kennari Blönduósi
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
18.10.1903 - 2.1.1994
Saga
Rannveig var fædd að Brekku í Fljótsdal í Norður-Múlasýslu og ólst þar upp til sjö ára aldurs, þegar hún fluttist með foreldrum sínum til Sauðárkróks þar sem faðir hennar tók við embætti héraðslæknis. Á Sauðárkróki ólst hún upp í stórum systkinahópi á hinu merka og gestrisna heimili læknishjónanna. Þegar Kvennadeild Skagfirðingafélagsins í Reykjavík var stofnuð árið 1963, gekk Rannveig þar til liðs af heilum hug, því að hún var í hjarta sínu fyrst og fremst Skagfirðingur alla tíð og unni firðinum sínum fagra umfram önnur byggðarlög. Hún vann mikið fyrir Kvennadeildina fyrir basara og þetta var allt svo listilega gert.
Rannveig var mikil garðyrkjukona og þær mæðgur settu upp fallegan garð við læknishúsið. Þar vann Rannveig öllum stundum á sumrin og þessi garður var svo fallegur að hann var annálaður um héraðið. Eftir að fjölskyldan var sest að í Reykjavík, á Gunnarsbraut 28, var haldið áfram við ræktunina og nýr garður varð til og þessi garður varð auðvitað líka til sóma.
Staðir
Brekka í Fljótsdal: Sauðárkrókur 1910: Reykjavík 1937:
Réttindi
Handavinnukennari frá Kennaraskólanum:
Starfssvið
Á Sauðárkróki kenndi hún handavinnu, en fluttist þá til Reykjavíkur og kenndi áfram handavinnu, fyrst við Miðbæjarskólann og síðan við Austurbæjarskólann til 1970, þegar hún lét af störfum. Fór sérstakt orð af afköstum hennar jafnt sem vandvirkni í hannyrðum.
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Dóttir Hansínu Benediktsdóttur 17. maí 1874 - 21. júlí 1948 og Jónasar Kristjánssonar 20. september 1870 - 3. apríl 1960 Læknir víða um land, meðal annars á Sauðárkróki en síðast í Hveragerði. Héraðslæknir á Sauðárkróki 1930.
Var hún elst fimm barna þeirra hjóna, og eru nú eftirlifandi systurnar Guðbjörg og Ásta. Auk þess átti hún fjögur uppeldissystkini. Rannveig bjó á Sauðárkróki til 1937 en flutti þá til Reykjavíkur. Ógift barnlaus.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 12.7.2017
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði
Íslendingabók