Þór Jóhannesson (1917-2010) Þórisstöðum, Svalbarðsströnd

Auðkenni

Tegund einingar

Einstaklingur

Leyfileg nafnaform

Þór Jóhannesson (1917-2010) Þórisstöðum, Svalbarðsströnd

Hliðstæð nafnaform

Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum

Aðrar nafnmyndir

Auðkenni fyrir stofnanir

Lýsing

Fæðingar- og dánarár

6.7.1917 - 3.4.2010

Saga

Þór Jóhannesson fæddist á Þórisstöðum, Svalbarðsströnd, Suður-Þingeyjarsýslu 6. júlí 1917. Hann lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 3. apríl 2010.
Var á Þórisstöðum, Svalbarðssókn, S-Þing. 1930. Bóndi og búfræðingur á Þórisstöðum, í Þórsmörk og síðar á Hálsi í Fnjóskadal, gerðist þá verslunarmaður á Svalbarðseyri, síðast bús. á Akureyri.
Þór var jarðsunginn frá Akureyrarkirkju, 12. apríl 2010, og hefst athöfnin kl. 13.30.

Staðir

Réttindi

Laugar 1933-1934
Þór var búfræðingur frá Bændaskólanum á Hólum

Starfssvið

þau Sigríður bjuggu félagsbúi með Jóhannesi á Þórisstöðum frá 1941 til 1947 þegar þau stofnuðu nýbýli úr landi Þórisstaða, og skírðu býlið Þórsmörk. Þar bjuggu þau til ársins 1967 en fluttu þá búferlum að Hálsi í Fnjóskadal þar sem þau bjuggu í 12 ár. Árið 1979 létu þau af búskap og fluttust til Svalbarðseyrar þar sem Þór vann við verslun hjá Kaupfélagi Svalbarðseyrar þar til hann lét af störfum árið 1987. Eftir að Sigríður lést hefur hann búið á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri.

Lagaheimild

Innri uppbygging/ættfræði

Foreldrar Þórs voru Jóhannes Árnason, bóndi á Þórisstöðum, f. 10.1. 1888, d. 15.2. 1977, og Nanna Valdimarsdóttir, húsfreyja, f. 10.4. 1895, d. 24.4. 1989. Þór var elstur af fimm systkinum, þau eru: 1) Árni Valdimar, f. 26.12. 1918, d. 30.1. 1937. 2) Þórhildur, f. 11.7. 1927. 3) Grímur Kristinn, f. 22.8. 1929, d. 28.3. 2008. 4) Hrafnhildur, f. 16.8. 1932, d. 28.4. 1968.

Þór kvæntist 18. ágúst 1942 Sigríði Ólafíu Guðmundsdóttur, f. 22. nóv. 1917, d. 26. maí 1999. Foreldrar Sigríðar voru hjónin Guðmundur Ágúst Jónsson, bóndi á Vífilsmýrum, Önundarfirði, f. 1.8. 1885, d. 28.4. 1963, og Guðjóna B. Jónsdóttir, húsfreyja og ljósmóðir, f . 14.6. 1890, d. 15.9. 1972. Börn Þórs og Sigríðar eru: 1) Árni Valdimar, f. 15.5. 1942, læknir, kvæntur Rögnu Eysteinsdóttur, f. 15.6. 1961. Fyrri kona Árna var Kristín Blöndal, f. 5.10. 1944, d. 11.12. 1992. Börn þeirra: Lárus, f. 1969, Þór, f. 1974, Jóhannes, f. 1980. Stjúpdóttir Árna, Anna Lind, f. 1984. 2) Nanna Brynhildur, f. 9.6. 1945, kennari, giftist Einari Jens Hafberg, f. 10.7. 1927, d. 27.1. 2003, þau skildu. Börn þeirra: Sigríður, f. 1966, Hrafnhildur, 1967, Einar Þór, f. 1978. 3) Hjörvar Þór, f. 22.4. 1952, kerfisfræðingur í New York, kvæntur Andreu Cozor, f. 18.3. 1955. Börn þeirra: Bryn Chandice, f. 1981, Daniel, f. 1984. 4) Ásdís, f. 5.9. 1954, fv. bóndi, nemi við Háskóla Íslands, gift Guðmundi Ólafssyni, f. 14.9. 1944. Fyrri maður Ásdísar var Benedikt Arnbjörnsson, f. 5.4. 1951, þau skildu. Sonur þeirra Örlygur, f. 1976. 5) Gunnur, f. 22.11. 1959, hjúkrunarfræðingur, gift Ólafi Þórarinssyni, f. 2.11.1959. Fyrri maður Gunnar var Björn Jóhannsson, f. 13.2. 1949, þau skildu. Sonur þeirra er Jóhann, f. 1992. Barnabarnabörnin eru 10.

Almennt samhengi

Tengdar einingar

Tengd eining

Laugar í Reykjadal ((1950))

Identifier of related entity

HAH00367

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

1933 - 1934

Lýsing á tengslum

Tengd eining

Hóladómkirkja og Hólar í Hjaltadal ((1930))

Identifier of related entity

HAH00009

Flokkur tengsla

associative

Dagsetning tengsla

Lýsing á tengslum

Access points area

Efnisorð

Staðir

Occupations

Stjórnsvæði

Authority record identifier

HAH08792

Kennimark stofnunar

IS HAH

Reglur eða aðferð sem stuðst er við

Staða

Loka

Skráningarstaða

Fullt

Skráningardagsetning

GPJ skráning 7.8.2021

Tungumál

  • íslenska

Leturgerð(ir)

Athugasemdir um breytingar

  • Clipboard

  • Flytja út

  • EAC

Related subjects

Tengdir staðir